Iceland Express ekki alveg í sambandi !

Ég gat ekki annað en brosað út í annað þegar ég sá þennan markpóst frá Iceland Express áðan:

icelandexpress.jpg


Sumarið sem er að líða er búið að vera það blautasta í Danmörku í 30 ár, heyrði ég í fréttunum í morgun, og það þriðja blautasta frá 1874. Gærdagurinn var sá fyrsti sem ekki rigndi í tvær vikur.
Og hitinn maður, já það voru 11 gráður heima í hádeginu í dag.
Það er nú búið að vera aðeins þurrara uppi á Íslandi, kannski er þetta auglýsing síðan í fyrra, en allavega vona ég að fólk spái aðeins í hvert það ætlar að fara ef það ætlar að flýja rigninguna á Íslandi (í Reykjavík) en hlusti ekki á bullið í IE.

Fimmtudagur 30. ágúst 2007 kl. 12:17 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 3

verslunarleiðangur

Sumarhýran er að koma inn þessa dagana þar sem ég er að skila verkefnum hverju af öðru. Að því tilefni skrapp ég niðrí bæ aðeins í dag og keypti mér golfskó og golfjakka af því það var svo fín , kostaði hvort um sig 399DKK sem er eiginlega nærri því gefins. Maður kom nú ekki með golfsettið út fyrir ekki neitt, reyndar hef ég varla snert á því, enda ekki verið tími fyrir ferðalögum, sumarfríi frá dagmömmunni, gestagangi eða rigningu. Reyndar náði tengdapabbi að viðra það þegar þau komu og það var ljómandi gott.
En... ef sumarið nær fram til loka október eins og í fyrra þá er nægur tími til að láta græjurnar koma að góðum notum.

Svo eru önnur kaup framundan, ný myndavél. Þessi sem við eigum hefur dugað vel og tekur ágætis myndir en mikið óskaplega langar mig að ganga aðeins lengra og eiga eina SLR digital vél, er að horfa á Canon EOS 400D sem, með betri linsu, er örugglega alveg afbragð...

Föstudagur 24. ágúst 2007 kl. 20:16 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið / 2

Brall og Bilka á miðvikudegi

Við erum í rólegheitum heima þessa fyrstu daga vikunnar, Danni er búinn hjá dagmömmunni og á morgun er fyrsti dagurinn í leikskólanum. Það er samt svolítið erfitt að vera bara heima og hafa engann til að leika við nema tölvusjúka foreldra. Við erum búin að skiptast á að vera að vinna og að leika. Í morgun vorum við hins vegar alveg að krepera, rok og rigning úti, Óli að vinna, svo við mæðginin ákváðum að fara í toys'r us og kaupa okkur leir og tilheyrandi verkfæri. Þegar við komum var lokað vegna talningar, til klukkan þrjú - just our luck. Þegar syninum var tilkynnt að þá yrðum við bara að fara heim komu fram hörð mótmæli úr aftursætinu - ALLT er betra en heim!!
Svo við fórum í Bilka. Við reynum að fara ekki í Bilka þessa dagana því það er brjálæði þar í gangi, árleg afmælisvika (fødselsdagsfest) sem varir í tvær-þrjár vikur. Þá eru bílastæðin full og allar innkaupakerrur uppteknar. Vinkona mín (dönsk) úr hverfinu var miður sín eftir sunnudagsbúðarferð þar sem hún sá fólk slást - ofbeldi semsagt - yfir ódýrum barnakuldagöllum.

En við fórum samt. Traffíkin í hádeginu á miðvikudegi var eins og á góðum laugardegi. Bara rugl. Við keyptum okkur jarðaber, þýsk reyndar þar sem danska uppskeran er ónýt vegna veðurs :/ Ég ætlaði reyndar að kaupa bara einn bakka af jarðaberjum en þar sem einn kostaði 26kr en tveir saman voru á 20kr þá tók ég auðvitað tvo. Þau smökkuðust fínt.
Við skoðuðum líka Lego en það er 40% afsláttur af öllu Legoi, þá fékk stráksi kassa með 200 kubbum (litla stærðin) á 47kr og ég keypti tvær jólagjafir. Þetta eru sennilega verð sem eiga ekki eftir að sjást í dótabúð á skerinu. Alveg á ég eftir að sakna þess að geta keypt hlutina á eðlilegu verði.
Kannski er engin furða að fólk flykkist í búðina þegar svona verð eru í gangi. Gott ef ég heyrði ekki íslensku bregða nokkrum sinnum fyrir.

