REI
Maður er gjörsamlega orðlaus yfir fréttum úr gömlu borginni af mönnum sem kunna ekki að fara með vald sitt. Ég er búin að sitja yfir fréttum af þessu síðan fyrir helgi (eins og maður á að gera þegar maður er að læra... ) og lesa ótal bloggsíður um þetta mál. Ég nenni ekki að fara að útlista það yfir hverju mér ofbýður því sennilega er öllum eins innanbrjósts, mig langar bara að geyma nokkra tengla hérna..
1. Yfirlit frá Vísi um störf borgarstjóra
2. Stefán Jón Hafstein fyrrum borgarfulltrúi um Reykjavik Energy Invest
3. Mikil auðlind í orku kosningastjóranna
4. Undraland íslenskra stjórnmála
5. Mynd af hitamælinum í helvíti sem var langt undir frostmarki - Gísli Marteinn neitaði nefnilega að koma í viðtal! - man ekki hvar ég sá það, en það var snilld.
Menn halda að þeir komist upp með þetta vegna þess að fólk sé almennt heimskt og minnislaust og alveg sama því almenningur nennir ekki að mótmæla.
Þögn sé sama og samþykki.
Það er búið að endurtaka þessar klausur of oft, að við erum farin að trúa þeim.
En, almenningur er ekki vitlaus, og hvað þá minnislaus (því það er auðvelt að fletta upp í gömlum bloggfærslum). Fólki ofbýður þetta hvert og eitt og það sér í gegnum rykið! Ef þessar klausur eru endurteknar nógu oft, vonandi förum við þá að trúa þeim.
Flokkað sem samfélag. Þar eru 49 færslur.
/ Álit
mamma:
Alveg er ég sammála þér, Þeir eru alveg komnir úr tkti við raunveruleika venjulegs fólks þessir karlar.
þetta er nafnið á nýja þættinum: Survivor Iceland. bandalög myndast á milli aðilla sem síðan rofna til að mynda bandalög við aðra. allt er reynt til að koma sér áfram!
haha.. já auðvitað, þetta er allt sponsörað af 365 og símanum ;)
muhahaa já einmitt...!! hvenær ætli þátturinn verði sýndur?!



RSS veita