róleg tíð

Það hefur verið hljóðlátt hér undanfarna daga. Ég er að stíga upp úr magapest sem er búin að gera mér lífið leitt síðan um helgina. Ups and downs, you know. Á sunnudaginn tókst mér að sofa allan daginn og í tvo sólarhringa held ég að ég hafi náð að borða eina sneið úr epli og einn bita af brauðsneið. Fyrir vikið held ég að vogin sé mér aðeins hagstæðari en þetta var nú kannski ekki rétta leiðin til þess.
Svo hafa dagarnir liðið hratt í danaveldi. Á sama tíma á næsta ári verðum við flutt heim, undarlegt að hugsa til þess. Við fengum gómsæt ber beint úr Karlsármóunum send til okkar um daginn. Þau fóru beint í frost og verða hituð með ísnum um jólin. Mmmm.. Á næsta ári komumst við sjálf út í mó.


Svo hef ég verið að klára sumarverkefnin eitt af öðru, þannig að ég sé framá rólega tíma framundan, spurning um að fara að byrja á jólakortunum?


Miðvikudagur 19. september 2007 kl. 19:17
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 238 færslur.

/ Álit

Tengda:

Ja hérna, vonandi var ekki magapestin tengd berjunum :( En gott að heyra að þið eruð að hressast. Kær kveðja, tengda.

20.09.07 11:45


Dagný:

hæ, takk fyrir kommentið, en nei - ekki tengd nema þannig að það var ekki mikil lyst á því að úða í sig eins og maður hefði viljað undir öðrum kringumstæðum ;)

20.09.07 13:52


gunna:

Gott að þú ert að hressast af magapestinni.

Ég var einmitt að hugsa um jólakortin um daginn. Það verður kominn desember áður en við vitum af!

23.09.07 22:29