Bruninn í Stærra-Árskógi
Það voru virkilega sorglegar fréttir að heiman um helgina þegar fjósið í Stærra-Árskógi brann. Maður getur ekki gert sér í hugarlund hvað það hefur verið átakanlegt að allt sem maður hefur reynt að byggja upp og setja líf og sál í, hverfa fyrir framan mann. Og öll þessi dýr sem eru, eins og hann sagði, vinir manns.
Þess vegna fannst mér fallegt að sjá að það væri búið að stofna styrktarreikning fyrir Gugga, jafnvel þó tryggingarnar bæti tjónið að einhverju leyti, þá er þetta svo gríðarlegt að það er styrkur í hverri krónu.
RÚV segir: "Reikningurinn er í Sparisjóði Norðlendinga á nafni Guðmundar Jónssonar Bónda og er númerið 520040"
Kennitalan er 1501723069 og bankinn er nr 1145, en mér hefur ómögulega tekist að millifæra núna í kvöld.. nánari upplýsingar óskast.
Flokkað sem samfélag. Þar eru 49 færslur.
/ Álit
Tengdamamma:
Sæl Dagný mín. Reikningurinn hans Guðmundar er 1145-15-520040. Þetta er alveg hrikalegt með þennan bruna, allir í losti yfir þessu. Þau voru vissulega eins vel tryggð og hægt var, en áfallið er samt ofboðslegt. Fallegt af þér að hugsa til þeirra.
Takk fyrir upplýsingarnar, þetta gekk upp núna.
já þetta er hrikaleg tilhugsun. ég get ekki ímyndað mér hvernig tilfinning það er að sjá allt sitt líf brenna svona frá manni. þrátt fyrir að vera vel tryggður þá er held ég að peningarnir komi ekki í staðinn fyrir dýrin hans sem drápust þarna. ég vona samt að hann geti reist upp búið sitt aftur og fengið sér kálfa og kýr.



RSS veita