the diet coke + mentos domino effect
ótrúleg snilld..
jólamaðurinn

Jólin nálgast, síðasti skiladagur í póst líka. Ég er nú reyndar langt komin með að skrifa jólakortin, langflestir pakkarnir eru komnir í umbúðir þannig að ég held að þetta náist að fara af stað rétt eftir mánaðarmót eins og stefnt er að. Það er svolítið þægilegt að geta svo bara farið að baka smákökur og föndra og skreyta. Reyndar er prófaverkefni að byrja skólanum og ég býst við að vera ekki búin fyrr en um 20. des.
Annars eru Danir ekkert að stressa sig hérna, við ætluðum að kíkja aðeins í Storcenter verslunarmiðstöðina sem er rétt hjá skólanum hans Óla í dag en það var bara lokað! Í allan dag, reyndar á sunnudegi en mánuði fyrir jól. Þennan dag eru Íslendingar og Ameríkanar að byrja á "ég er að missa af jólunum" stemmningunni.
Þegar ég pæli í því er ekkert sérstaklega mikið úrval af jólakortum hérna heldur og ég veit ekki hvort Danir séu að senda svona brjálæði af kortum til allra sem þeir þekkja. Ætli danski pósturinn myndi ekki þurfa áfallahjálp ef hver einasta danska fjölskylda sendi 100 kort eins og gerist á sumum stöðum.
Ég bjó til nokkrar jólamyndir eins og sæti jólasveinninn þarna að ofan. Þær náðu reyndar ekki á kortið þetta árið þannig að ég ákvað að birta þær samt, jólasveinninn kemur núna aðeins fyrir aðventuna. Kannski set ég hinar myndirnar inn þegar ég er búin að lita þær.
Bruninn í Stærra-Árskógi
Það voru virkilega sorglegar fréttir að heiman um helgina þegar fjósið í Stærra-Árskógi brann. Maður getur ekki gert sér í hugarlund hvað það hefur verið átakanlegt að allt sem maður hefur reynt að byggja upp og setja líf og sál í, hverfa fyrir framan mann. Og öll þessi dýr sem eru, eins og hann sagði, vinir manns.
Þess vegna fannst mér fallegt að sjá að það væri búið að stofna styrktarreikning fyrir Gugga, jafnvel þó tryggingarnar bæti tjónið að einhverju leyti, þá er þetta svo gríðarlegt að það er styrkur í hverri krónu.
RÚV segir: "Reikningurinn er í Sparisjóði Norðlendinga á nafni Guðmundar Jónssonar Bónda og er númerið 520040"
Kennitalan er 1501723069 og bankinn er nr 1145, en mér hefur ómögulega tekist að millifæra núna í kvöld.. nánari upplýsingar óskast.
Verslað og villst í "útlöndum"
Við fórum í verslunarferð til Flensburgar í síðustu viku, falleg borg og ekki nema tæplega 2 tíma akstur. Við vorum þónokkuð köld á því bara, vorum ekki með neitt kort nema það sem við prentuðum út af Google Maps sem sýndi annars vegar exit-ið af hraðbrautinni og hins vegar grófa mynd af miðbænum. Síðan ætluðum við bara í miðbæinn. Að sjálfsögðu fórum við ekki út af hraðbrautinni á réttum stað svo að það kort kom að litlum notum. En við fundum þó eitthvað skilti sem stóð á "Centrum" þannig að við fórum í þá átt, náðum að taka U beyju sem eftirá að hyggja var sennilega ólögleg.
Það er alltaf svolítið hressandi að villast svona, enda engin tækifæri til þess þegar maður er fluttur á einhverja eyju.
Við fundum bílastæðahús sem var ofaná verslanamiðstöð (já, nota bene fórum upp í bílalyftu), fengum okkur að borða og versluðum örlítið. Ég keypti mér skó -finally - ég er búin að leita hrikalega lengi (2 ár örugglega) að einhverjum flottum, kvenlegum og klassískum skóm og þessir komast helst í áttina. Þeir eru reyndar með frekar háum hæl, sem er vissulega jákvætt í mínu tilfelli, en núna eftirá þegar ég geng í þeim finnst mér eins og greindarvísitalan lækki í samræmi við hæðina á hælnum.. mér finnst ég verða bara vitlaus. Til dæmis var ég að labba niður stigann úti í morgun, í pæjuskónum og flauelsjakkanum, og missti símann sem datt á gangstéttina og opnaðist þannig að batteríið og innyflin duttu út, og allt í einu, fannst mér eins og ég gæti ekki sett hann saman.. svo ég hljóp upp til Óla..
