Pabbi

Það var fyrir algjöra tilviljun að ég kveikti á Rás 2 í iTunes núna áðan. Klukkan er náttúrulega bara rétt að verða 8 heima þannig að ég vissi að það væri sennilega ekki neitt af viti á Bylgjunni og ég er búin að vera að hlusta á mp3 bloggin og playlistann minn undanfarna daga þannig að eitthvað fékk mig til að tengjast inn á rás 2 og hver haldiði að hafi verið að tala við Gest Einar og Guðrúnu Gunnars .. enginn annar en hann PABBI minn!


Já, ég er ánægð með karlinn. Hann var að tjá sig um sín hjartans mál sem eru auðvitað sjómennskan og sambúðin við hvalina í og úti fyrir Eyjafirði, en þeim hefur fjölgað svo gríðarlega undanfarin ár og éta upp bæði þorskinn og fæðu hans. Hann vill að sjálfsögðu að við veiðum úr hvalastofnunum áður en þeir éta okkur út á gaddinn.


Það er hægt að hlusta á upptöku af þættinum á rás 2.

Fimmtudagur 28. júní 2007 kl. 07:50 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem fólk / 5

suddi

Veðrið hérna er hreinn viðbjóður, ég sem hélt að það væri alltaf gott veður í útlöndum en fussumsvei, rok og rigning a la Reykjavík á haustin.. og það í lok júní! Ojbara.
Á laugardaginn koma nefnilega mjög sérstakir gestir, systir hans Óla og maður ásamt tveimur hressum krökkum þeirra, og við vorum búin að panta hitabylgju með sólhatti og kokteil en ég býst við að það verði bara regnhattur og heitt (bragðbætt) kakó.

Miðvikudagur 27. júní 2007 kl. 15:18 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 0

afslöppunarblogg

Þá er kærkomið sumarfrí runnið upp. Í morgun fór hópurinn minn í munnlega prófið, sem fór þannig fram að við héldum kynningu á verkefninu í 15 mín og svo fékk hver og einn 20 min "hraðaspurningar" þar sem við vorum spurð út í námsefni vetursins. Við stóðum okkur alveg þrusuvel, fengum 11 í einkunn! Held að það sé bara hægt að vera ánægður með það.
Það er búið að vera vel heitt í dag, engin sól samt. Þegar ég kom heim kveiktum við bara á skjánum og horfðum á einhverjar súrar túristamyndir á Travel and Living stöðinni, sofnaði í sófanum... semsagt bara afslöppun!
Ég sótti svo Danna á hjólinu, yndislegt að hjóla þessa leið á hlýrabol - bara passa að hafa munninn lokaðann og vera ekkert að blása tyggjókúlur nema maður vilji eitthvað.. extra crispy.. - og við vorum komin heim fyrir kl 16. Það var svo mikið að gera hjá honum að hann sofnaði þegar við komum heim - þarf að fara að vekja hann svo hann sofni eitthvað í kvöld.
en semsagt, dásemdar sumarfrí framundan

Fimmtudagur 21. júní 2007 kl. 15:11 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem skólinn / 0

laugardagsverkefni

Loksins kominn laugardagur. Ég ákvað reyndar að eyða þessum laugardagseftirmiðdegi í vinnu, þar sem ég hef lítið komist í það í vikunni fyrir fjöruferðum og garðyrkjustörfum sem litla garðyrkjufræðingnum finnst ekkert lítið gaman að sinna.


Á morgun er hins vegar augljóslega frídagur. Ég hef ekki notið 17. júní hátíðarhalda nokkuð lengi með tilheyrandi fánum og gasblöðrum, á síðasta ári útskrifaðist Hanna systir, þar áður vorum við fyrir austan, þar þar áður var Danni skírður og þar þar þar áður var þynnka út af 5 ára júbílanta hátíð. Lengra nær bloggið ekki enda finnst mér ólíklegt að ég hafi nokkurn tíman keypt mér gasblöðru áður en stráksi minn fæddist, það er einhvernvegin ekki leyfilegt að fullorðið fólk gangi um með gasblöðrur - sem er sorglegt því það er örugglega mjög skemmtilegt.

Laugardagur 16. júní 2007 kl. 15:07 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1

á skerinu kalda

Ég er búin að vera í smá bloggpásu undanfarna daga. Ég ákvað í síðustu viku að drífa mig heim til að fara á jarðaförina hennar ömmu sem var á laugardaginn. Það var mjög falleg og kyrrlát athöfn og erfidrykkjan var líka ánægjuleg, alveg eins og amma hefði viljað hafa hana. Kvenfélagið útbjó bakkelsið og það var sko alveg rosalegt. Kvenfélög eru eitt af undrum veraldar hugsa ég.

Núna erum við Danni á Hauganesi hjá ömmu og afa og sá stutti er frekar sáttur með það, fullt af athygli og finnur sér alltaf eitthvað að brasa.

Ég náði að vinna svolítið í skólaverkefninu í gær, en á morgun eigum við að skila prófaverkefninu. Ég er í svo frábærum hóp í þessu verkefni sem ætlar að binda það og skila inn á morgun. Svo verður munnlegt próf í næstu viku.

Á meðan ég sit hérna á kalda klakanum í flíspeysu - inni - situr Óli í stofunni heima á hlýrabol með viftuna á fullu og svitnar eins og m.í.k. Hann er væntanlegur á föstudaginn í svalann og mér skilst að hann hlakki bara nokk til.

Mánudagur 11. júní 2007 kl. 21:22 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 4