Það má segja að ég hafi gefið upp öndina...
Stundum getur maður bara ekki staðist það. Ég er búin að horfa á þetta tilboð í nokkra daga, kíló af andabringum á 100 kall. Þrjár stórar og feitar ferskar bringur í pakka.
Ég ákvað að kaupa í sunnudagsmatinn.
Og sem þær voru góðar, Mmmm,.. ein og hálf var nóg ofaní fjölskylduna. Krydduð með salti, pipar og timjan, steikt á grillpönnu til að byrja með og svo inni í ofni. Meðlætið var grænmeti grillsteikt uppúr hunangi; gulrætur, sveppir, epli, paprika, laukur, ásamt bökuðum kartöflubátum. Hún smakkaðist dásamlega þó svo sonur minn hafi ekki verið sammála, en hann á aðeins eftir að þróa matarsmekkinn sinn.
Strax í gærkvöldi fór ég að finna smá ónot í maganum en vaknaði svo í nótt við að ég þurfti bara nauðsynlega að skila einhverju frá mér.. upp..
..og þar fór öndin.
Innyflin eru semsagt búin að vera á hvolfi í dag, óskemmtilega. Svona fyrir ykkur sem viljið vita.
Reyndar sluppu strákarnir báðir við þetta, annar borðaði aðallega eftirmatinn og ætli hinn hafi ekki svigað framhjá rjóðustu bitunum.
Þetta er reyndar ekki í fyrsta skiptið sem ég fær í magann eftir að hafa borðað kjöt hérna, við erum eiginlega hætt að kaupa rautt kjöt og sérstaklega ekki þýskt kjöt eftir skandalinn sem varð hérna í fyrra. (Þá komst það upp að matvælaeftirlitið var í lamasessi, hafði engin fjárráð og fáa starfsmenn, og nokkrir gámar af tveggja ára gömlu kjöti biðu við þýsku landamærin eftir áköfum búðareigendum. Danir voru með æluna í hálsinum í nokkra mánuði). Yfirleitt kaupi ég danskt lífrænt hakk og einstaka sinnum danskar svínalundir. Kannski er ég með einstaklega ofverndaðan maga.
Ég þarf allavega að kíkja betur á umbúðirnar á þessum blessuðu andabringum í næstu búðarferð, kannski stendur í smáu letri að þessum öndum hafi verið slátrað í austurlöndum fjær og fluttar á fleka til Þýskalands þar sem þær voru geymdar í ókældu vöruhúsi áður en þær voru fótósjoppaðar að utan og sendar í Bilka handa grunlausum og gráðugum kjellingum sem horfa á verðmiðann í stað innihaldslýsingarinnar.
Kannski var þetta bara einhver pest sem er að ganga, vonandi því þá á ég eina og hálfa gómsæta andabringu í frystinum. En sennilega kemst ég aldrei að því, og á meðan liggur öndin frosin undir grun.
Það er nefnilega svo gjarnt með tilboðsvörur hérna að kjúklingabringurnar eru kannski frá Brasilíu eða Indonesíu (í alvöru, ég sá það einusinni) og þá eru þær náttúrulega bara á túkall stykkið. Lambakjöt er ekki hægt að fá nema Nýsjálenskt og mér finnst eitthvað rangt við að versla vöru sem var alin hinumegin á hnettinum. En sennilega er það bara ég.
Ég held að landbúnaðarvöruframleiðendur (er þetta orð?) á Íslandi þurfi ekkert að óttast þó svo það verði opnað fyrir markaðinn með erlendar landbúnaðarvörur heima, ef íslensku vörurnar eru vel merktar þá munu þær alveg halda sínum sessi því gæðamunurinn er svo mikill að hann réttlætir verðmuninn.
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur. / matur. Þar eru 42 færslur.
/ Álit
Gleymdi að minnast á... stundum er ekki sagt frá því í hvaða landi varan er framleidd, heldur stendur "Oprettet i 3. land" ... semsagt, dýrið er alið í einu landi, slátrað í öðru og selt í því þriðja!
correct me if i'm wrong..
Gunna:
Arg stopp itttt.. you had me at Önd!! Nammmmmm....

