vinnuvika
Við erum nýbúin að kveðja gestina okkar góðu svo þessi vika verður vinnuvika á skrifstofunni. Við erum búin að búa um okkur í stofunni heima, Óli í fjarvinnu frá gamla djobbinu og ég í ótal mismunandi verkefnum. Þetta er gott 'office space' verð ég að segja; bakkelsið gott á kaffistofunni, alvöru slagur um vinnustaða tónlist og óþarfi að fara úr náttfötunum eða greiða sér. ;) Við höldum hvoru öðru líka vel við efnið,
Í gær var þáttur á DR1 um menn frá Palestínu sem hlaupa yfir til Ísrael til að vinna. Það fær mann aðeins til að hugsa um hvað maður hafi eiginlega gert til að verðskulda þessi notalegheit.
Og auðvitað þegar maður ætlar sér að sitja við tölvuna brýst sólin fram úr skýjunum, þaðan sem hún hefur falið sig alla síðustu viku, alveg dæmigert!
Á eftir fer ég á fund með dönskum kúnna, þeim sem við gerðum lokaverkefni annarinnar í skólanum fyrir, og reynum að setja verðmiða á það að klára vefinn fyrir hann. Það verður áhugaverður fundur því þessi kúnni talar ekki dönsku heldur 'jósku' og maður nær kannski fimmta hverju orði af því sem hann segir. Það er ágætis heilaleikfimi.
Eftir þessa viku fer Danni í 3. vikna frí og við eigum eiginlega eftir að plana hvað við gerum á þeim tíma, hvort við keyrum niður til Þýskalands í smá ferðalag, tökum lest eitthvert út í buskann eða fljúgum til Barce eða hvað... það er allt hægt, og er það ekki dásamlegt?
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur.
/ Álit
já þetta er kosturinn við það að búa á meginlandi Evrópu...alltaf hægt að skreppa!

