kosninga...blaaa..
Ég hefði ekki geta sagt það betur en birtist hér í grein eftir Stefán Jónsson, þjóðleikhússtjóra.
Við þurfum nefnilega að fara að drífa okkur niður í bæ til að kjósa, ég held að við þurfum nefnilega sjálf að sleikja frímerki undir kjörseðilinn og senda í kjördæmið okkar (og já, það verður hið konunglega Frikka frímerki! ;)
Og hvað á þá að kjósa.. ó men, ég veit það ekki. Eftir að ég las Draumalandið (ennþá heilaþvegin) snemma á síðasta ári þá ákvað ég að lemja því fast inn í hausinn á mér að kjósa ekkert annað en VG í næstu kosningum, annað væri bara vitleysa og minnisleysi. Svo kom Íslandshreyfingin sem átti að höfða til áskrifenda Sjálfstæðisflokksins en hún gerir það bara ekki, því miður. Það er svo margt við D listann sem fær fólk til að kjósa hann annað en að hann er "til hægri". Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að skilgreina sig sem "The Ísland" og þess vegna verður hann alltaf stærstur því hann höfðar til þjóðernishyggjunnar á því tungumáli sem Íslendingar skilja en geta ekki skilgreint. Og allir hinir flokkarnir verða þá óhjákvæmilega eitthvað útlenskt og Íslendingar eru eitthvað svo óttablandnir við það sem er útlenskt, ekki út af rasisma alls ekki, heldur af því að Ísland er bara svo langt í burtu, við heyrum aldrei hávaðann í hinum. Fyrir þá sem þekkja til erlendis (öðruvísi en að fara í viðskipta- eða verslunarferð) þeir vita að fólk er allsstaðar eins og við eigum ekki að vera að óttast það. Við eigum öll fjölskyldur, viljum börnunum okkar allt það besta, viljum eiga okkar rými og tíma til að gera það sem við viljum gera. Quality of life. ***
Ég sé það einmitt ekki fyrir mér að Sjálfstæðisflokkurinn myndi bjóða formönnum íhalds- eða frjálshyggjuflokka frá öðrum löndum á landsfundinn sinn eins og Samfylkingin gerði með Monu Sahlin og Helle Thorning-Schmidt. Mér finnst frábært að þær hafi komið, mikilvægt að eiga þessi samskipti við þær merku konur og þeirra innlegg var mjög þarft og gott mál inn í umræðuna, en það er bara eitthvað svo einstaklega óíslenskt að gera svona. Hinn venjulegi íslendingur segir ekki "ó-vá, merkilegar konur", heldur fer fyrst og fremst að hugsa um hvað það var leiðinlegt í dönskutímum og hvað sænskar myndir eru eitthvað svo boring.
Held ég. Svona er maður grunnur. En hvað veit ég. Kannski ekki.
Ef ég hugsa um íslenska fánann eins fallegur og hann er, þá finnst mér líka eitthvað eðlilegra að tengja hann við Sjálfstæðisflokkinn heldur en Samfylkinguna eða VG, þó það ætti alls ekki að vera þannig. Kannski er það bara þannig í hausnum á mér. Líka ef ég hugsa um kjörklefann þá er einhvernveginn eðlilegra að tjaldið sé í bláum lit (til að róa fólk niður væntanlega) af því það er meira íslenskt heldur en í rauðum eða grænum lit. Ég man reyndar ekki hvernig það er, vona að það sé hvítt, en ég man eftir þessari umræðu í skólanum um að kjörklefatjaldið hafi einhverntíman verið dökkblátt og það fór nett fyrir brjóstið á rauðhjörtuðu kennurnum mínum.
En einmitt þess vegna batt ég svolítið miklar vonir við Íslandshreyfinguna, að Ómar myndi ná til Íslendinga sem hafa Ísland í hjarta og æðum sér. Ísland er land þitt og allt það, en það virðist ekki vera að gerast. Stefnuskráin höfðar samt til mín, fólkið er örugglega allt hið vænsta, ég allavega þekki Jakob Frímann bara af góðu síðan ég vann í Bankastrætinu á sama stað og hann, en þetta hefur allt gengið frekar klaufalega fyrir sig, enda engin furða þegar tíminn er naumur, allir að bíða og í raun kraftaverk að þetta hafi gengið svona langt á engu fé og stuttum tíma. Mér fannst alltaf það hefði verið réttast af Ómari að gerast verndardýrlingur yfir Fagra Íslandi Samfylkingarinnar og verja það plagg með kjafti og klóm. Þá hefði orkan hans Ómars farið í að skrifa og miðla til okkar um hvað væri hægt að gera í þessu dásamlega fallega landi í stað þess að vera í öllum smámálunum sem fylgja svona framboði.
