verslunarleiðangur

Sumarhýran er að koma inn þessa dagana þar sem ég er að skila verkefnum hverju af öðru. Að því tilefni skrapp ég niðrí bæ aðeins í dag og keypti mér golfskó og golfjakka af því það var svo fín , kostaði hvort um sig 399DKK sem er eiginlega nærri því gefins. Maður kom nú ekki með golfsettið út fyrir ekki neitt, reyndar hef ég varla snert á því, enda ekki verið tími fyrir ferðalögum, sumarfríi frá dagmömmunni, gestagangi eða rigningu. Reyndar náði tengdapabbi að viðra það þegar þau komu og það var ljómandi gott.
En... ef sumarið nær fram til loka október eins og í fyrra þá er nægur tími til að láta græjurnar koma að góðum notum.

Svo eru önnur kaup framundan, ný myndavél. Þessi sem við eigum hefur dugað vel og tekur ágætis myndir en mikið óskaplega langar mig að ganga aðeins lengra og eiga eina SLR digital vél, er að horfa á Canon EOS 400D sem, með betri linsu, er örugglega alveg afbragð...


Föstudagur 24. ágúst 2007 kl. 20:16
Flokkað sem heimilið. Þar eru 57 færslur.

/ Álit

Jonni:

Dagný ... Canon EOS 400D er alveg málið. Ekki hika við að taka skrefið yfir í SLR vél ef þú á annað borð ert búin að vera svona dulleg í vinnunni ;)

25.08.07 09:12


Kristjana:

hæ músla, ég var að kaupa mér cannon EOS 30d og hún er ÆÐI!!! mæli með henni, engin spurning að taka skrefið og gera þetta almennilega...það er svo gaman að geta tekið flottar myndir.

Knús til Köben...langar þanngað!!!

25.08.07 21:09