virkjanahraðlestin
Um daginn fékk ég tölvupóst varðandi þau virkjanaáform sem eru á áætlun:
neytendaverðkönnunarpæling
Mikið var ég glöð í mínu hjarta að lesa fréttirnar hjá Rúv í dag, þegar þeir komu með skúbb með Krónuna og Bónus. Mér þykir svo vænt um að það sé einhver neytendavakning í gangi og fer til dæmis reglulega inn á OKUR síðuna hans dr.Gunna til að heykslast mér til gamans.. svo kíki ég líka reglulega inn á Skotsilfur, síðuna hans Ragga til að fá nýjustu fréttir í sparnaðarráðum og heimilisbókhaldi. Alveg gulls ígildi þessi vefur ;)
En í dag, í þessum pælingum um verðkannanir og neytendavitund, fékk ég hugmynd.

Út um allt eru neytendur að gera sínar eigin verðkannanir, hver í sínu horni, þó þeir láti kannski ekki mikið uppi um það.
Það þyrfti að vera til vefur þar sem maður setur inn verðin á vörunni sem maður er að kaupa, eftir að maður er búinn að versla. Hugsum okkur (í fyrsta lagi að einhver myndi nenna þessu) fara út í búð - kaupa kók í bauk (segi þetta bara af því ég er að norðan), opna vefinn og stimpla inn númerið í strikamerkinu. Strikamerkið er bara auðkenni sem er svo tengt við upplýsingar um vöruna í verslunarkerfinu, þannig hefur hver vara - eftir þyngd eða bragðtegund sitt auðkenni sem er svo tengt inn í hvert verslunarkerfi fyrir sig. Það er ekkert sem mælir gegn því að vefur geti ekki geymt þannig upplýsingar eins og verslunarkerfin? (Leiðrétti mig hver sem getur).
Ef kókið í bauknum hefur verið skráð inn áður þá kemur upp form þar sem kaupandinn er beðinn um að slá inn dagsetningu, verslun og verðið á vörunni. Þar getur hann líka séð hvað aðrir, sem hafa keypt sömu vöru, hafa borgað fyrir hana í gegnum tíðina.
Ef kókið í bauknum hefur ekki verið skráð inn þá þyrfti að setja inn upplýsingar um þá vöru; tegund, framleiðanda, magn oþh, áður en hægt er að setja inn verðið.
Þetta hljómar kannski svolítið leiðinlegt en með notendavænu viðmóti og fallegu útliti ásamt möguleikum til samskipta (skilaboð og spjallborð) og jafnvel því að gera þetta að léttum leik þar sem maður safnar stigum fyrir hverja vöru sem maður setur inn.. (svona eins og iconbuffet þar sem ég er komin með "gegt" mörg stig fyrir að bíttast á táknmyndum í gerviheimi...) gæti þetta orðið gott sport og geysilega gott aðhald fyrir verslanir því þannig er hver kúnni orðinn aktívur "verðkönnunareftirlitsaðili".
Þetta veltur auðvitað mikið á heiðarleika fólks og einhvernvegin þyrfti að vera hægt að færa sönnur á kaupin. Hugsanlega gætu neytendasamtökin staðið fyrir svona vef og gert þá kröfu um að fá kassastrimilinn ef eitthvað undarlegt er í gangi.
Með svona gögnum er hægt að fá upplýsingar yfir ákveðin tímabil, ákveðnar verslanir og ákveðnar vörutegundir. Þetta segir auðvitað bara ákveðna sögu og er ekki marktækt nema að vissu leyti en býr samt til landslag sem mér finnst vera öðruvísi en hefur verið.
Pæling sem vert er að þróa áfram ? Hvað finnst þér ?
Flokkað sem fólk / hugmyndir / hönnun / netið / tækni /
3
the battle of the brains..
Baddý systir benti mér á þetta.. Right Brain v Left Brain
.. heilahvelin slást þessa stundina!
andleysi
Það er ótrúlega lítið að frétta og algjört and- og skipulagsleysi í gangi. Stundum er það bara þannig. Nóg að gera í skólanum, þeir ákváðu að dömpa á okkur vænni ritgerð í Communications kúrsinum sem ég er í núna, 25 síður og skila á miðvikudaginn. Reyndar erum við nokkur saman í hóp sem þýðir færri síður á mann en meira skipulag. Sem er ekki minn stíll þessa dagana. Út af þessu verkefni horfði ég á fahrenheit 911 aftur í gær og eftir það verður maður bara fúll út í heiminn.
Ég er búin að reyna markvisst að rífa mig upp úr þessu í dag, lesa behance og vitamin og hugsa um hvað heimurinn er samt fallegur. Fékk staðfestingu á því þegar ég rakst á þessa ægifögru vefsíðu hjá pípulagningarmanni - þeir eru nú yfirleitt þekktari fyrir að sýna manni einhvern ófögnuð.
Konan hans hlýtur að hafa séð um þetta.
Annars var veðurfréttamaðurinn á DR í 66°N jakka þegar hann las upp veðrið í kvöld, það passar ágætlega, það er kuldi í spánni. Svo var Hjálmar a.k.a Bommi að leika rútubílstjóra í þýskri sjónvarpsmynd á einni stöðinni. Áhugavert, einmitt.
