neytendaverðkönnunarpæling

Mikið var ég glöð í mínu hjarta að lesa fréttirnar hjá Rúv í dag, þegar þeir komu með skúbb með Krónuna og Bónus. Mér þykir svo vænt um að það sé einhver neytendavakning í gangi og fer til dæmis reglulega inn á OKUR síðuna hans dr.Gunna til að heykslast mér til gamans.. svo kíki ég líka reglulega inn á Skotsilfur, síðuna hans Ragga til að fá nýjustu fréttir í sparnaðarráðum og heimilisbókhaldi. Alveg gulls ígildi þessi vefur ;)


En í dag, í þessum pælingum um verðkannanir og neytendavitund, fékk ég hugmynd.
barcode.gif
Út um allt eru neytendur að gera sínar eigin verðkannanir, hver í sínu horni, þó þeir láti kannski ekki mikið uppi um það.
Það þyrfti að vera til vefur þar sem maður setur inn verðin á vörunni sem maður er að kaupa, eftir að maður er búinn að versla. Hugsum okkur (í fyrsta lagi að einhver myndi nenna þessu) fara út í búð - kaupa kók í bauk (segi þetta bara af því ég er að norðan), opna vefinn og stimpla inn númerið í strikamerkinu. Strikamerkið er bara auðkenni sem er svo tengt við upplýsingar um vöruna í verslunarkerfinu, þannig hefur hver vara - eftir þyngd eða bragðtegund sitt auðkenni sem er svo tengt inn í hvert verslunarkerfi fyrir sig. Það er ekkert sem mælir gegn því að vefur geti ekki geymt þannig upplýsingar eins og verslunarkerfin? (Leiðrétti mig hver sem getur).


Ef kókið í bauknum hefur verið skráð inn áður þá kemur upp form þar sem kaupandinn er beðinn um að slá inn dagsetningu, verslun og verðið á vörunni. Þar getur hann líka séð hvað aðrir, sem hafa keypt sömu vöru, hafa borgað fyrir hana í gegnum tíðina.


Ef kókið í bauknum hefur ekki verið skráð inn þá þyrfti að setja inn upplýsingar um þá vöru; tegund, framleiðanda, magn oþh, áður en hægt er að setja inn verðið.


Þetta hljómar kannski svolítið leiðinlegt en með notendavænu viðmóti og fallegu útliti ásamt möguleikum til samskipta (skilaboð og spjallborð) og jafnvel því að gera þetta að léttum leik þar sem maður safnar stigum fyrir hverja vöru sem maður setur inn.. (svona eins og iconbuffet þar sem ég er komin með "gegt" mörg stig fyrir að bíttast á táknmyndum í gerviheimi...) gæti þetta orðið gott sport og geysilega gott aðhald fyrir verslanir því þannig er hver kúnni orðinn aktívur "verðkönnunareftirlitsaðili".


Þetta veltur auðvitað mikið á heiðarleika fólks og einhvernvegin þyrfti að vera hægt að færa sönnur á kaupin. Hugsanlega gætu neytendasamtökin staðið fyrir svona vef og gert þá kröfu um að fá kassastrimilinn ef eitthvað undarlegt er í gangi.


Með svona gögnum er hægt að fá upplýsingar yfir ákveðin tímabil, ákveðnar verslanir og ákveðnar vörutegundir. Þetta segir auðvitað bara ákveðna sögu og er ekki marktækt nema að vissu leyti en býr samt til landslag sem mér finnst vera öðruvísi en hefur verið.


Pæling sem vert er að þróa áfram ? Hvað finnst þér ?


Miðvikudagur 31. október 2007 kl. 21:26
Flokkað sem fólk. Þar eru 14 færslur. / hugmyndir. Þar eru 4 færslur. / hönnun. Þar eru 159 færslur. / netið. Þar eru 101 færslur. / tækni. Þar eru 60 færslur.

/ Álit

baddy systir:

já mjög sniðugt...vantar óla ekki hugmynd af lokaverkefni??;) þú gætir hannað lookið og hann forritað. gerist ekki betra! hehe

01.11.07 11:46


daia:

eee.. lokaverkefnið hans verður reyndar aðeins fræðilegra en þetta... en samt, við myndum alveg geta þetta ef við myndum vilja/hefðum efni á, svona on the side :)

01.11.07 13:42


kristleifur:

Þetta er flott hugmynd.

Dagný þú tekur þetta bara ein og sér og gerir þetta að lokaverkefni.

03.11.07 18:17