textabreytirinn 2000.. hvar ertu?

Ég er búin að vera að skoða "open source content management" tól á netinu í kvöld vegna nokkurra vefsvæða sem ég er að fara að smíða. Ég er að leita að einföldu "forriti" þar sem maður breytir texta á síðu með því að logga sig inn. Þar ætti líka að vera yfirlit yfir allar þær síður sem bjóða uppá (fyrirfram ákveðnar) breytingar, skrifuðum í PHP eða JavaScript/AJAX, án þess að þurfa SQL. Ég hef minnstan áhuga á lausnum frá veffyrirtækjum eða dýrum forritapökkum (mambo, joomla eða bloggforritunum) því yfirleitt gera þau ráð fyrir mun fleiri fítusum en ég hef þörf fyrir og gera hlutina óþarflega flókna, tímafrekna og dýra.

Ég var að skoða Toko sem gæti verið það sem ég þarf en ég þarf að skoða það aðeins betur. Ef það eru einhverjar uppástungur þarna úti þá má alveg endilega stinga þeim að mér


Fimmtudagur 17. maí 2007 kl. 22:07
Flokkað sem tækni. Þar eru 60 færslur.

/ Álit

Valdís:

Ég vil benda á wiki-síður. Þar getur hver notandi a.m.k. valið sér skin á síðuna, hugsanlega má sérsníða það þannig að hægt sé að velja sér fleiri útfærslur. Aðalhugsunin á bak við kerfið er auðvelt utanumhald um texta og innihald. Spurðu Tryggva, hann setti upp wiki síðu fyrir spilahópinn okkar.

18.05.07 09:07


dagný:

Hæ Valdís, takk fyrir uppástunguna. Ég hef skoðað wiki síður svolítið og þær eru mjög góðar til að geyma og flokka upplýsingar en eru (held ég) ekki alveg það sem ég var að meina.. þarf kannski að skoða betur hvort og hvernig er hægt að aðlaga þær að þörfum kúnnans.
takk

18.05.07 21:25


freyja:

vó, skil ekkert.......

19.05.07 19:26


Tryggvi R. Jónsson:

Gæti þetta verið málið ?

http://www.google.com/a/

29.05.07 18:47