sorg á mæðradegi

Ég hefði getað kennt syni mínum mörg ljót orð í morgun þar sem hann sat í sakleysi sínu og horfði á Bangsímon og vini hans í sjónvarpinu á meðan ég kveikti á tölvunni, en þar sem það er mæðradagurinn í dag ákvað ég að halda í hlutverk mitt sem góð móðir og hvísla þessi sótsvörtu blótsyrði sem voru efst í huga mér. Ég ákvað líka að halda aftur af mér þá og segja ekki meira á blogginu en ég gæti staðið undir.


Ég á ekki til orð um þessa þjóð. Engin falleg orð amk. Íslenska þjóðin studdi þessa ríkisstjórn jafnvel þó hún hafi:

- sett Íslendinga á lista þeirra sem studdu stríðið í Írak, án þess að spyrja nokkurn. Stríð sem var sett af stað af græðginni einni saman og hefur valdið dauða og þjáningu þúsunda saklausra barna og fullorðinna og sett allt á endann í heiminum.

- Komið af stað óðaverðbólgu og himinháum vöxtum með breytingum á íbúðalánum og byggingu Kárahnjúkavirkjun, sem er stærsta umhverfisslys Íslandssögunnar.

- verið og sé á góðri leið með að gefa vinum sínum auðlindir þjóðarinnar, hverjir haldið þið að komi til með að kaupa Landsvirkjun, þegar (ekki ef) hún verður seld á smáaura.. þeir sem hafa mestan hag af hagstæðu rafmagnsverði: Alcoa! Og þeir spyrja ekki landeigendur eða borga þeim skaðabætur.. þeir bara drekkja þeim líka ef þeir eru með einhverja stæla.
Auðlindir þjóðarinnar er líka vatnið, sem við erum svo stolt af. Og með vatnalögunum, sem taka gildi í haust, er útséð að lækir og ár sem renna um landið mun verða verslunarvara og þar með eign örfárra, þvert á samþykktir Sameinuðu þjóðanna sem segja að grunnvatn megi ekki vera markaðsvara.

- úthýst skólatannlækningum þannig að börnin í landinu eru að brenna upp í munninum. Hvað varð um flúorskolunina á morgnana eins og í den tid? Tannlæknirinn minn sagði áður en ég flutti út að ég væri að fara með son minn á mun betri stað, því yfirleitt væri hann að eiga við börn á hans aldri þar sem önnur hver tönn er skemmd, eitthvað sem gerðist ekki hérna áður fyrr. Hann hafði rétt fyrir sér því einn af fyrstu bréfunum sem sonur minn fékk var boð í heimsókn til tannlæknis.

- þó hún hafi ofurtrú á álvæðingu í stað þess að skoða aðrar lausnir til að lyfta undir með landsbyggðinni (lægri flutningskostnað, minni skatta á fyrirtæki, nýsköpunarstyrkir og markaðsráðgjöf) eða hreinlega breyta kvótakerfinu sem er valdur af þessum vanda....
... og finnist það bara allt í lagi að selja alla þá orku sem við eigum til álbræðslu sem skilur engin verðmæti eða hráefni til að vinna með eftir sig í samfélaginu og fer með allan hagnaðinn úr landi. Auk þess sem virkjanirnar skilja eftir sig gríðarlega eyðileggingu bæði í landi og sjó. Ég hugsa til þess með hryllingi hvaða Kárahnjúkavirkjun á eftir að gera miðunum fyrir austan land þar sem Pabbi minn er að fiska af miklum dugnaði, eins og Guðmundur Páll Ólafsson náttúrufræðingur talar um í bókinni um Þjórsárver.


Ég skil ekki í fólki í þessu landi, að það sjái ekki mynstrið? Að fólk hugsi ekki á hvaða leið við erum að fara, finnist að Ísland sé alveg nógu stórt til hýsa allar þessar virkjanir.. að því finnist bara allt í lagi að borga 20% vexti, að við hugsum ekki um þá sem hafa orðið undir í samfélaginu.


Landið er klofið. Það verður því áfram stríð á Íslandi, barátta nýju kynslóðarinnar gegn þeirri gömlu, baráttu fyrir réttlátu samfélagi vs spillingunni, fjölbreyttu atvinnulífi með góðum tækifærum til mennta vs verksmiðjuvæðingu, milli upplýstra einstaklinga vs. þeirra sem loka eyrunum fyrir staðreyndum.


Það skásta í stöðunni núna væri að D listi og Samfylking myndi stjórn en þá þyrfti Samfylkingin heldur betur að halda í sitt fagra Ísland, nýja atvinnulíf og unga Ísland. En
miðað við hvernig Framsóknarmenn hafa hagað sér eftir kosningar í gegnum tíðina (hugsið Björn Ingi í borginni, sem þurfti að ráða utanaðkomandi menn í nefndir) þá er þeim alveg sama þó þeir hafi tapað nokkrum ráðherrum og verið rassskelltir. Ég spái því að þeir sjái engan sóma í því að bakka sig út heldur lýsi yfir miklum varnarsigri miðað við skoðanakannanir og haldi áfram í ruglinu. Ekkert stopp á spillingunni. Og sjöllum er alveg sama því þeir vita að þeir láta hvað best að stjórn miðað við það sem er í boði.


Sem móðir þá get ég bara ekki glaðst í dag, en þakka samt fyrir blómin frá syni mínum. Framtíðin er hans en ég segi það satt, ég hlakka ekki til að flytja heim.

tenglar:
- Verksmiðjuvæðing: 150 árum of seint

- Fortíðarhyggja eða framtíðarsýn


Sunnudagur 13. maí 2007 kl. 12:22
Flokkað sem samfélag. Þar eru 49 færslur.

/ Álit

Óli Helgi:

Já, gott að blómin glöddu þig. Þessar niðurstöður eru ekki skemmtilegar en vonandi kemur Samfylkingin smá viti í kollinn á Sjöllunum og myndar stjórn sem við getum verið sæmilega sátt við.

13.05.07 14:04