Hulda amma - minning

Hulda VigfúsdóttirHulda amma mín kvaddi í dag. Hún hefði orðið 93 ára núna í haust og varð alveg ótrúlega ern, en var orðin mikið slöpp núna síðustu mánuði. Hún var svo yndislega sterk og góð kona að það er leitun að annarri eins. Hún hafði húmorinn í lagi og var alltaf ung í anda og hafði svo mikinn áhuga á lífinu í kringum okkur, sérstaklega ef það fjallaði um kærasta eða börn. Hún átti ótal barnabörn og barnabarnabörn og var sennilega farin að týna tölunni á þeim öllum, en samt hugsaði hún jafnt til okkar allra og gerði ekki upp á milli nokkurs manns. Hún hafði yndi af því að segja sögur og sérstaklega sögur frá því hún var ung enda voru þær sögur ævintýrum líkastar fyrir litlar stelpur.
Hún fæddist árið 1914 og ólst upp fyrstu árin á torfbænum Kúgili í Þorvaldsdal, sem gengur upp úr Eyjafirði, en fluttist svo með fjölskyldunni í steinhús í Litla-Árskógi þegar hún var um 10 ára. Hún sagði okkur stundum frá því þegar hún bjó í torfbænum, hvað hún þoldi ekki þegar sængin hennar og hárið fraus fast við torfvegginn á vetrarnóttunum og hvað myrkrið gat orðið óbærilegt.
Það voru svona sögur sem fengu mann til að meta lífið á annan hátt.


Það voru sannkölluð forréttindi að eiga svona góða ömmu og eiga svo margar minningar um hana síðan hún var hress og kát. Ég veit að hún er glöð núna því hún er búin að bíða svo lengi eftir að fá að fara til Guðs og Afa.
Hvíldu í friði, elsku amma.

Fimmtudagur 31. maí 2007 kl. 22:01 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem fólk / 6

Finnum Madeleine!

Madeleine McCannÉg er búin að fylgjast með leitinni að Madeleine síðan fréttir komu af því að hún hvarf. Mér finnst þetta svo óhugnalegt mál, að einhver skríði inn og ræni sofandi barni, að ég fæ illt í hjartað þegar ég hugsa um það. Það er svo skelfilegt að það sé ekki hægt að rekja slóðir og eða vita hvar hún er niðurkomin.
Það eru ekki margir sem hafa ráð á því að koma af stað alheims auglýsingaherferð til að finna eitthvað, sem þó verður aldrei metið til fjár, sem einhver annar er að fela.

Þess vegna fannst mér svolítið undarlegt að sjá auglýsingu um keppni/ raunveruleika sjónvarpsþátt um mannránið á Andrew Goodis, þar sem konan hans biðlar til áhorfenda í móðursýkiskasti og heitir verðlaunum þeim sem tekst að leysa gátuna.

Þessar andstæður stinga mig svo mikið að ég veit ekki alveg hvað ég á að segja. Annars vegar er barni rænt frá foreldrum sínum í alvörunni og hins vegar er fullorðið fólk að setja á svið mannrán þar þátttakendur fá vísbendingar og geta svo unnið pening ef þeir vinna leikinn.
Hefði ekki verið manneskjulegra að búa til "leik", styrktan af hinum ýmsu fyrirtækjum þar sem markmiðið er að finna Madeleine, kemba Evrópu og þétta netið. Það er miklu meira challange fyrir auglýsingafólk, PR aðila, margmiðlunarfræðinga, markaðsfræðinga og sjónvarpsfólk og myndi lyfta ímynd styrktaraðila á ansi mikið hærra plan heldur en það er á í sögunni um Andrew Goodis. Fyrir utan það að þegar Madeleine finnst þá er það ekki bara sigur fyrir þann sem hana finnur heldur von fyrir mannkynið allt.

savemyhb.jpg

Fimmtudagur 31. maí 2007 kl. 08:58 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem fólk / 0

bara allt of sætt!

