hitinn maður

weather.jpgÉg er aftur sest fyrir framan tölvuna, eftir dágott sumarfrí með ferðalögum sem þið getið lesið ykkur til um hér fyrir neðan. Núna er sólin hins vegar farin að skína sem skærast (og það er sko miklu heitara en myndin sýnir) og ég bara hreinlega varð að bregða mér í bikiníið og út í sólina í hádeginu til að jafna aðeins bóndafarið á kroppnum.
Ég bara gat ekki setið lengi úti svo að ég settist aftur fyrir framan tölvuna en hugsa að ég fengi nú örugglega marga kúnna ef þeir vissu hvernig ég er klædd fyrir framan tölvuna... haha, allavega er vinnufélaginn ekkert að kvarta yfir því að vera með stelpu á bikini í vinnunni.. það er vonandi í fyrsta sinn! ahemm


Fimmtudagur 09. ágúst 2007 kl. 10:47
Flokkað sem danmörk. Þar eru 73 færslur.

/ Álit

baddy systir:

má ég fá smá!!! það er ekki búið að vera nógu gott veður hér og þá daga sem veðrið er mjög gott þá er ég að vinna!! það er eiginelga bara kominn haustfílingur í mann hérna!

11.08.07 01:45