Hulda amma - minning
Hulda amma mín kvaddi í dag. Hún hefði orðið 93 ára núna í haust og varð alveg ótrúlega ern, en var orðin mikið slöpp núna síðustu mánuði. Hún var svo yndislega sterk og góð kona að það er leitun að annarri eins. Hún hafði húmorinn í lagi og var alltaf ung í anda og hafði svo mikinn áhuga á lífinu í kringum okkur, sérstaklega ef það fjallaði um kærasta eða börn. Hún átti ótal barnabörn og barnabarnabörn og var sennilega farin að týna tölunni á þeim öllum, en samt hugsaði hún jafnt til okkar allra og gerði ekki upp á milli nokkurs manns. Hún hafði yndi af því að segja sögur og sérstaklega sögur frá því hún var ung enda voru þær sögur ævintýrum líkastar fyrir litlar stelpur.
Hún fæddist árið 1914 og ólst upp fyrstu árin á torfbænum Kúgili í Þorvaldsdal, sem gengur upp úr Eyjafirði, en fluttist svo með fjölskyldunni í steinhús í Litla-Árskógi þegar hún var um 10 ára. Hún sagði okkur stundum frá því þegar hún bjó í torfbænum, hvað hún þoldi ekki þegar sængin hennar og hárið fraus fast við torfvegginn á vetrarnóttunum og hvað myrkrið gat orðið óbærilegt.
Það voru svona sögur sem fengu mann til að meta lífið á annan hátt.
Það voru sannkölluð forréttindi að eiga svona góða ömmu og eiga svo margar minningar um hana síðan hún var hress og kát. Ég veit að hún er glöð núna því hún er búin að bíða svo lengi eftir að fá að fara til Guðs og Afa.
Hvíldu í friði, elsku amma.
Flokkað sem fólk. Þar eru 15 færslur.
/ Álit
freyja:
Ég samhryggist þér Dagný mín. Amma þín var dugleg og góð kona sem skilaði sko sínu æviverki og vel það. Hún er kominn í faðm Jóhannesar núna :)
takk fyrir Freyja
Ég samhryggist þér Dagný mín.
Gíslína og Örri:
Elsku Dagný. Sendum þér samúðarkveðjur héðan úr Eyjum.
Hæ Dagný mín ég samhryggist þér alveg innilega, amma þín var svo góð og falleg kona, hitti hana ekki oft en man svo vel eftir henni þegar ég var flokkstjóri í unglingavinnunni á Hauganesinu hún var eitthvað svo indæl.
sendi þér knús frá Akureyri og spurning með hitting í Ásholtinu hjá systrum á meðan þú ert á fróninu frábæra
takk öll - þið eruð yndisleg.
K: Já, mikið væri gaman að hittast og sjá litlu skotturnar þínar, þó það væri ekki nema aðeins í bænum á 17. júní