Fimmtudagur 31. maí 2007 kl. 08:43 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið / uppeldi / 0

keypti loft

Ég er búin að vera að versla svolítið á netinu í kvöld en á þó ekki von á neinum sendingum með póstinum eftir þessa verslunarferð, svo undarlega sem það virðist. Ég er hins vegar hæstánægð með þessi kaup..
1. Endurnýjaði áskriftina að flickr.com og eins gott að ég fari að nýta áskriftina eitthvað að ráði og senda inn fleiri myndir - $24.99
2. Keypti leyfi fyrir forritinu coda sem er stórskemmtilegur html ritill fyrir makkann og auðveldar lífið heilmikið, gerir líka vinnuna skemmtilegri og smekklegri sem er mjög mikilvægt þegar maður á svona sæta tölvu. - $79
3. Keypti árs áskrift inn á iconbuffet, sem er bíttimarkaður með icon fyrir grafíknörda. Eiginlega eini "tölvuleikurinn" sem ég spila þessa dagana, stórskemmtilegt á sinn hátt. - $48

Svona er hægt að versla með "loft", maður þarf ekki alltaf að fá eitthvað áþreifanlegt í hendurnar og satt best að segja líður mér ákaflega vel yfir því að versla þessi hugverk.
Í raun gæti ég sagt að ég hafi líka borgað með lofti því hvaða verðskyn hefur maður svosem þegar maður stimplar bara einhverjar tölur inn í einhver box og fær svo "takk æðislega" póst frá einhverjum róbóta í útlöndum.

Miðvikudagur 30. maí 2007 kl. 21:47 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 2

árás

Það er með ólíkindum að lesa færsluna hans Ómars þar sem segir frá fólskulegri árás sem hann varð fyrir.. ótrúlegt.

Miðvikudagur 30. maí 2007 kl. 17:49 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 0

dagurinn og síminn

Í dag er ég búin að fara Danmörkina endilanga, svo til. Ég er að vinna verkefni með tveimur úr skólanum, þeim Katrine og Kris og við erum með kúnna niðri í Rødekro sem við erum í raun að "re-branda". Markaðsgaurinn frá fyrirtækinu sótti okkur í morgun og við keyrðum niður eftir hraðbrautinni í nærri tvo tíma og vorum þá komin skuggalega nálægt þýsku landamærunum. Við skoðuðum mikið, tókum myndir og spjölluðum (á dönskunni auðvitað) og tókum svo lestina heim og ég var komin heim um sex leytið. Veðrið spillti ekki fyrir ferðinni, rúmlega 20 stiga hiti og glampandi sól. Þetta var áhugaverð ferð og gaman að kynnast aðeins atvinnulífinu hérna í Dk
Baddý systir fór frá okkur í dag, flaug til Barcelona til Ellýjar frænku. Litli stubbur saknar hennar nú þegar.


Ég fékk mér líka nýjan síma í gær, þar sem minn gamli gaf upp öndina. Við systur fórum í raftækjaverslun og af því ég var áður bara með svona frelsi þá ákvað ég að binda mig í áskrift í hálft ár, borga 120 danskar á mánuði og get sent öll þau sms sem mér hugnast. Ágætt. Af því tilefni fékk ég líka nýtt símanúmer, sem hljóðar svona á dönsku:
otte og tyve, sex og halvfjerds, to og halvfems, tre og firs.
Ég get engan vegin munað þetta númer, hvað þá sagt það á dönsku undir álagi. Jiminn.

Miðvikudagur 23. maí 2007 kl. 19:59 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / fólk / skólinn / 0

Nokia RIP

Síminn minn gaf upp öndina í fyrradag, skjárinn sýndi allt í einu "contact service" og vill núna ekki hlaða sig þrátt fyrir að ég hafi reynt öll trixin í bókinni. Ég held hreinlega að tíminn hafi verið kominn á þessa elsku, þó hann sé bara eins og hálfs árs, og sorglegt að endingin sé ekki meiri.
Ég hefði reyndar viljað að hann myndi þrauka fram á haust eða allavega þar til iPhone kemur út, það hefði verið sætt.

Mér finnst reyndar ekki svo mikið mál að missa símann, tala ekki það mikið en ég er strax byrjuð að sakna vekjaraklukkunnar í honum.

