Nýr vefur Ekta fisks + smá greining

ekta.jpg

Á laugardaginn sendi ég í loftið nýja vefinn fyrir Ekta fisk sem ég hef verið að vinna núna síðsumars. Mig langar að segja svolítið frá því hvernig ég vann hann, því það er búið að vera mjög lærdómsríkt og skemmtilegt ferli.
Í raun hef ég unnið að öllum hliðum þessa vefs. Til að byrja með má nefna vinnslu efnisvals og veftrés út frá greiningu á stöðu, og ekki síst sérstöðu, fyrirtækisins á markaði. Ég hef reyndar góða þekkingu á þessu fyrirtæki þar sem bróðir pabba rekur það, og ég vann þar mikið í minni æsku í salfiski. Þar má segja að ég hafi kynnst kúltúrnum í fyrirtækinu en það er ótrúlega mikilvægt atriði þegar kemur t.d. að mörkun fyrirtækja, og vefurinn er stórt atriði í því.
Einnig að skrifa texta sem er vænn fyrir leitarvélar jafnt sem lesendur, skrá nýja hýsingu, breyta DNS stillingum, búa til netföng og setja upp blogg kerfi, sem sér um að fóðra nokkrar síður af efni sem kúnninn getur sjálfur uppfært.


Síðurnar sjálfar eru skrifaðar í xhtml og php, þar sem include skipunin er óspart notuð til að minnka endurtekningar á efni. Til dæmis er valmyndin lesin úr einni og sömu skránni, en glöggir sjá að hún breytist eftir því hvar maður er staðsettur í vefnum. Með því að gefa hverri síðu sérstakt nafn veit "valmyndaskráin" hvar maður er staddur og getur því sýnt þær undirsíður sem búið er að skilgreina. Kannski efni í aðra og nördalegri bloggfærslu.
Einnig kemur javascript við sögu sem og tungumálið sem Movable Type notar í sínum template-um. Svo er smá hluti vefsins lesinn úr xml skrá, nefnilega söluaðilarnir. Í dag er skráin lesin beint eins og hún leggur sig, en auðveldlega gæti ég sett upp skipanir sem næðu í upplýsingar um hverja verslunarkeðju fyrir sig. Ég ætlaði fyrst að útbúa Íslandskort í flash og lesa xml-ið þar í gegn en ég sá ekki alveg tilganginn og held að þetta sé þægilegra í svona lista. Kemur kannski seinna ef þörfin er mikil (...á því að hafa eitthvað sveitt).


Næstu skref er að setja inn meira efni og skoða þær ábendingar sem hafa komið fram, því strax á sunnudaginn komu bæði pantanir og komment um vefinn, sem er bara frábært. Ábendingar eru vel þegnar.


Ég notaði Coda ritilinn alfarið við að skrifa vefinn, hann er hýstur hjá Bluehost í USA, nýju merkin fyrir Ekta fisk og Ekta rétti voru teiknuð hjá Stíl á Akureyri. Sérstakar þakkir fær svo tölvunarfræðingurinn á heimilinu fyrir að hafa ávallt svör við misgáfulegum spurningum sambýliskonunnar. :)


Þriðjudagur 04. september 2007 kl. 19:58
Flokkað sem hönnun. Þar eru 159 færslur. / netið. Þar eru 101 færslur.

/ Álit

Jonni:

Haha ... umsögnin á forsíðunni er snilld :)

Til hamingju með vefinn ;)

05.09.07 07:02


dagný:

takk :) maður verður nú að bjarga sér ;)

05.09.07 07:12


almar:

Vá, þetta er alveg hevy flott, og snyrtilegt.
Auðvelt að browsa um.

Mér finnst samt alltaf meiri klassi yfir .is endingu á svona íslensk lén.

06.09.07 12:00


daia:

takk Almar, ég er alveg sammála þér með .is lénið, og það stóð alltaf til.. það er bara aðeins meira bras en er líklegast að ganga upp.

11.09.07 11:55


Gunna:

Til hamingju með vefinn Dagný – aðgengilegt, huggulegt og snyrtilegt!

Mannstu vefinn sem við vorum að reyna að búa til 'um árið' fyrir Ekta Fisk? Æj.. það fær mig til að brosa.

11.09.07 21:10