tíminn og ég - svona síðsumars

Ó sumar, hvert hefurðu farið? Ég var að tékka á því í gær hvenær skólinn byrjar og komst að því ég á að byrja 20. ágúst.. djís.. mér finnst þetta allt of snemmt. Við verðum í Barcelona þann dag, eða komum heim mjög snemma um morguninn reyndar og ósofin og næsta dag fer stráksi í leikskólann og ég býst við að ég eða Óli verðum með honum eitthvað þar í aðlögun. Fyrsta skólavikan er nú heldur ekkert voðaleg, reyndar skólinn í heild sinni ekki heldur - fer svona eftir því hvað maður vill uppskera sjálfur. Ég þarf nú að vera svolítið dugleg að vinna til að græða eitthvað á þessu.
En ég hélt samt að sumarið yrði svolítið lengra, það er svo margt sem ég á eftir að gera...Til dæmis.. senda myndir í framköllun og raða í albúmin (búin að kaupa þau) og í scrappið hans Danna. Ég er enn á árinu 2005 að velja myndir til að stækka en sem betur fer get ég sent þær beint úr iPhoto yfir til Shutterfly.
Svo ætlaði ég alltaf að setja uppskriftirnar mínar inn í Connoisseur uppskriftaforritið sem er þrusufínt og þrælskemmtilegt. Ég ætlaði líka að kaupa striga og akrýlmálningu og reyna að mála kannski eitthvað. Um daginn keypti ég líka nokkra boli á mig og Danna á threadless og ég ætlaði að græða smá á því með því að setja myndir af okkur inná.. ekki búin að því.. Svo auðvitað ætlaði ég að ná af mér nokkrum kílóum, svona vetrarforða sem er farinn að verða heilsárs...úff.. Það vantar ekki skokk- eða hjólaleiðirnar, nú eða hollustuna sem er í boði, vantar bara smá spark í rasss.
Svo er ég með nokkur vinnuverkefni í gangi á fullu sem rétta kortið aðeins af og nokkur gæluverkefni sem mig langaði alltaf að byrja á.. svo eru það tengslanetin sem þarf að sinna og prófílar að setja inn og breyta og bæta.. dæmi: Hönnunarvettvangur, kvennaslóðir, tengjumst.is (ekki búin að setja neitt inn þar, er að hugsa málið með það), Virb (nokkurn vegin myspace nema bara ekki myspace því ég þoli ekki myspace!)
EN.. þetta er víst endalaus túdú listi og það gerist sennilega ekkert nema maður geri eitthvað.


Sunnudagur 12. ágúst 2007 kl. 19:40
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

baddy systir:

það er greinilega nóg að gera hjá öllum!!!:D

12.08.07 23:58


daia:

já, og svona þegar ég hugsa um það þá er bara leiðinlegt ef maður hefur ekkert að gera.. ég held að það hafi aldrei komið fyrir mig!

15.08.07 18:29