Sunnudagur 20. maí 2007 kl. 20:14 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni / 0

videokvöld

bofg.jpg Í kvöld var videokvöld. Eftir að sá minnsti var floginn inn í draumalandið var poppið sett í örbylgjuna og tölvan tengd við sjónvarpið. Fyrst á dagskrá var gamanmyndin Blades of Glory sem skartar Will Ferrel í aðalhlutverki og hann á algjörlega húmorinn. Þetta er svona týpísk Zoolander mynd sem á sína góðu spretti en skilur kannski ekki mikið eftir sig, ágætis kvöldafþreying ef maður er í þannig gír. Næst tókum við einn Lost.. sem er hreint ekki að fara að enda því það eru víst tvær seríur væntanlegar í viðbót, og svo lokaþáttinn af Greys Anatomy.

Baddý systir datt svo inn í einhverja mynd á TV2 þar sem Nicole Kidman leikur á rússnesku. Hafið þið tekið eftir því hvað hún og Baddý eru líkar?

Laugardagur 19. maí 2007 kl. 22:49 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video / 0

hverjum þykir hinn fuglinn fegrastur

Í morgun þegar ég vaknaði, eða uppúr hádegi réttara sagt - þökk sé dásamlegu au-pair stúlkunni sem kom af himnum ofan um daginn, fórum við í sund. Húsbóndinn sat heima og skrifaði tölvuleik á meðan við busluðum í Sundlaug Horsensbæjar. Sá stutti er með rennibrautaræði og er líka orðinn svo flinkur sundmaður að það ber af.
Eftir buslið fórum við til smábæjarins Nim rétt vestan við Horsens og heimsóttum vinafólk foreldra okkar, dönsk hjón sem eru algjörlega "forelsket i Island", koma til landsins oft á ári, mörg ár í röð, til að njóta umhverfisins og fólksins. Þau eru nokkurn vegin hætt að fara á túristastaðina fyrir sunnan og fljúga núna frekar beint á Egilsstaði og Akureyri og það með hóp af fólki með sér. Þau leita í kyrrðina og þá hugmynd að það sé hægt að fara á staði þar sem ekki er neitt fólk. Vissulega er hægt að fara út í skóg í Danmörku og hugsanlega hitta engan á leiðinni en tilfinningin er ekki sú sama.


Það er erfitt að gera sér grein fyrir því hvað fólk er að hugsa, sem hefur tekið svona miklu ástfóstri við landið þannig að það vill eyða sínum bestu árum og peningum í ferðalög til og dvöl á Íslandi. Það snertir einhverjar taugar.
Þau segja að Þorvaldsdalur sé einn fallegasti staður sem þau hafa komið til og finnist yndislegt að koma þangað. Ég mótmæli þessu svo sem ekki sérstaklega en í minni æsku hefur mér aldrei þótt neitt sérstaklega fallegt við þennan dal. Hann bara var.
Við kvöddum svo þessi gestrisnu hjón og á leiðinni heim keyrðum við í gegnum skóglendi og vatn við Skanderborg og náttúrufegurðin þar var algjörlega einstök, þar sem sólin skein í gegnum rjóðrið, túnin voru iðagræn, vatnið ljómaði af fallegu sumri og maður gat heyrt fuglasönginn í fjarska.
Svona er þetta.

Föstudagur 18. maí 2007 kl. 21:31 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 7

textabreytirinn 2000.. hvar ertu?

Ég er búin að vera að skoða "open source content management" tól á netinu í kvöld vegna nokkurra vefsvæða sem ég er að fara að smíða. Ég er að leita að einföldu "forriti" þar sem maður breytir texta á síðu með því að logga sig inn. Þar ætti líka að vera yfirlit yfir allar þær síður sem bjóða uppá (fyrirfram ákveðnar) breytingar, skrifuðum í PHP eða JavaScript/AJAX, án þess að þurfa SQL. Ég hef minnstan áhuga á lausnum frá veffyrirtækjum eða dýrum forritapökkum (mambo, joomla eða bloggforritunum) því yfirleitt gera þau ráð fyrir mun fleiri fítusum en ég hef þörf fyrir og gera hlutina óþarflega flókna, tímafrekna og dýra.

