ég blogga til að gleyma

Ég er að reyna að ná úr mér bræðinni, ég fór út áðan með ipodinn og skokkaði einn hring með Broken Boy Soldier með Raconteurs í eyrunum. Ég held ég hafi aldrei skokkað jafn ákveðið og það var fínasta hreinsun. Núna held ég að ég hætti að velta mér upp úr þessu, eins mikið og þetta sökkar, og einbeiti mér að því hvað það er margt fallegt til í heiminum.

Svo syngur sonur minn líka svo fallega með Latabæ:


Sunnudagur 13. maí 2007 kl. 16:14
Flokkað sem fólk. Þar eru 14 færslur. / samfélag. Þar eru 49 færslur.

/ Álit

baddy systir:

þú getur allavegana huggað þig við það að systir þín kaus ekki gömlu ríkisstjórnina og að hún er að koma að heimsækja ykkur á MORGUN:D jeyj!!

13.05.07 17:20


Dagný Reykjalín:

já, fyrir það er ég glööööð! :) það verður svaka stuð hjá okkur

13.05.07 17:46