Miðvikudagur 15. ágúst 2007 kl. 15:59 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 1

tíminn og ég - svona síðsumars

Ó sumar, hvert hefurðu farið? Ég var að tékka á því í gær hvenær skólinn byrjar og komst að því ég á að byrja 20. ágúst.. djís.. mér finnst þetta allt of snemmt. Við verðum í Barcelona þann dag, eða komum heim mjög snemma um morguninn reyndar og ósofin og næsta dag fer stráksi í leikskólann og ég býst við að ég eða Óli verðum með honum eitthvað þar í aðlögun. Fyrsta skólavikan er nú heldur ekkert voðaleg, reyndar skólinn í heild sinni ekki heldur - fer svona eftir því hvað maður vill uppskera sjálfur. Ég þarf nú að vera svolítið dugleg að vinna til að græða eitthvað á þessu.
En ég hélt samt að sumarið yrði svolítið lengra, það er svo margt sem ég á eftir að gera...Til dæmis.. senda myndir í framköllun og raða í albúmin (búin að kaupa þau) og í scrappið hans Danna. Ég er enn á árinu 2005 að velja myndir til að stækka en sem betur fer get ég sent þær beint úr iPhoto yfir til Shutterfly.
Svo ætlaði ég alltaf að setja uppskriftirnar mínar inn í Connoisseur uppskriftaforritið sem er þrusufínt og þrælskemmtilegt. Ég ætlaði líka að kaupa striga og akrýlmálningu og reyna að mála kannski eitthvað. Um daginn keypti ég líka nokkra boli á mig og Danna á threadless og ég ætlaði að græða smá á því með því að setja myndir af okkur inná.. ekki búin að því.. Svo auðvitað ætlaði ég að ná af mér nokkrum kílóum, svona vetrarforða sem er farinn að verða heilsárs...úff.. Það vantar ekki skokk- eða hjólaleiðirnar, nú eða hollustuna sem er í boði, vantar bara smá spark í rasss.
Svo er ég með nokkur vinnuverkefni í gangi á fullu sem rétta kortið aðeins af og nokkur gæluverkefni sem mig langaði alltaf að byrja á.. svo eru það tengslanetin sem þarf að sinna og prófílar að setja inn og breyta og bæta.. dæmi: Hönnunarvettvangur, kvennaslóðir, tengjumst.is (ekki búin að setja neitt inn þar, er að hugsa málið með það), Virb (nokkurn vegin myspace nema bara ekki myspace því ég þoli ekki myspace!)
EN.. þetta er víst endalaus túdú listi og það gerist sennilega ekkert nema maður geri eitthvað.

Sunnudagur 12. ágúst 2007 kl. 19:40 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

hitinn maður

weather.jpgÉg er aftur sest fyrir framan tölvuna, eftir dágott sumarfrí með ferðalögum sem þið getið lesið ykkur til um hér fyrir neðan. Núna er sólin hins vegar farin að skína sem skærast (og það er sko miklu heitara en myndin sýnir) og ég bara hreinlega varð að bregða mér í bikiníið og út í sólina í hádeginu til að jafna aðeins bóndafarið á kroppnum.
Ég bara gat ekki setið lengi úti svo að ég settist aftur fyrir framan tölvuna en hugsa að ég fengi nú örugglega marga kúnna ef þeir vissu hvernig ég er klædd fyrir framan tölvuna... haha, allavega er vinnufélaginn ekkert að kvarta yfir því að vera með stelpu á bikini í vinnunni.. það er vonandi í fyrsta sinn! ahemm

Fimmtudagur 09. ágúst 2007 kl. 10:47 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 1