Ég var að skoða Toko sem gæti verið það sem ég þarf en ég þarf að skoða það aðeins betur. Ef það eru einhverjar uppástungur þarna úti þá má alveg endilega stinga þeim að mér

Fimmtudagur 17. maí 2007 kl. 22:07 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni / 4

Dagurinn

Baddý systir er hjá okkur í heimsókn. Þegar ég fór í skólann í morgun voru Baddý og Danni á náttfötunum að setja saman járnbrautarteina og svo fór lestin af stað. Ég fór hins vegar í skólann á bíl.
Eftir hádegi ákváðum við að fara í Tivoli Friheden, því við eigum seasonpassa og með honum er "frítt fyrir vin" á miðvikudögum, en komumst svo að því að það var lokað í dag og í raun alla miðvikudaga út júní.. skemmtileg tilviljun. Í staðinn fórum við á dýraróló eins og við köllum hann og klöppuðum nokkrum kanínum, og í bambagarðinn þar sem litlu bambarnir fengu epli frá okkur. Þegar það byrjaði að rigna á okkur þá flúðum við inn í bíl. Á morgun skal hins vegar farið í Tivoli, með regnhlíf.
Það er nefnilega alveg dásamlegt að hafa svona barnapíu hjá sér. Grunar að sá stutti sé kominn með nett ógeð á því að hafa bara okkur hérna heima, allavega var kátínan mikil þegar Baddý frænka kom.

Miðvikudagur 16. maí 2007 kl. 14:31 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 0

ég blogga til að gleyma

Ég er að reyna að ná úr mér bræðinni, ég fór út áðan með ipodinn og skokkaði einn hring með Broken Boy Soldier með Raconteurs í eyrunum. Ég held ég hafi aldrei skokkað jafn ákveðið og það var fínasta hreinsun. Núna held ég að ég hætti að velta mér upp úr þessu, eins mikið og þetta sökkar, og einbeiti mér að því hvað það er margt fallegt til í heiminum.

Svo syngur sonur minn líka svo fallega með Latabæ:

Sunnudagur 13. maí 2007 kl. 16:14 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem fólk / samfélag / 2

sorg á mæðradegi

Ég hefði getað kennt syni mínum mörg ljót orð í morgun þar sem hann sat í sakleysi sínu og horfði á Bangsímon og vini hans í sjónvarpinu á meðan ég kveikti á tölvunni, en þar sem það er mæðradagurinn í dag ákvað ég að halda í hlutverk mitt sem góð móðir og hvísla þessi sótsvörtu blótsyrði sem voru efst í huga mér. Ég ákvað líka að halda aftur af mér þá og segja ekki meira á blogginu en ég gæti staðið undir.


Ég á ekki til orð um þessa þjóð. Engin falleg orð amk. Íslenska þjóðin studdi þessa ríkisstjórn jafnvel þó hún hafi:

- sett Íslendinga á lista þeirra sem studdu stríðið í Írak, án þess að spyrja nokkurn. Stríð sem var sett af stað af græðginni einni saman og hefur valdið dauða og þjáningu þúsunda saklausra barna og fullorðinna og sett allt á endann í heiminum.

- Komið af stað óðaverðbólgu og himinháum vöxtum með breytingum á íbúðalánum og byggingu Kárahnjúkavirkjun, sem er stærsta umhverfisslys Íslandssögunnar.

- verið og sé á góðri leið með að gefa vinum sínum auðlindir þjóðarinnar, hverjir haldið þið að komi til með að kaupa Landsvirkjun, þegar (ekki ef) hún verður seld á smáaura.. þeir sem hafa mestan hag af hagstæðu rafmagnsverði: Alcoa! Og þeir spyrja ekki landeigendur eða borga þeim skaðabætur.. þeir bara drekkja þeim líka ef þeir eru með einhverja stæla.
Auðlindir þjóðarinnar er líka vatnið, sem við erum svo stolt af. Og með vatnalögunum, sem taka gildi í haust, er útséð að lækir og ár sem renna um landið mun verða verslunarvara og þar með eign örfárra, þvert á samþykktir Sameinuðu þjóðanna sem segja að grunnvatn megi ekki vera markaðsvara.

