laugardagsverkefni
Loksins kominn laugardagur. Ég ákvað reyndar að eyða þessum laugardagseftirmiðdegi í vinnu, þar sem ég hef lítið komist í það í vikunni fyrir fjöruferðum og garðyrkjustörfum sem litla garðyrkjufræðingnum finnst ekkert lítið gaman að sinna.
Á morgun er hins vegar augljóslega frídagur. Ég hef ekki notið 17. júní hátíðarhalda nokkuð lengi með tilheyrandi fánum og gasblöðrum, á síðasta ári útskrifaðist Hanna systir, þar áður vorum við fyrir austan, þar þar áður var Danni skírður og þar þar þar áður var þynnka út af 5 ára júbílanta hátíð. Lengra nær bloggið ekki enda finnst mér ólíklegt að ég hafi nokkurn tíman keypt mér gasblöðru áður en stráksi minn fæddist, það er einhvernvegin ekki leyfilegt að fullorðið fólk gangi um með gasblöðrur - sem er sorglegt því það er örugglega mjög skemmtilegt.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 238 færslur.
/ Álit
gunna:
Verðum nú að hittast fyrst við erum báðar á Klakanum Tala nú ekki um svona í næsta húsi við hvor aðra! :o)
Eða ertu ekki hérna ennþá?



RSS veita