..the land of the free..
Við horfðum á heimildarmyndina SiCKO í gærkvöldi, sem fjallar um bandaríska heilbrigðis- og tryggingakerfið. Þetta er sláandi mynd, eins og Michael Moore er einum lagið. Að hugsa sér að það séu yfir 50 milljón manns í USA sem eru ótryggðir og þurfa þ.a.l. að borga fyrir sína heilbrigðisþjónustu sjálft. Auk þess kom fram í myndinni að þó maður sé með tryggingu þá er alls óvíst hvort tryggingarfélagið "samþykki veikindin" og greiði lækniskostnaðinn. Að hugsa sér að fólki sé bókstaflega hent út af spítalanum út á götu, með drippið í æðinni, af því viðkomandi er ekki tryggður. Svo ekki sé minnst á öll þau "ónauðsynlegu" dauðsföll meðal barna og fullorðinna vegna tafa og skriffinnsku.
Bestu atriðin eru þau þegar MM fór með hóp af fólki yfir til Kúbu og fékk ókeypis læknisþjónustu, og lyf á 5 cent sem kosta yfir $100 í USA.
Allt er þetta gert svo að tryggingafélögin og lyfjafyrirtækin skili meiri og meiri hagnaði. Hrein Græðgi og ótrúleg illska.
Það voru líka margir aðrir áhugaverðir punktar varðandi samfélagið þó svo maður geti kannski ekki dæmt það beint eftir þessari heimildarmynd. Einn punkturinn var hræðslan við sósíalisma eða félagshyggju því sósíalismi virðist vera beintengdur í huga fólks við rússneska hrollvekju. Þegar menn eru hræddir þá láta þeir vel að stjórn.
Þetta er mynd sem allir verða að sjá, helst af öllu Bandaríkjamenn sjálfir því þarna eru góð dæmi um þjónustuna sem menn fá í Bretlandi og Frakklandi, en ekki síður við hin svo við sjáum hvert á EKKI að stefna.
Maður ætlar rétt að vona að Íslandsvinkonan Hillary nái að sveigja þetta eitthvað í rétta átt.
tóm snilld
hehe, má ég benda á snilldar lestur á föstudagskvöldi: Mitt epíska, linnulausa hatur.
Gullfoss og Geysir
Ég held að ég hafi bara ekki lent í jafn ógeðslegu og þessi pest er búin að vera, síðan í byrjun september. Þrisvar sinnum í mánuðinum, og síðast í gær, hef ég engu haldið uppi-né niðri. Ulækkert!!
Núna er ég reyndar frekar hress, vaknaði þvílíkt léttari í morgun enda búin að losa mig við sirkabát 40% af vatni líkamans. Núna er ég að sulla í mig einhverju sem heitir Revolyt sem inniheldur steinefni og sölt og virkar vonandi jafn vel og það er ógeðslegt á bragðið.
Ugh...
En það jákvæða í þessu er sennilega að það er langt síðan ég hef verið með svona flatan maga. ;)
Öld sjálfsins
Síðustu kvöld höfum við verið að horfa á þættina "Century of the Self" sem voru gerðir og sýndir hjá BBC fyrir nokkrum árum. Núna er hægt að horfa á þá á google video. Það er eiginlega ótrúlegt að við höfum ekki horft á þá fyrr, umfjöllunarefnið er geysilega áhugavert.
Í raun er verið að fjalla um hvernig nútíma neyslusamfélag hefur þróast á síðustu öld, og hvernig stórfyrirtæki hafa notað sálfræði og sálgreiningu (kenningar Freuds) til að greina og stjórna neyslumynstri fólks.
Þetta er mun áhugaverðara en það kannski hljómar og opnar augu manns fyrir ýmsu sem maður kannski vissi að hluta en pældi ekki mikið í.
Síðasti þátturinn fjallar um hina óvægu einstaklingshyggju sem vaknaði á tímum Reagan og Thatcher og sér hreinlega ekki fyrir endann á.
Þættirnir voru sennilega sýndir fyrir 11. september 2001 - daginn sem 21. öldin byrjaði - þannig að guðisélof er ekki verið að fjalla um war on terror. Reyndar var hin fræga tilvitnun í Roosevelt "There is nothing to fear but fear itself" sýnd þarna, í öðru samhengi, en á alveg einstaklega ótrúlega vel við samfélagið eins og það er keyrt áfram í dag.
Næst ætla ég að reyna að að finna "End of Suburbia" sem er kanadísk heimildarmynd um áhrif aukinnar eftirspurnar og minnkandi framboðs á eldsneyti og kolefnisorkugjöfum á hið daglega líf (í vestrænum heimi).