- úthýst skólatannlækningum þannig að börnin í landinu eru að brenna upp í munninum. Hvað varð um flúorskolunina á morgnana eins og í den tid? Tannlæknirinn minn sagði áður en ég flutti út að ég væri að fara með son minn á mun betri stað, því yfirleitt væri hann að eiga við börn á hans aldri þar sem önnur hver tönn er skemmd, eitthvað sem gerðist ekki hérna áður fyrr. Hann hafði rétt fyrir sér því einn af fyrstu bréfunum sem sonur minn fékk var boð í heimsókn til tannlæknis.

- þó hún hafi ofurtrú á álvæðingu í stað þess að skoða aðrar lausnir til að lyfta undir með landsbyggðinni (lægri flutningskostnað, minni skatta á fyrirtæki, nýsköpunarstyrkir og markaðsráðgjöf) eða hreinlega breyta kvótakerfinu sem er valdur af þessum vanda....
... og finnist það bara allt í lagi að selja alla þá orku sem við eigum til álbræðslu sem skilur engin verðmæti eða hráefni til að vinna með eftir sig í samfélaginu og fer með allan hagnaðinn úr landi. Auk þess sem virkjanirnar skilja eftir sig gríðarlega eyðileggingu bæði í landi og sjó. Ég hugsa til þess með hryllingi hvaða Kárahnjúkavirkjun á eftir að gera miðunum fyrir austan land þar sem Pabbi minn er að fiska af miklum dugnaði, eins og Guðmundur Páll Ólafsson náttúrufræðingur talar um í bókinni um Þjórsárver.


Ég skil ekki í fólki í þessu landi, að það sjái ekki mynstrið? Að fólk hugsi ekki á hvaða leið við erum að fara, finnist að Ísland sé alveg nógu stórt til hýsa allar þessar virkjanir.. að því finnist bara allt í lagi að borga 20% vexti, að við hugsum ekki um þá sem hafa orðið undir í samfélaginu.


Landið er klofið. Það verður því áfram stríð á Íslandi, barátta nýju kynslóðarinnar gegn þeirri gömlu, baráttu fyrir réttlátu samfélagi vs spillingunni, fjölbreyttu atvinnulífi með góðum tækifærum til mennta vs verksmiðjuvæðingu, milli upplýstra einstaklinga vs. þeirra sem loka eyrunum fyrir staðreyndum.


Það skásta í stöðunni núna væri að D listi og Samfylking myndi stjórn en þá þyrfti Samfylkingin heldur betur að halda í sitt fagra Ísland, nýja atvinnulíf og unga Ísland. En
miðað við hvernig Framsóknarmenn hafa hagað sér eftir kosningar í gegnum tíðina (hugsið Björn Ingi í borginni, sem þurfti að ráða utanaðkomandi menn í nefndir) þá er þeim alveg sama þó þeir hafi tapað nokkrum ráðherrum og verið rassskelltir. Ég spái því að þeir sjái engan sóma í því að bakka sig út heldur lýsi yfir miklum varnarsigri miðað við skoðanakannanir og haldi áfram í ruglinu. Ekkert stopp á spillingunni. Og sjöllum er alveg sama því þeir vita að þeir láta hvað best að stjórn miðað við það sem er í boði.


Sem móðir þá get ég bara ekki glaðst í dag, en þakka samt fyrir blómin frá syni mínum. Framtíðin er hans en ég segi það satt, ég hlakka ekki til að flytja heim.

tenglar:
- Verksmiðjuvæðing: 150 árum of seint

- Fortíðarhyggja eða framtíðarsýn

Sunnudagur 13. maí 2007 kl. 12:22 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 1

í bítið

Við erum vöknuð, erum að klára morgunmatinn og kveiktum jafnframt á Bangsimon. Það er skemmtilegasta sjóvarpsefnið akkúrat núna, Íslendingum er allavega ekki við bjargandi.

