haustdagar
Það er búin að vera bongó haustblíða síðustu daga. Í dag fór Óli að spila á golfmóti íslendingafélagsins, svo við Danni vorum aðeins að dandalast hérna heima, fórum í nettó og versluðum heilan helling sem kostaði bara 600 kall, hvílík snilld, skora á ykkur að fletta bæklingnum og gera verðsamanburð. Fórum líka í Storcenter og auðvitað aðeins inn í H&M. Ég missti mig örlítið í "litlustelpudeildinni", þar sem Óli og Eva voru að eignast litla prinsessu. Ég verslaði líka sokkabuxur/gammosíur handa Danna í stelpudeildinni - það virðist ekki vera gert ráð fyrir því að strákar gangi í þannig fatnaði, en til allrar lukku gat ég keypt bláar, svartar og brúnar, án blóma og meira að segja 3 fyrir 2.
Svo lékum við okkur úti í garði í smástund en Danni sogast alltaf heim til Bastian vinar síns, svo hann var þar í klukkutíma í dag á meðan ég gerði pizzadeig.
Golfarinn segir reyndar að það hafi ekki gengið neitt spes í mótinu, svo það voru engin verðlaun þetta árið (iceland express styrkti mótið). Við fórum hins vegar á völlinn í gær og spiluðum nokkrar holur saman, á stuttermabol í dúndur blíðu. Ég er nú að verða dálítið góð í golfinu, verð bara að segja það..
Flokkað sem danmörk. Þar eru 73 færslur. / lífið sjálft. Þar eru 238 færslur.
/ Álit
það er alltaf gaman að skreppa í smá verslunarferð:D, það skiptir heldur ekki máli í hvaða deild er verslað, svo lengi sem hlutirnir passa. en það hefur greinilega verið meira úrval í H&M í DK en skotlandi, ég var frekar svekkt með barnaúrvalið þar:(
daia:
já.. fékkstu engin börn þar? híh



RSS veita