Zeitgeist the movie

Við horfðum á myndina Zeitgeist í gærkvöldi. Við erum náttúrulega búin að horfa mikið á allskonar heimildarmyndir um samsæriskenningar en þessi tók alveg toppinn. Ég held að ég verði aldrei söm.

Zeitgeist was created as a nonprofit filmiac expression to inspire people to start looking at the world from a more critical perspective and to understand that very often things are not what the population at large think they are.
Á vefnum þeirra má finna heimildirnar sem þeir vinna úr og þeir hvetja fólk til að láta ekki mata sig heldur horfa á með gagnrýnu hugarfari og skoða heimildirnar. Það eru örugglega margar staðreyndavillur í myndinni, þó ég hafi ekki rekist á neina stóra gagnrýni (það eru 3 mánuðir síðan hún kom út og síðan þá hafa tæplega 4 milljónir horft á hana) er hún þvílíkur "eye opener" að hún má ekki fara framhjá nokkrum manni hvort sem menn eru fréttafíklar, sagnfræðinerðir, eða þykir vænt um börnin sín og yfirleitt hugsa og/eða anda. En allavega, horfa á hana, annaðhvort á síðunni sjálfri eða google video og tölum svo saman.

Sunnudagur 14. október 2007 kl. 16:18
Flokkað sem samfélag. Þar eru 71 færslur. / video. Þar eru 47 færslur.