Sunnudagur 13. maí 2007 kl. 06:48 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið / 2

eurovision

Danir eru ekkert sérstaklega ánægðir með júróvision þessa dagana, ég skil reyndar ekkert hvað þeir voru að senda dramadrottninguna af stað og hvað þá að binda einhverjar vonir við þann glansfrostpinna. Það var eiginlega sama sagan með Eirík í gær, þó hann hafi staðið sig alveg ágætlega þá gjörsamlega lak testosteronið af atriðinu og enginn sjarmi yfir því fyrir minn smekk.
Eftir að hafa fylgst með úrslitakeppninni í kvöld með öðru eyranu þá verð ég nú bara að segja að austur Evrópa á þessa keppni alveg réttilega. Lögin þaðan eru yfirleitt mun metnaðarfyllri, tilfinningaríkari og einlægari. Mér finnst tilgerðin og leikaraskapurinn svo áberandi hjá vesturlöndunum. Mér finnst líka ákaflega heillandi að heyra lögin á sínu upprunalegu tungumáli ekki alltaf á ensku, þeas misgóðri ensku.
Í mínu uppáhaldi í kvöld eru Serbía, Ungverjaland og Moldavía.

og kosningarnar? nei, ég ætla ekki að vaka. Ég held nefnilega að þegar ég vakna kl 7 í fyrramálið (5 að íslenskum tíma) þá verði úrslitin ekki ennþá komin í ljós þannig að ég ætla að fylgjast þá, spræk í morgunsárið, með (svefn)drukknum Íslendingum á barmi taugaáfalls.

Laugardagur 12. maí 2007 kl. 21:11 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 0

sumarið og verkefni

Ég skilaði verkefninu í morgun, þar með er bara eitt hópverkefni eftir eins og ég sagði í síðustu færslu. Það er hins vegar allt komast á skrið í sumarvinnunni. Ég sem hélt að ég gæti verið í fríi í sumar og notið dönsku veðurblíðunnar.. það ætlar eitthvað að frestast. Veðurblíðan fór líka eitthvert, lýsi eftir henni hér með. Ég er semsagt með þrjá kúnna þessa stundina, tvo á Íslandi (Reykjavík og á landsbyggðinni) og einn í Ameríku. Það er mjög áhugavert verkefni sem ég segi frá strax og ég get. Óli verður sömuleiðis hérna heima að vinna, í fjarvinnuverkefnum fyrir sinn gamla vinnustað. Það sýnir sig að það skiptir ekki öllu máli hvort maður er hér í Danmörku eða á Hauganesi, svo lengi sem nettengingin er nógu hröð. Það er hreint ótrúlegt, eins og Lára bendir réttilega á, hvað það hefur verið mikill seinagangur í því að nettengja dreifbýlið.


En nú vantar okkur bara au-pair!.. anyone?

Fimmtudagur 10. maí 2007 kl. 12:36 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / netið / samfélag / 0

frásagnir og kosningar

kaldi.pngVerkefnið sem ég er að klára að smíða byggir á Storytelling aðferðum. Ég er búin að vera að lesa danska bók (enska þýðingu reyndar.. þessvegna sökka ég ennþá í dönsku af því ég æfi mig ekki nógu mikið) um Storytelling, eða "frásagnaraðferð" gæti maður kallað það, og byggir á því að finna kjarnann í sögu eða boðskap fyrirtækisins/vörunnar og setja hana fram á persónulegan og aðlaðandi máta, þannig að viðskiptavinurinn/notandinn geti samsamað sig og átt auðveldara með að skilja og líka við fyrirtækið/vöruna - og að sjálfsögðu er lokatakmarkið að selja, en ekki hvað.
Ásamt verkefninu, sem er flash vefur - fyrsti vefurinn sem ég geri alfarið í flash, hef verið svo einstaklega á móti *pjúra flash* vefsíðum að það hálfa væri nóg - ef af því þetta er skólaverkefni þá sló ég til - einhverntíman verður allt fyrst.


Ég ákvað að taka fyrir bjórinn "Kalda" sem er bruggaður á Sandinum (Árskógssandi fyrir þá sem ekki þekkja til) því þó hann eigi ekki langa sögu þá er hún samt mjög svo áhugaverð. Hann byggist nefnilega allur upp á einkaframtakinu, hvað er hægt að gera þegar maður trúir á sjálfan sig og hugmyndirnar sínar. Hann er frábært dæmi um þetta "eitthvað annað" sem við eigum ekki að geta gert og þessvegna þarf ríkið að byggja verksmiðjur út um alla koppa.

