í útilegu...

Það er ferðalagahugur í okkur. Við fórum um helgina upp til Skagen, 2.5 klst akstur norður eftir Jótlandi, og gistum í tjaldi í eina nótt. Við fundum dásamlegt tjaldstæði í fallegu rjóðri rétt við ströndina og ef hitinn hefði verið 10 gráðum meiri væri ég ekki komin heim ennþá. Þetta var nokkurn vegin góð íslensk útilega, flíspeysu- og cupholderstólaútilega. Helga Möller ómaði í hausnum á mér allan tíman með langið "í útilegu".. aldrei að vita nema ég kaupi lagið á tonlist.is áður en við förum í næstu útilegu og setji inn á ipodinn, því ég verslaði mér útvarpssendi á ipodinn um daginn þannig að geti hlustað á ipodinn í gegnum útvarpið í bílnum (og hlaðið ipodinn í leiðinni).

Við erum nefnilega að horfa á hvernig viðrar fyrir tjaldferð í Þýskalandi í vikunni, en við nennum ekki alveg að vera í miklu votviðri, auk þess þyrftum við líka að finna eitthvað skemmtilegt að skoða eða gera þarna niðurfrá... það er ekki víst að sonur minni leyfi mér að sitja og lesa Potter allan daginn þó ég væri alveg til í það sjálf.

Við erum líka búin að panta okkur ferð til Barcelona um miðan ágúst þar sem við ætlum að skoða verk Gaudis í nokkra daga. Það er nefnilega flogið beint frá Árósum til Barcelona (reyndar til flugvallarins í Girana sem er í 1.5 tíma akstri frá borginni). Vonandi að við fáum svolitla sumarsól þar og eins og eina freknu eftir sumarið.

Vonandi fáum við líka gesti um verslunarmannahelgina ;)


Mánudagur 23. júlí 2007 kl. 22:23
Flokkað sem samfélag. Þar eru 49 færslur.

/ Álit

Eva Hrönn:

Láttu mig vita ef þú vilt góð tips um BCN;)

Kveðja,
Eva Hrönn

24.07.07 00:32


Hanna sys:

ég verð hjá ykkur um versló.... í huganum! Vildi óska að ég kæmist í alvöru...

29.07.07 16:03


daia:

Hanna: ég skal búa um þig, þá verður þetta ennþá raunverulegra ;)
Eva Hrönn: já það væri frábært að fá smá info um það sem maður má ekki missa af... og nær að sjá á 3 dögum... sendi þér meil..

30.07.07 20:48