meiri ferðalög..
Núna er síðasta sumarfrís vikan okkar byrjuð og við erum búin að bíða í tæpa viku eftir að það stytti upp, núna þýðir það ekkert lengur. Við ákváðum í dag að leggja í hann á morgun til Þýskalands, leyfa Avensis aðeins að þenja sig á þýsku hraðbrautinni þar sem meðalhraðinn er 130km/klst. Við ætlum að skoða Playmo skemmtigarð sem er frekar sunnarlega í Þýskalandi, við Nürnberg, rúmlega 8klst akstur. Kannski sem betur fer er skýjað og undir 20 stiga hita. Fínt veður fyrir bílferð. Við eigum bókað herbergi á 4 stjörnu hóteli í borginni, undarlegt nefnilega því Óli hringdi í nokkur gistiheimili og með sinni menntaskólaþýsku komst hann að því að það var allt uppbókað. Hins vegar voru nokkuð mörg hótel með laust og það mun ódýrari en gistiheimilin.. Semsagt, dásamlegt herbergi í tvær nætur fyrir 12þ kall með þýsku sjónvarpi, nettengingu, innanhússundlaug og nokkrum veitingastöðum.
Grín á íslenskan mælikvarða.
Semsagt, mikið ferðalag framundan. Veit ekki hvernig sá yngsti á eftir að taka í það að vera bundinn niður svona lengi - að sjálfsögðu teygjum við úr okkur eftir þörfum en til vara erum við búin að fá lánaðan ferða dvd sem er fest á hnakkapúðann (oh, mig langaði alltaf svo til að vera með sjónvarp í bílnum þegar ég var lítil) og ég ætla að kynna fyrir honum TRANSFORMERS, held að hann eigi eftir að fíla hann og ná að eyða svona hálftíma í að setja hann saman. Ég kannski pakka honum inn áður en ég gef honum hann, það gefur okkur 10 min í viðbót.
En annars er hann ósköp ljúfur í bíl, það er ekki það.
Við rennum svo heim á fimmtudaginn, mig langar nú smá til að skoða verðlagið í suður Þýskalandi svona áður en við förum.. en það er spurning hvort þeir feðgar hafi þolinmæði í það.
En núna þarf ég að fara að smyrja nesti. án gríns.
í útilegu...
Það er ferðalagahugur í okkur. Við fórum um helgina upp til Skagen, 2.5 klst akstur norður eftir Jótlandi, og gistum í tjaldi í eina nótt. Við fundum dásamlegt tjaldstæði í fallegu rjóðri rétt við ströndina og ef hitinn hefði verið 10 gráðum meiri væri ég ekki komin heim ennþá. Þetta var nokkurn vegin góð íslensk útilega, flíspeysu- og cupholderstólaútilega. Helga Möller ómaði í hausnum á mér allan tíman með langið "í útilegu".. aldrei að vita nema ég kaupi lagið á tonlist.is áður en við förum í næstu útilegu og setji inn á ipodinn, því ég verslaði mér útvarpssendi á ipodinn um daginn þannig að geti hlustað á ipodinn í gegnum útvarpið í bílnum (og hlaðið ipodinn í leiðinni).
Við erum nefnilega að horfa á hvernig viðrar fyrir tjaldferð í Þýskalandi í vikunni, en við nennum ekki alveg að vera í miklu votviðri, auk þess þyrftum við líka að finna eitthvað skemmtilegt að skoða eða gera þarna niðurfrá... það er ekki víst að sonur minni leyfi mér að sitja og lesa Potter allan daginn þó ég væri alveg til í það sjálf.
Við erum líka búin að panta okkur ferð til Barcelona um miðan ágúst þar sem við ætlum að skoða verk Gaudis í nokkra daga. Það er nefnilega flogið beint frá Árósum til Barcelona (reyndar til flugvallarins í Girana sem er í 1.5 tíma akstri frá borginni). Vonandi að við fáum svolitla sumarsól þar og eins og eina freknu eftir sumarið.
Vonandi fáum við líka gesti um verslunarmannahelgina ;)
Skotsilfur - færir gamanið aftur í budduna

Skotsilfur er nafnið á nýjum og spennandi vef sem var að fara í loftið, og fjallar um fjármál og peninga, (eins spennandi og það kann að hljóma). Mætti kannski segja að það sé vefur fyrir þá sem hafa áhuga á því að eiga peninga og eyða þeim á réttan hátt.
Það er nefnilega stórskemmtilegt að kaupa það sem manni langar í þegar maður hefur sparað lengi fyrir þeim og látið sig dreyma. Ég get ekki hugsað mér fyrir mitt litla líf að kaupa heimabíó og setja á raðgreiðslur, eða sjónvarp, eða utanlandsferð.. og vera svo að borga af því í marga mánuði þegar maður er löngu búinn að gleyma tilfinningunni fyrir því að eyða. Eina undantekningin sem við höfum gert var að taka 6 mánaða bílalán upp á 300þ þegar við keyptum Avensisinn en þá eyddum við líka hálfri millu af sparnaðinum okkar á móti.