En aðal markmið Íslandshreyfingarinnar var að ná í grænu atkvæðin hjá Sjálfstæðisflokknum þá sýnist mér á öllu að það muni ekki gerast, þrátt fyrir góðan vilja.
Til dæmis skiptir myndmálið roohosalega miklu máli í því sambandi. Til dæmis munurinn á vefsíðum Sjálfstæðisflokksins og Íslandshreyfingarinnar þá er "Í" með útskýringu á merkinu sínu á forsíðunni, fín mynd og fín hugmynd en hún reynir á mann, maður þarf svolítið að stoppa við og pæla. "D" er hins vegar með fólk á forsíðunni, svona "fólk eins og mig og þig". Alvöru Íslendinga með yfirdrátt og í 66°N úlpu sem nær alltaf að redda hlutunum undir sterkri vernd pabba gamla sem á alltaf smá suðusúkkulaði í nesti. Pælið í því þegar þið kíkið á síðu Samfylkingarinnar (og reloadið til að fá mismunandi myndir), sem er með óskilgreinanlegt landslag, vissulega íslenskt en maður tengir ekkert meira, og jú líka tvenn pör af augum sem horfa ekki á mann heldur framhjá manni eða hörfa undan.
VG eru reyndar komnir með fólk á síðuna sína sem horfir á mann, en þeir eru líka búnir að vera í uppsveiflu skv. könnunum. Ef maður á að vera eitthvað að minnast á framsókn þá sé ég aðallega einhverja rollu vera að fljúga á stein (það mætti halda að markhópurinn þeirra væri aðallega fólk undi 18 -án kosningarétts!), fréttir um hvað allir hinir eru ömurlegir.. og gamla Búnaðarbankamerkið í "exbé útfærslu" nema að græni kallinn er að ganga í vitlausa átt, til fortíðar en ekki áfram til framtíðar. Hahaha..
Frjálslyndi flokkurinn nær hvergi augnsambandi á síðunni sinni, sama hvað maður reloadar oft, enda mundi ég ekki einusinni hvaða bókstaf þeir eru með og þurfti að leita í google að þeim.. segir sennilega meira um mig en þá.
Æji ég veit það ekki, það besta fyrir Ísland væri að fá ferska vinda í andlitið sem opna augun og fara að hugsa um heildarmyndina í öllum málum, ekki bara umhverfismálum og sjá hvað við erum að afreka og hvað við getum afrekað ótrúlega góða hluti. Mér er í raun alveg sama hvaðan góðir hlutir koma.
Og hvað á maður þá að kjósa?
ps. ástæðan fyrir þessari langloku er sú að ég er heima og á að vera að skrifa verkefni en ég sogaðist inn í þetta í staðinn fyrir í ísskápinn. En nú er ég búin að skrifa svo mikið að ég er orðin svöng...
og fyrst þú ert búinn að lesa alla leið hingað þá munar þig ekkert um að renna yfir greinina hans Stefáns sem ég linkaði í efst, hún er miklu styttri og skemmtilegri ;)
og pps. hvernig væri að það væri BANNAÐ AÐ TALA UM STEFNU ANNARRA FLOKKA EN SÍNS SJÁLFS í síðustu vikunni fyrir kosningar?
Flokkað sem samfélag. Þar eru 49 færslur.
/ Álit
Dagný, það þarf ekki að sleikja frímerki. Mætir bara með ökuskírteini eða eitthvað skilríki með mynd og fyllir út forna pappíra og Delacour reddar rest.
oohh.. djö.. :)
Veit heldur ekki hvað Óli segir ef þú ferð að sleikja afturendann á einhverjum úr kóngafjölskyldunni.



RSS veita