Iceland Express ekki alveg í sambandi !

Ég gat ekki annað en brosað út í annað þegar ég sá þennan markpóst frá Iceland Express áðan:

icelandexpress.jpg


Sumarið sem er að líða er búið að vera það blautasta í Danmörku í 30 ár, heyrði ég í fréttunum í morgun, og það þriðja blautasta frá 1874. Gærdagurinn var sá fyrsti sem ekki rigndi í tvær vikur.
Og hitinn maður, já það voru 11 gráður heima í hádeginu í dag.
Það er nú búið að vera aðeins þurrara uppi á Íslandi, kannski er þetta auglýsing síðan í fyrra, en allavega vona ég að fólk spái aðeins í hvert það ætlar að fara ef það ætlar að flýja rigninguna á Íslandi (í Reykjavík) en hlusti ekki á bullið í IE.


Fimmtudagur 30. ágúst 2007 kl. 12:17
Flokkað sem danmörk. Þar eru 73 færslur.

/ Álit

baddy systir:

já og svo er sumarið í reykjavík búið að vera eitt það besta í háa herrans tíð!!! þetta er örugglega síðan í fyrra!! hehee

31.08.07 18:29


almar:

hehe, var einmitt að koma úr kuldanum í DK yfir í hlýjuna á íslandi. 14° þar eru ekki einsog 14° hér.

31.08.07 21:59


Gunn:

eitt rigningarmesta sumar á írlandi í mörg ár. rigndi upp áhver einasta dag í meira en 50 daga ...

11.09.07 21:14