Undarleg tilfinning.. hefði ég verið í strigaskónum og gallabuxum og í hettupeysu (svona eins og "..sé ég með hattinn...") hefði ég bara lufsað símanum saman og haldið áfram...
(viðbót: ætli ég hafi ekki bara forheimskast?)
En allavega, fín verslunarferð, fín borg Flensburg og fínt að villast.
Og já, ég keypti þrjá kassa af kók (3x24 dósir) á 115 danskar (1300kr ísl) og macintosh bauk, 3kg, á 119 dkr.
Semsagt, eftir þessa verslunarferð varð ég feit og heimsk, en samt pæja.
íbúðamál
Á næstu mánuðum, eða eftir áramót förum við að spá í húsnæðismálunum aftur. Eins og glöggir muna eftir þá seldum við íbúðina okkar í borginni áður en við fluttum út, og stefnan er tekin á að flytja til Akureyrar næsta sumar, vegna þess einfaldlega að þar er best að búa (- og við getum talað dönsku á sunnudögum ;)
Það er náttúrulega allt að breytast í þessum málum akkúrat núna út af lánabreytingum og maður veit ekkert hvernig landslagið verður næsta sumar, en það hlýtur eitthvað að láta undan. Það hjálpar okkur auðvitað að húsnæðisverðið á Akureyri er ekkert í líkingu við ruglið sem er í gangi í RVK og nóg framboð virðist vera á því húsnæði eins og við erum að hugsa um (raðhús, ca 4-5 herb). Það er ansi erfitt fyrir venjulegar manneskjur að borga af 30m+ láni á yfir 6% vöxtum, eins og við hefðum þurft í borginni.
Við erum líka að vinna í því að fá íslensku nágranna okkar hérna í Danmörku að flytja líka til Ak, núna er ein fjölskylda er búin að kaupa þar og flytur í febrúar, ég er nokkuð viss um að við náum annarri ;)
En það verður áhugavert að sjá hvernig þróunin verður því ég held að þetta ástand eigi eftir að breytast mikið en á hvaða veg.. veit ég ekki.
Tenglar:
- Vextir íbúðalána - Ágúst H. Bjarnason
- Uppbygging og spennandi tímar - grein eftir Hermann Jón Tómasson, formann bæjarráðs á Akureyri
- Íbúðalánin sem danski bankinn okkar býður
fólkið á milli fjallanna
Var að lesa mjög áhugaverðan pistil um Háskólann á Akureyri á fína vefnum Hugsandi. Þar talar greinarhöfundur um "fólkið á milli fjallanna" og gott ef ég fékk ekki smá heimþrá, eða fjallaþrá öllu heldur. Danmörk er nefnilega flatt land, nema þegar maður hjólar.
julefrokost og undirbúningur
Það má segja að jólaundirbúningurinn sé farinn á gott skrið hérna, á föstudaginn héldum við íslendingarnir hérna smá julefrokost með dönsku smørrebrød á meðan krakkarnir voru í leikskólanum. Á laugardaginn fórum við svo í alvöru julefrokost til dönsku vina okkar hérna, margréttað og virkilega gott. Við sátum og borðuðum frá hádegi til kl 18 og krakkarnir léku sér rosalega vel saman.
Sunnudagurinn var hrein afslöppun enda annað varla hægt eftir allt átið. Í vikunni ætlum við að halda til Þýskalands og versla jólagjafir, reyndar keypti ég nokkrar í sumar, það eru nefnilega bara tvær vikur þar til við sendum þær til Íslands og það verður fljótt að líða.
Um daginn sendi ég líka jólamyndirnar til prentunar (maður segir varla framköllun, því það á við um filmur og það er óralangt síðan ég lét framkalla filmur) og af því ég var hvort sem er að panta prentun þá sendi ég pöntun fyrir myndunum sem voru teknar 2006 og 2007. Það eru semsagt 1500 myndir á leiðinni í póstinum. :S
Í næstu viku byrjar prófaverkefni í skólanum, hópverkefni sem við eigum að skila 20. desember og verður prófað úr í janúar.
Það er ótrúlega gott að byrja snemma.
mýtur
Ég hef svolítið gaman af þessum dönsku auglýsingum frá DanBolig, um mýtur á "húsnæðismarkaði" eða eiginlega hvernig þjóðfélagshóparnir sjá hverja aðra.. í spéspegli auðvitað.. snilld.
ps. ef ykkur vantar þýðingar þá bara spyrja mig, ég er orðin svo ógeðslega góð í dönsku... heh
1