Frekar vil ég spara fyrir hlutunum og þá auðvitað njóta þeirra ekki á meðan, og borga þá svo út í hönd og njóta þess í botn. (Þarna er kannski ástæðan komin fyrir því af hverju ég eignaðist ekki makka fyrr... ekki fyrr en eftir að við seldum íbúðina :s )
Það er eiginlega vonandi að Skotsilfur verði til þess að koma af stað smá neytendavakningu um það að það eru allir á höttunum eftir peningunum okkar en við erum þeir sem hafa valdið yfir þeim.. ennþá.. vonandi.
dagur í dk
Fundurinn niðri í bæ gekk bara ágætlega, alltaf gaman að vera boðið í mat á Jensens Bøfhus. Þegar ég var að taka mig til um hádegisleytið komu þrumur úr heiðskýru lofti, bókstaflega. Himininn var blár og fagur eins og á fögrum sumardegi en einhversstaðar leyndust þrumuský og innan skamms byrjaði að rigna. Þá var ekkert annað að gera en grípa regnhlífina með og hoppa í strætó.
Ég elska hvað það taka margir strætó hérna. Hann er líka fyndinn af því maður fer inn að aftan og borgar í vél (eða borgar ekki og vonar að strætóvörðurinn hoppi ekki uppí) eða stimplar miðann sinn og svo út að framan. Hérna er sko ekkert bílstjóratjatt, nei herre gud.
Í miðbænum var margt um manninn og gaman að hitta aftur þau Katrine og Kris sem ég var með í hóp í verkefninu. Gaurinn sem við hittum, markaðsstjórinn hjá einu stærsta "Renseríi" í dk, talaði alveg jafn litla dönsku og síðast. Ég skildi samt "skidegodt" og "for søren" (þó ég kunni ekki að skrifa það) en ég held að það viti bara á gott..
Einum fundi og massa kjúklingabringuborgara síðar fórum við út í góða veðrið, ég gat ekki staðið á mér að kíkja aðeins í H&M og Salling, komst svo að því að það er ekki hægt að kaupa golfkúlur í Salling eða Intersport, ég ætlaði sko að versla nokkrar handa Óla til að vega á móti öllum þessum H&M innkaupum, svo að ég keypti bara handa honum blóm. Og súkkulaði croissant í bakaríinu.
Ég vona að það verði mjög vont veður á morgun því ég ætla að vera mjög dugleg í vinnunni, svo enga sól inn um mína glugga!!
vinnuvika
Við erum nýbúin að kveðja gestina okkar góðu svo þessi vika verður vinnuvika á skrifstofunni. Við erum búin að búa um okkur í stofunni heima, Óli í fjarvinnu frá gamla djobbinu og ég í ótal mismunandi verkefnum. Þetta er gott 'office space' verð ég að segja; bakkelsið gott á kaffistofunni, alvöru slagur um vinnustaða tónlist og óþarfi að fara úr náttfötunum eða greiða sér. ;) Við höldum hvoru öðru líka vel við efnið,
Í gær var þáttur á DR1 um menn frá Palestínu sem hlaupa yfir til Ísrael til að vinna. Það fær mann aðeins til að hugsa um hvað maður hafi eiginlega gert til að verðskulda þessi notalegheit.
Og auðvitað þegar maður ætlar sér að sitja við tölvuna brýst sólin fram úr skýjunum, þaðan sem hún hefur falið sig alla síðustu viku, alveg dæmigert!
Á eftir fer ég á fund með dönskum kúnna, þeim sem við gerðum lokaverkefni annarinnar í skólanum fyrir, og reynum að setja verðmiða á það að klára vefinn fyrir hann. Það verður áhugaverður fundur því þessi kúnni talar ekki dönsku heldur 'jósku' og maður nær kannski fimmta hverju orði af því sem hann segir. Það er ágætis heilaleikfimi.
Eftir þessa viku fer Danni í 3. vikna frí og við eigum eiginlega eftir að plana hvað við gerum á þeim tíma, hvort við keyrum niður til Þýskalands í smá ferðalag, tökum lest eitthvert út í buskann eða fljúgum til Barce eða hvað... það er allt hægt, og er það ekki dásamlegt?
mér finnst rigningin "#$%!
Það er einhver þarna uppi að gera mikið grín að mér!
Mbl.is - Frétt - Aldrei jafn lítil júníúrkoma á Akureyri en nú
Mjög þurrt var á landinu í júní og raunar fádæma þurrt norðaustanlands, að sögn Veðurstofu Íslands. Aldrei hefur mælst jafnlítil úrkoma í júní á Akureyri og nú, en þar mældist mánaðarúrkoman aðeins 0,4 mm
Á meðan segir danska veðurstofan:
Det har aldrig regnet så meget i den første sommermåned, som den netop overståede juni 2007; 124.0 mm på landsplan. Dermed slår årets første sommermåned den gamle rekord fra 1946 med én millimeter.
Gott djók, nema að mér finnst þetta bara ekkert fyndið.
1


RSS veita