andleysi

Það er ótrúlega lítið að frétta og algjört and- og skipulagsleysi í gangi. Stundum er það bara þannig. Nóg að gera í skólanum, þeir ákváðu að dömpa á okkur vænni ritgerð í Communications kúrsinum sem ég er í núna, 25 síður og skila á miðvikudaginn. Reyndar erum við nokkur saman í hóp sem þýðir færri síður á mann en meira skipulag. Sem er ekki minn stíll þessa dagana. Út af þessu verkefni horfði ég á fahrenheit 911 aftur í gær og eftir það verður maður bara fúll út í heiminn.
Ég er búin að reyna markvisst að rífa mig upp úr þessu í dag, lesa behance og vitamin og hugsa um hvað heimurinn er samt fallegur. Fékk staðfestingu á því þegar ég rakst á þessa ægifögru vefsíðu hjá pípulagningarmanni - þeir eru nú yfirleitt þekktari fyrir að sýna manni einhvern ófögnuð.
Konan hans hlýtur að hafa séð um þetta.

Annars var veðurfréttamaðurinn á DR í 66°N jakka þegar hann las upp veðrið í kvöld, það passar ágætlega, það er kuldi í spánni. Svo var Hjálmar a.k.a Bommi að leika rútubílstjóra í þýskri sjónvarpsmynd á einni stöðinni. Áhugavert, einmitt.


Föstudagur 26. október 2007 kl. 21:45
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 238 færslur.