Öld sjálfsins
Síðustu kvöld höfum við verið að horfa á þættina "Century of the Self" sem voru gerðir og sýndir hjá BBC fyrir nokkrum árum. Núna er hægt að horfa á þá á google video. Það er eiginlega ótrúlegt að við höfum ekki horft á þá fyrr, umfjöllunarefnið er geysilega áhugavert.
Í raun er verið að fjalla um hvernig nútíma neyslusamfélag hefur þróast á síðustu öld, og hvernig stórfyrirtæki hafa notað sálfræði og sálgreiningu (kenningar Freuds) til að greina og stjórna neyslumynstri fólks.
Þetta er mun áhugaverðara en það kannski hljómar og opnar augu manns fyrir ýmsu sem maður kannski vissi að hluta en pældi ekki mikið í.
Síðasti þátturinn fjallar um hina óvægu einstaklingshyggju sem vaknaði á tímum Reagan og Thatcher og sér hreinlega ekki fyrir endann á.
Þættirnir voru sennilega sýndir fyrir 11. september 2001 - daginn sem 21. öldin byrjaði - þannig að guðisélof er ekki verið að fjalla um war on terror. Reyndar var hin fræga tilvitnun í Roosevelt "There is nothing to fear but fear itself" sýnd þarna, í öðru samhengi, en á alveg einstaklega ótrúlega vel við samfélagið eins og það er keyrt áfram í dag.
Næst ætla ég að reyna að að finna "End of Suburbia" sem er kanadísk heimildarmynd um áhrif aukinnar eftirspurnar og minnkandi framboðs á eldsneyti og kolefnisorkugjöfum á hið daglega líf (í vestrænum heimi).
Já, svona er þetta þegar maður er ekki með almennilega sjónvarpsáskrift (fyrir utan skandinavískar ríkisstöðvar og hina ítölsku bráðskemmtilegu Rai Uno beint frá Berlusconi) og tímabil hins auðmelta dægurefnis frá Ameríku (desperate housewives, greys anatomy og lost) er ekki hafið.
Flokkað sem samfélag. Þar eru 49 færslur. / video. Þar eru 46 færslur.
/ Álit
það getur verið alveg tær snilld að detta niður á svona efni á netinu. þetta er einmitt ástæðan fyrir því að ég á ekki sjónvarp. ég næ bara í það sem ég vil horfa á á netinu og horfi þegar mér hentar:)
daia:
já, það er tær snilld, ég horfi mikið á rúv líka.. var t.d. að horfa á spaugstofuna og hló mikið að einu... "ertu að segja að sonur minn sé LESBÍA!"
En já, þetta er okkar tivo.. Óli er í P2P (peer to peer) áfanga í skólanum og þar var því fleygt fram að torrent sé um 35% af allri nettraffík í heiminum... það er slatti.
mamma:
Hæ þegar ég las þetta datt mér í hug hvort þú værir búin að fara inná orkusetur.is það er margt að gerast bara á Akureyri...



RSS veita