keypti loft

Ég er búin að vera að versla svolítið á netinu í kvöld en á þó ekki von á neinum sendingum með póstinum eftir þessa verslunarferð, svo undarlega sem það virðist. Ég er hins vegar hæstánægð með þessi kaup..
1. Endurnýjaði áskriftina að flickr.com og eins gott að ég fari að nýta áskriftina eitthvað að ráði og senda inn fleiri myndir - $24.99
2. Keypti leyfi fyrir forritinu coda sem er stórskemmtilegur html ritill fyrir makkann og auðveldar lífið heilmikið, gerir líka vinnuna skemmtilegri og smekklegri sem er mjög mikilvægt þegar maður á svona sæta tölvu. - $79
3. Keypti árs áskrift inn á iconbuffet, sem er bíttimarkaður með icon fyrir grafíknörda. Eiginlega eini "tölvuleikurinn" sem ég spila þessa dagana, stórskemmtilegt á sinn hátt. - $48

Svona er hægt að versla með "loft", maður þarf ekki alltaf að fá eitthvað áþreifanlegt í hendurnar og satt best að segja líður mér ákaflega vel yfir því að versla þessi hugverk.
Í raun gæti ég sagt að ég hafi líka borgað með lofti því hvaða verðskyn hefur maður svosem þegar maður stimplar bara einhverjar tölur inn í einhver box og fær svo "takk æðislega" póst frá einhverjum róbóta í útlöndum.


Miðvikudagur 30. maí 2007 kl. 21:47
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur.

/ Álit

baddy:

bíddu þarf maður að borga fyrir að vera með flickr?? aldrei kom það fram þegar ég fékk mér aðgang að þeirri síðu ....hummm /;s

31.05.07 01:03


Dagný Reykjalín:

neibb, þarft þess ekki en ef þú vilt hafa algerlega óheftan aðgang, þá geturðu uppfært. Hins vegar er þetta venjulega örugglega alveg nóg, þannig að ekki óttast :)

31.05.07 06:58