Já, svona er þetta þegar maður er ekki með almennilega sjónvarpsáskrift (fyrir utan skandinavískar ríkisstöðvar og hina ítölsku bráðskemmtilegu Rai Uno beint frá Berlusconi) og tímabil hins auðmelta dægurefnis frá Ameríku (desperate housewives, greys anatomy og lost) er ekki hafið.
róleg tíð
Það hefur verið hljóðlátt hér undanfarna daga. Ég er að stíga upp úr magapest sem er búin að gera mér lífið leitt síðan um helgina. Ups and downs, you know. Á sunnudaginn tókst mér að sofa allan daginn og í tvo sólarhringa held ég að ég hafi náð að borða eina sneið úr epli og einn bita af brauðsneið. Fyrir vikið held ég að vogin sé mér aðeins hagstæðari en þetta var nú kannski ekki rétta leiðin til þess.
Svo hafa dagarnir liðið hratt í danaveldi. Á sama tíma á næsta ári verðum við flutt heim, undarlegt að hugsa til þess. Við fengum gómsæt ber beint úr Karlsármóunum send til okkar um daginn. Þau fóru beint í frost og verða hituð með ísnum um jólin. Mmmm.. Á næsta ári komumst við sjálf út í mó.
Svo hef ég verið að klára sumarverkefnin eitt af öðru, þannig að ég sé framá rólega tíma framundan, spurning um að fara að byrja á jólakortunum?
lesefni
Ég kom við á bókasafninu í skólanum í dag áður en ég fór í geeky SQL tíma og fann þar hina fínustu bók.. reyndar ekki um SQL .. heldur heitir hún "Layout - n. an arrangement of parts ect. according to a plan" og fjallar um grunngildi grafískrar hönnunar; nefnilega griddið og "form follows function". Sjaldan of oft kveðin sú vísa.
Skemmtilegt finnst mér líka hvernig bókin er prentuð, bæði húðaðan, óhúðaðan og endurunninn pappír, með góðu indexi aftast og skemmtilegri lakkáferð á viðeigandi stöðum.. mmmm..
Það var heldur skemmtilegra að fletta þessari bók í tíma í dag heldur en kennslubókinni.
Lorem ipsum er sooo 2001
Ég nota Lorem ipsum gervitextann mjög mikið í layout vinnu til að sýna blokk af texta án þess að vera trufluð af innihaldi hans. Ég rakst hins vegar á "Lorem Ipscream" sem er frekar krúttleg síða til að finna þannig texta.
Vanillubragðið er best.
Nýi fjölskyldumeðlimurinn
Holy mother of Jesus hvað hún er falleg.

Nýr vefur Ekta fisks + smá greining

Á laugardaginn sendi ég í loftið nýja vefinn fyrir Ekta fisk sem ég hef verið að vinna núna síðsumars. Mig langar að segja svolítið frá því hvernig ég vann hann, því það er búið að vera mjög lærdómsríkt og skemmtilegt ferli.
Í raun hef ég unnið að öllum hliðum þessa vefs. Til að byrja með má nefna vinnslu efnisvals og veftrés út frá greiningu á stöðu, og ekki síst sérstöðu, fyrirtækisins á markaði. Ég hef reyndar góða þekkingu á þessu fyrirtæki þar sem bróðir pabba rekur það, og ég vann þar mikið í minni æsku í salfiski. Þar má segja að ég hafi kynnst kúltúrnum í fyrirtækinu en það er ótrúlega mikilvægt atriði þegar kemur t.d. að mörkun fyrirtækja, og vefurinn er stórt atriði í því.
Einnig að skrifa texta sem er vænn fyrir leitarvélar jafnt sem lesendur, skrá nýja hýsingu, breyta DNS stillingum, búa til netföng og setja upp blogg kerfi, sem sér um að fóðra nokkrar síður af efni sem kúnninn getur sjálfur uppfært.
Síðurnar sjálfar eru skrifaðar í xhtml og php, þar sem include skipunin er óspart notuð til að minnka endurtekningar á efni. Til dæmis er valmyndin lesin úr einni og sömu skránni, en glöggir sjá að hún breytist eftir því hvar maður er staðsettur í vefnum. Með því að gefa hverri síðu sérstakt nafn veit "valmyndaskráin" hvar maður er staddur og getur því sýnt þær undirsíður sem búið er að skilgreina. Kannski efni í aðra og nördalegri bloggfærslu.
Einnig kemur javascript við sögu sem og tungumálið sem Movable Type notar í sínum template-um. Svo er smá hluti vefsins lesinn úr xml skrá, nefnilega söluaðilarnir. Í dag er skráin lesin beint eins og hún leggur sig, en auðveldlega gæti ég sett upp skipanir sem næðu í upplýsingar um hverja verslunarkeðju fyrir sig. Ég ætlaði fyrst að útbúa Íslandskort í flash og lesa xml-ið þar í gegn en ég sá ekki alveg tilganginn og held að þetta sé þægilegra í svona lista. Kemur kannski seinna ef þörfin er mikil (...á því að hafa eitthvað sveitt).