Zeitgeist the movie
Við horfðum á myndina Zeitgeist í gærkvöldi. Við erum náttúrulega búin að horfa mikið á allskonar heimildarmyndir um samsæriskenningar en þessi tók alveg toppinn. Ég held að ég verði aldrei söm.
REI
Maður er gjörsamlega orðlaus yfir fréttum úr gömlu borginni af mönnum sem kunna ekki að fara með vald sitt. Ég er búin að sitja yfir fréttum af þessu síðan fyrir helgi (eins og maður á að gera þegar maður er að læra... ) og lesa ótal bloggsíður um þetta mál. Ég nenni ekki að fara að útlista það yfir hverju mér ofbýður því sennilega er öllum eins innanbrjósts, mig langar bara að geyma nokkra tengla hérna..
1. Yfirlit frá Vísi um störf borgarstjóra
2. Stefán Jón Hafstein fyrrum borgarfulltrúi um Reykjavik Energy Invest
3. Mikil auðlind í orku kosningastjóranna
4. Undraland íslenskra stjórnmála
5. Mynd af hitamælinum í helvíti sem var langt undir frostmarki - Gísli Marteinn neitaði nefnilega að koma í viðtal! - man ekki hvar ég sá það, en það var snilld.
Menn halda að þeir komist upp með þetta vegna þess að fólk sé almennt heimskt og minnislaust og alveg sama því almenningur nennir ekki að mótmæla.
Þögn sé sama og samþykki.
Það er búið að endurtaka þessar klausur of oft, að við erum farin að trúa þeim.
En, almenningur er ekki vitlaus, og hvað þá minnislaus (því það er auðvelt að fletta upp í gömlum bloggfærslum). Fólki ofbýður þetta hvert og eitt og það sér í gegnum rykið! Ef þessar klausur eru endurteknar nógu oft, vonandi förum við þá að trúa þeim.
mánudagssoðning
Fyrir helgi kom "fiskibíllinn". Hann er reyndar ekki með bjöllu eins og ísbíllinn svo það lætur lítið yfir honum. Þetta er íslenskur maður sem flytur og selur fisk víða um Danmörku. Hann var reyndar búinn að hringja á undan sér og náði á nágrannakonu minni, sem tók niður pantanir fyrir nánast allt hverfið. Við keyptum þrjá kassa af sjófrystum ýsuflökum, alls 7.5kg. Ýsa heitir "Kuller" á dönsku og við höfum ekki fundið hana hér í fiskbúðum, í raun höfum við ekki fundið góðan fisk nema skötuselinn sem var frekar dýr steik.
Kílóverðið á ýsunni var 110dkr sem ég held að sé nokkuð íslenskt verð, en þar sem þetta er "munaðarvara" akkúrat núna þá gripum við tækifærið. Síðast þegar við keyptum íslenskan fisk, sem var í gegnum annan aðila, var kg á 60kr. Það var líka næstum gefins.
EN allavega, hún smakkaðist dásamlega og sonur minn gomsaði í sig tveimur skömmtum, sem er fáheyrt við matarborðið
Flokkað sem danmörk / lífið sjálft / matur /
1
haustdagar
Það er búin að vera bongó haustblíða síðustu daga. Í dag fór Óli að spila á golfmóti íslendingafélagsins, svo við Danni vorum aðeins að dandalast hérna heima, fórum í nettó og versluðum heilan helling sem kostaði bara 600 kall, hvílík snilld, skora á ykkur að fletta bæklingnum og gera verðsamanburð. Fórum líka í Storcenter og auðvitað aðeins inn í H&M. Ég missti mig örlítið í "litlustelpudeildinni", þar sem Óli og Eva voru að eignast litla prinsessu. Ég verslaði líka sokkabuxur/gammosíur handa Danna í stelpudeildinni - það virðist ekki vera gert ráð fyrir því að strákar gangi í þannig fatnaði, en til allrar lukku gat ég keypt bláar, svartar og brúnar, án blóma og meira að segja 3 fyrir 2.
Svo lékum við okkur úti í garði í smástund en Danni sogast alltaf heim til Bastian vinar síns, svo hann var þar í klukkutíma í dag á meðan ég gerði pizzadeig.
Golfarinn segir reyndar að það hafi ekki gengið neitt spes í mótinu, svo það voru engin verðlaun þetta árið (iceland express styrkti mótið). Við fórum hins vegar á völlinn í gær og spiluðum nokkrar holur saman, á stuttermabol í dúndur blíðu. Ég er nú að verða dálítið góð í golfinu, verð bara að segja það..
Veiðimann

Ég set þetta med det samme á jólagjafaóskalistann.. spilin með Veiðimann. Snilldarhugmynd hjá Stefáni Pétri, sem ég gæti kallað gamlan nemanda minn, þar sem hann var í kúrs sem ég kenndi í LHÍ fyrir nokkrum árum, en ég ætla ekki að kalla hann það af því ég hljóma svo hrikalega gömul við það :/ híh
En frábært hjá honum að fá svona hugmynd og ennþá frábærara að framkvæma hana!
