lesefni

layout.jpgÉg kom við á bókasafninu í skólanum í dag áður en ég fór í geeky SQL tíma og fann þar hina fínustu bók.. reyndar ekki um SQL .. heldur heitir hún "Layout - n. an arrangement of parts ect. according to a plan" og fjallar um grunngildi grafískrar hönnunar; nefnilega griddið og "form follows function". Sjaldan of oft kveðin sú vísa.
Skemmtilegt finnst mér líka hvernig bókin er prentuð, bæði húðaðan, óhúðaðan og endurunninn pappír, með góðu indexi aftast og skemmtilegri lakkáferð á viðeigandi stöðum.. mmmm..


Það var heldur skemmtilegra að fletta þessari bók í tíma í dag heldur en kennslubókinni.


Fimmtudagur 06. september 2007 kl. 21:11
Flokkað sem hönnun. Þar eru 159 færslur.