Næstu skref er að setja inn meira efni og skoða þær ábendingar sem hafa komið fram, því strax á sunnudaginn komu bæði pantanir og komment um vefinn, sem er bara frábært. Ábendingar eru vel þegnar.
Ég notaði Coda ritilinn alfarið við að skrifa vefinn, hann er hýstur hjá Bluehost í USA, nýju merkin fyrir Ekta fisk og Ekta rétti voru teiknuð hjá Stíl á Akureyri. Sérstakar þakkir fær svo tölvunarfræðingurinn á heimilinu fyrir að hafa ávallt svör við misgáfulegum spurningum sambýliskonunnar. :)
Það má segja að ég hafi gefið upp öndina...
Stundum getur maður bara ekki staðist það. Ég er búin að horfa á þetta tilboð í nokkra daga, kíló af andabringum á 100 kall. Þrjár stórar og feitar ferskar bringur í pakka.
Ég ákvað að kaupa í sunnudagsmatinn.
Og sem þær voru góðar, Mmmm,.. ein og hálf var nóg ofaní fjölskylduna. Krydduð með salti, pipar og timjan, steikt á grillpönnu til að byrja með og svo inni í ofni. Meðlætið var grænmeti grillsteikt uppúr hunangi; gulrætur, sveppir, epli, paprika, laukur, ásamt bökuðum kartöflubátum. Hún smakkaðist dásamlega þó svo sonur minn hafi ekki verið sammála, en hann á aðeins eftir að þróa matarsmekkinn sinn.
Strax í gærkvöldi fór ég að finna smá ónot í maganum en vaknaði svo í nótt við að ég þurfti bara nauðsynlega að skila einhverju frá mér.. upp..
..og þar fór öndin.
Innyflin eru semsagt búin að vera á hvolfi í dag, óskemmtilega. Svona fyrir ykkur sem viljið vita.
Reyndar sluppu strákarnir báðir við þetta, annar borðaði aðallega eftirmatinn og ætli hinn hafi ekki svigað framhjá rjóðustu bitunum.
Þetta er reyndar ekki í fyrsta skiptið sem ég fær í magann eftir að hafa borðað kjöt hérna, við erum eiginlega hætt að kaupa rautt kjöt og sérstaklega ekki þýskt kjöt eftir skandalinn sem varð hérna í fyrra. (Þá komst það upp að matvælaeftirlitið var í lamasessi, hafði engin fjárráð og fáa starfsmenn, og nokkrir gámar af tveggja ára gömlu kjöti biðu við þýsku landamærin eftir áköfum búðareigendum. Danir voru með æluna í hálsinum í nokkra mánuði). Yfirleitt kaupi ég danskt lífrænt hakk og einstaka sinnum danskar svínalundir. Kannski er ég með einstaklega ofverndaðan maga.
Ég þarf allavega að kíkja betur á umbúðirnar á þessum blessuðu andabringum í næstu búðarferð, kannski stendur í smáu letri að þessum öndum hafi verið slátrað í austurlöndum fjær og fluttar á fleka til Þýskalands þar sem þær voru geymdar í ókældu vöruhúsi áður en þær voru fótósjoppaðar að utan og sendar í Bilka handa grunlausum og gráðugum kjellingum sem horfa á verðmiðann í stað innihaldslýsingarinnar.
Kannski var þetta bara einhver pest sem er að ganga, vonandi því þá á ég eina og hálfa gómsæta andabringu í frystinum. En sennilega kemst ég aldrei að því, og á meðan liggur öndin frosin undir grun.
Það er nefnilega svo gjarnt með tilboðsvörur hérna að kjúklingabringurnar eru kannski frá Brasilíu eða Indonesíu (í alvöru, ég sá það einusinni) og þá eru þær náttúrulega bara á túkall stykkið. Lambakjöt er ekki hægt að fá nema Nýsjálenskt og mér finnst eitthvað rangt við að versla vöru sem var alin hinumegin á hnettinum. En sennilega er það bara ég.
Ég held að landbúnaðarvöruframleiðendur (er þetta orð?) á Íslandi þurfi ekkert að óttast þó svo það verði opnað fyrir markaðinn með erlendar landbúnaðarvörur heima, ef íslensku vörurnar eru vel merktar þá munu þær alveg halda sínum sessi því gæðamunurinn er svo mikill að hann réttlætir verðmuninn.
0


RSS veita