virkjanahraðlestin

Um daginn fékk ég tölvupóst varðandi þau virkjanaáform sem eru á áætlun:


Orkuveita Reykjavíkur hyggst nú byggja 135 megavatta háhitavirkjun á Ölkelduhálsi. Hengillinn er spölkorn frá höfuðborgarsvæðinu, svæðið býr yfir magnaðri öræfakyrrð og náttúrufegurð. Þarna eru eyðidalir, hverir og heitir lækir sem hægt er að baða sig í. Þetta er framtíðar útivistarsvæði höfuðborgarbúa, ósnortin víðerni, ómetanlegir möguleikar, -svæðið verður að vernda fyrir ókomnar kynslóðir. Umhverfisráðherra staðfesti svæðið sem mikilvægt útivistarsvæði árið 2005.


Orkuveitan ætlar að virkja þarna nokkur megavött, sem svo á að gefa fyrirhuguðu álveri í Helguvík, á gjafaverði, ef marka má fordæmin. Orkuveitan borgar og framkvæmir umhverfismatið sjálf, spilling í fínum gæðaflokki.

Kærufrestur er til 9. nóvember. Nánari upplýsingar: hengill.nu


Á blogginu hans Ómars, sem ég les nær daglega, er einkar áhugaverð umfjöllun sem mig langaði að geyma hérna. Anna átti líka marga góða punkta varðandi þetta mál. Þið vitið sennilega mína skoðun, það að fórna svona landssvæði, og tækifærum til upplifunar, á álaltari mammons er í besta falli heimska sem við eigum fyrir löngu að vera búin að læra af.
Hugsanlega ef við ættum lífið að leysa og gætum ekki gefið börnunum okkar að borða nema þetta yrði að veruleika gæti ég samþykkt þetta, en annars er þetta bara græðgi. Það er er mín skoðun.

Miðvikudagur 31. október 2007 kl. 23:53
Flokkað sem samfélag. Þar eru 49 færslur.