Skotsilfur - færir gamanið aftur í budduna

Skotsilfur_logo.gif

Skotsilfur
er nafnið á nýjum og spennandi vef sem var að fara í loftið, og fjallar um fjármál og peninga, (eins spennandi og það kann að hljóma). Mætti kannski segja að það sé vefur fyrir þá sem hafa áhuga á því að eiga peninga og eyða þeim á réttan hátt.
Það er nefnilega stórskemmtilegt að kaupa það sem manni langar í þegar maður hefur sparað lengi fyrir þeim og látið sig dreyma. Ég get ekki hugsað mér fyrir mitt litla líf að kaupa heimabíó og setja á raðgreiðslur, eða sjónvarp, eða utanlandsferð.. og vera svo að borga af því í marga mánuði þegar maður er löngu búinn að gleyma tilfinningunni fyrir því að eyða. Eina undantekningin sem við höfum gert var að taka 6 mánaða bílalán upp á 300þ þegar við keyptum Avensisinn en þá eyddum við líka hálfri millu af sparnaðinum okkar á móti.
Frekar vil ég spara fyrir hlutunum og þá auðvitað njóta þeirra ekki á meðan, og borga þá svo út í hönd og njóta þess í botn. (Þarna er kannski ástæðan komin fyrir því af hverju ég eignaðist ekki makka fyrr... ekki fyrr en eftir að við seldum íbúðina :s )


Það er eiginlega vonandi að Skotsilfur verði til þess að koma af stað smá neytendavakningu um það að það eru allir á höttunum eftir peningunum okkar en við erum þeir sem hafa valdið yfir þeim.. ennþá.. vonandi.


Miðvikudagur 18. júlí 2007 kl. 20:02
Flokkað sem heimilið. Þar eru 66 færslur.

/ Álit

Mamma:

Það var mikið að það kom einhver fram með eithvað vit. Þú ætti að sjá nýjustu auglýsinguna í ríkissjónvarinu.... Kauptu fartölvu á raðgreiðslum fáðu hana strax en byrjaðu ekki að borga fyrr en í haust.... Ég ætla ekki einusinni að nefna hvaða tölva þetta er. Það er allt gert til að plokka peninga af þeim sem minnst eiga.

20.07.07 16:10