..the land of the free..

Við horfðum á heimildarmyndina SiCKO í gærkvöldi, sem fjallar um bandaríska heilbrigðis- og tryggingakerfið. Þetta er sláandi mynd, eins og Michael Moore er einum lagið. Að hugsa sér að það séu yfir 50 milljón manns í USA sem eru ótryggðir og þurfa þ.a.l. að borga fyrir sína heilbrigðisþjónustu sjálft. Auk þess kom fram í myndinni að þó maður sé með tryggingu þá er alls óvíst hvort tryggingarfélagið "samþykki veikindin" og greiði lækniskostnaðinn. Að hugsa sér að fólki sé bókstaflega hent út af spítalanum út á götu, með drippið í æðinni, af því viðkomandi er ekki tryggður. Svo ekki sé minnst á öll þau "ónauðsynlegu" dauðsföll meðal barna og fullorðinna vegna tafa og skriffinnsku.
Bestu atriðin eru þau þegar MM fór með hóp af fólki yfir til Kúbu og fékk ókeypis læknisþjónustu, og lyf á 5 cent sem kosta yfir $100 í USA.
Allt er þetta gert svo að tryggingafélögin og lyfjafyrirtækin skili meiri og meiri hagnaði. Hrein Græðgi og ótrúleg illska.

Það voru líka margir aðrir áhugaverðir punktar varðandi samfélagið þó svo maður geti kannski ekki dæmt það beint eftir þessari heimildarmynd. Einn punkturinn var hræðslan við sósíalisma eða félagshyggju því sósíalismi virðist vera beintengdur í huga fólks við rússneska hrollvekju. Þegar menn eru hræddir þá láta þeir vel að stjórn.

Þetta er mynd sem allir verða að sjá, helst af öllu Bandaríkjamenn sjálfir því þarna eru góð dæmi um þjónustuna sem menn fá í Bretlandi og Frakklandi, en ekki síður við hin svo við sjáum hvert á EKKI að stefna.
Maður ætlar rétt að vona að Íslandsvinkonan Hillary nái að sveigja þetta eitthvað í rétta átt.


Sunnudagur 30. september 2007 kl. 21:39
Flokkað sem video. Þar eru 46 færslur.