mánudagssoðning
Fyrir helgi kom "fiskibíllinn". Hann er reyndar ekki með bjöllu eins og ísbíllinn svo það lætur lítið yfir honum. Þetta er íslenskur maður sem flytur og selur fisk víða um Danmörku. Hann var reyndar búinn að hringja á undan sér og náði á nágrannakonu minni, sem tók niður pantanir fyrir nánast allt hverfið. Við keyptum þrjá kassa af sjófrystum ýsuflökum, alls 7.5kg. Ýsa heitir "Kuller" á dönsku og við höfum ekki fundið hana hér í fiskbúðum, í raun höfum við ekki fundið góðan fisk nema skötuselinn sem var frekar dýr steik.
Kílóverðið á ýsunni var 110dkr sem ég held að sé nokkuð íslenskt verð, en þar sem þetta er "munaðarvara" akkúrat núna þá gripum við tækifærið. Síðast þegar við keyptum íslenskan fisk, sem var í gegnum annan aðila, var kg á 60kr. Það var líka næstum gefins.
EN allavega, hún smakkaðist dásamlega og sonur minn gomsaði í sig tveimur skömmtum, sem er fáheyrt við matarborðið
Flokkað sem danmörk. Þar eru 73 færslur. / lífið sjálft. Þar eru 238 færslur. / matur. Þar eru 41 færslur.
/ Álit
Já ég er hissa á hvað það gengur illa að finna góðan fisk hér. Hélt að það yrði nóg úrval. Keyptum steinbít um daginn sem reyndist óætur vegna fitu!!!
Ég sem ætlaði að leika góða mömmu og borða mikið af fiski fyrir gorm þessar síðustu vikur...



RSS veita