Verslað og villst í "útlöndum"
Við fórum í verslunarferð til Flensburgar í síðustu viku, falleg borg og ekki nema tæplega 2 tíma akstur. Við vorum þónokkuð köld á því bara, vorum ekki með neitt kort nema það sem við prentuðum út af Google Maps sem sýndi annars vegar exit-ið af hraðbrautinni og hins vegar grófa mynd af miðbænum. Síðan ætluðum við bara í miðbæinn. Að sjálfsögðu fórum við ekki út af hraðbrautinni á réttum stað svo að það kort kom að litlum notum. En við fundum þó eitthvað skilti sem stóð á "Centrum" þannig að við fórum í þá átt, náðum að taka U beyju sem eftirá að hyggja var sennilega ólögleg.
Það er alltaf svolítið hressandi að villast svona, enda engin tækifæri til þess þegar maður er fluttur á einhverja eyju.
Við fundum bílastæðahús sem var ofaná verslanamiðstöð (já, nota bene fórum upp í bílalyftu), fengum okkur að borða og versluðum örlítið. Ég keypti mér skó -finally - ég er búin að leita hrikalega lengi (2 ár örugglega) að einhverjum flottum, kvenlegum og klassískum skóm og þessir komast helst í áttina. Þeir eru reyndar með frekar háum hæl, sem er vissulega jákvætt í mínu tilfelli, en núna eftirá þegar ég geng í þeim finnst mér eins og greindarvísitalan lækki í samræmi við hæðina á hælnum.. mér finnst ég verða bara vitlaus. Til dæmis var ég að labba niður stigann úti í morgun, í pæjuskónum og flauelsjakkanum, og missti símann sem datt á gangstéttina og opnaðist þannig að batteríið og innyflin duttu út, og allt í einu, fannst mér eins og ég gæti ekki sett hann saman.. svo ég hljóp upp til Óla..
Undarleg tilfinning.. hefði ég verið í strigaskónum og gallabuxum og í hettupeysu (svona eins og "..sé ég með hattinn...") hefði ég bara lufsað símanum saman og haldið áfram...
(viðbót: ætli ég hafi ekki bara forheimskast?)
En allavega, fín verslunarferð, fín borg Flensburg og fínt að villast.
Og já, ég keypti þrjá kassa af kók (3x24 dósir) á 115 danskar (1300kr ísl) og macintosh bauk, 3kg, á 119 dkr.
Semsagt, eftir þessa verslunarferð varð ég feit og heimsk, en samt pæja.
Flokkað sem danmörk. Þar eru 73 færslur.
/ Álit
pæjutaktarnir eru nauðsynlegir, jafnvel þótt þeir séu á kostnað einhvers annars!. annars til hamingju með skóna:D
ég væri nú alveg til í að skoða áramótastemmninguna í flensburg:D
daia:
já.. það er gott til þess að hugsa að þið ætlið að hjálpa mér að innbyrgða þetta allt.. ekki fæ ég mikinn stuðning til þess hér heima :)



RSS veita