íbúðamál
Á næstu mánuðum, eða eftir áramót förum við að spá í húsnæðismálunum aftur. Eins og glöggir muna eftir þá seldum við íbúðina okkar í borginni áður en við fluttum út, og stefnan er tekin á að flytja til Akureyrar næsta sumar, vegna þess einfaldlega að þar er best að búa (- og við getum talað dönsku á sunnudögum ;)
Það er náttúrulega allt að breytast í þessum málum akkúrat núna út af lánabreytingum og maður veit ekkert hvernig landslagið verður næsta sumar, en það hlýtur eitthvað að láta undan. Það hjálpar okkur auðvitað að húsnæðisverðið á Akureyri er ekkert í líkingu við ruglið sem er í gangi í RVK og nóg framboð virðist vera á því húsnæði eins og við erum að hugsa um (raðhús, ca 4-5 herb). Það er ansi erfitt fyrir venjulegar manneskjur að borga af 30m+ láni á yfir 6% vöxtum, eins og við hefðum þurft í borginni.
Við erum líka að vinna í því að fá íslensku nágranna okkar hérna í Danmörku að flytja líka til Ak, núna er ein fjölskylda er búin að kaupa þar og flytur í febrúar, ég er nokkuð viss um að við náum annarri ;)
En það verður áhugavert að sjá hvernig þróunin verður því ég held að þetta ástand eigi eftir að breytast mikið en á hvaða veg.. veit ég ekki.
Tenglar:
- Vextir íbúðalána - Ágúst H. Bjarnason
- Uppbygging og spennandi tímar - grein eftir Hermann Jón Tómasson, formann bæjarráðs á Akureyri
- Íbúðalánin sem danski bankinn okkar býður
Flokkað sem samfélag. Þar eru 71 færslur.
/ Álit
Ég var akkúrat að ræða þetta hér í vinnunni í morgun og fólk bara "skyldi ekki" að það væri eitthvað erfitt að borga af 30+ millu láni... Það er bara eitthvað svo scary hugsun að eiga svona mikið "úti" og að greiðsla á mánuði sé komið langt á annað hundrað þúsundið... og auðvitað þá geta verðbætur haft gríðarleg áhrif á mánaðarlega afkomu heimilisins.
Kannski er maður bara of áhættufælinn.... hver veit.
já, þetta er alveg magnað.
Kannski maður eigi að gera ráð fyrir því að maður sé að borga 180þús á mánuði í afborganir (af eign í Rvk) þegar maður er "bara" að borga 120þús (eins og af 10-12millj af sambærilegri eign á Ak) og leggja mismuninn inn á góðan reikning.. ég held að það séu einhverjir sem vilji þá frekar búa á Ak og "fá" 60þús kall á mánuði fyrir.
Svo fremi sem það sé vinna við hæfi á Akureyri ;)
hárrétt, ég hef von/trú á því að það sé að breytast. En kannski er ég of bjartsýn.

