Brall og Bilka á miðvikudegi
Við erum í rólegheitum heima þessa fyrstu daga vikunnar, Danni er búinn hjá dagmömmunni og á morgun er fyrsti dagurinn í leikskólanum. Það er samt svolítið erfitt að vera bara heima og hafa engann til að leika við nema tölvusjúka foreldra. Við erum búin að skiptast á að vera að vinna og að leika. Í morgun vorum við hins vegar alveg að krepera, rok og rigning úti, Óli að vinna, svo við mæðginin ákváðum að fara í toys'r us og kaupa okkur leir og tilheyrandi verkfæri. Þegar við komum var lokað vegna talningar, til klukkan þrjú - just our luck. Þegar syninum var tilkynnt að þá yrðum við bara að fara heim komu fram hörð mótmæli úr aftursætinu - ALLT er betra en heim!!
Svo við fórum í Bilka. Við reynum að fara ekki í Bilka þessa dagana því það er brjálæði þar í gangi, árleg afmælisvika (fødselsdagsfest) sem varir í tvær-þrjár vikur. Þá eru bílastæðin full og allar innkaupakerrur uppteknar. Vinkona mín (dönsk) úr hverfinu var miður sín eftir sunnudagsbúðarferð þar sem hún sá fólk slást - ofbeldi semsagt - yfir ódýrum barnakuldagöllum.
En við fórum samt. Traffíkin í hádeginu á miðvikudegi var eins og á góðum laugardegi. Bara rugl. Við keyptum okkur jarðaber, þýsk reyndar þar sem danska uppskeran er ónýt vegna veðurs :/ Ég ætlaði reyndar að kaupa bara einn bakka af jarðaberjum en þar sem einn kostaði 26kr en tveir saman voru á 20kr þá tók ég auðvitað tvo. Þau smökkuðust fínt.
Við skoðuðum líka Lego en það er 40% afsláttur af öllu Legoi, þá fékk stráksi kassa með 200 kubbum (litla stærðin) á 47kr og ég keypti tvær jólagjafir. Þetta eru sennilega verð sem eiga ekki eftir að sjást í dótabúð á skerinu. Alveg á ég eftir að sakna þess að geta keypt hlutina á eðlilegu verði.
Kannski er engin furða að fólk flykkist í búðina þegar svona verð eru í gangi. Gott ef ég heyrði ekki íslensku bregða nokkrum sinnum fyrir.
Flokkað sem danmörk. Þar eru 73 færslur.
/ Álit
Guðrún Erla:
Hæ hæ
Þú skal njóta þess að geta keypt Lego og önnur leikföng fyrir Danna í Danmörku því ég get lofað þér því að það er margfalt dýrara hérna á Íslandinu góða. Sé mikið eftir því að hafa ekki keypt meira af dóti til að gefa í gjafir og sett í gáminn þegar við fluttum.
Mikið söknum við nú Stavnsvej og ykkar allra, skilaðu góðri kveðju frá mér
Guðrún Erla ( sem er með pínu heimþrá til Stavnsvej)



RSS veita