Þetta er í raun megininntakið í verkefninu mínu; Believe in yourself.


Ég var að tala um þetta við danska vinkonu mína í skólanum í dag. Hún minntist nefnilega á það að fyrra bragði að hún hefði heyrt að Björk, tónlistarkonan, hefði sagt að hún væri ekki lengur stolt því að koma frá Íslandi. Ég las það reyndar líka í Nyhedsavisen.
Ég sagði henni frá álæðinu og reyndi eins og ég mögulega gat að hemja mig, heldur bara útskýra þetta eins og það er; fólk vill fá fjölbreytni í atvinnulífinu úti á landi. En ég get ekki gert að því að þetta hljómaði alveg fáránlega:


Me: ... That's why they built this great dam, the biggest one in Europe up in the highlands, that gives energy to the aluminum plant in the small town in east iceland.
She: ok, so you have lots of aluminum-material in the ground to work with?
M: oh, no, it comes from Australia and Brazil, they just sail with it
S: ok, but the un-employment rate, is it high?
M: no, not really, people are generally working too much, but they are planning at least three more of these aluminum plants because there is nothing else to do.. i mean it's not like being a designer or programmer gives any real value...


..


segiði mér ... hvaða heilbrigði er í því að halda þessu áfram? Ég er allavega búin að gefa mitt atkvæði í það að þetta breytist, með nákvæmlega sömu rökum/ástæðum og hann Hjálmar setti fram. Það er ósk mín frá dýpstu hjartarrótum að það gangi upp á laugardaginn.

Miðvikudagur 09. maí 2007 kl. 12:46 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 0

verkefni

Það er bara alveg nóg að gera hérna á þessu heimili, verkefnin í skólanum eru að byrja að klárast og við förum núna að sjá framá sumarfrí. Ég byrja í prófaverkefni í næstu viku sem er hópverkefni og tekur mánuð, eigum semsagt að skila 12. júní. Í kringum 20. júní verður svo munnlegt próf, sem er eina prófið sem ég fer í, en það mun fjalla um verkefnið. Það lítur því út fyrir að ég sé búin þarna í kringum 12. með smá upprifjun fyrir munnlegt próf. Svo er bara sumarfrí! Það sér því fyrir endan á þessu í bili, þá má segja að við séum hálfnuð í dvölinni hérna úti, og þó bara nýkomin :)

Á fimmtudaginn skila ég síðasta einstaklingsverkefninu og svo á mánudaginn kemur Baddý systir til okkar.. þá verður fjör!

Þriðjudagur 08. maí 2007 kl. 22:51 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 1

Ár hinna glötuðu tækifæra

ég rakst á þessa góðu grein eftir Andra Snæ og mikið vildi ég óska þess að þið læsuð hana við gott tækifæri í vikunni:

„Um áramót barst ríkisstjórn Íslands að koma að risatónleikum Live Earth sem yrðu haldnir samtímis í Reykjavík, London, New York, Tokyo, Rio, Jóhannesarborg og Sidney. Tilboðið kemur ekki síst vegna Bjarkar, Sigurrósar og ekki síst vegna þess að Reykjavík er hituð með jarðvarma. Hingað eiga að koma erlendar ofurstjörnur. Reykjavík sem fyrirmynd annarra borga getur skapað hundruð starfa í orkuiðnaði. Fimm mánuðum síðar hefur skýrt svar ekki borist frá stjórnvöldum. Þá má spyrja: Hvaða leiðtogi stekkur ekki á svona tækifæri? Hvar vilja Sjálfstæðismenn staðsetja okkur í heiminum? Hjá Bechtel eða Björk? Fimm mánuðir hafa liðið og ekkert svar hefur borist. Kostnaður var eins og einn Cayenne jeppi og tíminn er að renna út. Við erum þjóð án leiðtoga og sögulegt tækifæri að glatast fyrir umhverfissinna og orkufyrirtæki.
Óbreytt stóriðjustefna mun gera okkur jafn raddlaus í umhverfismálum eins og Íraksstríðið í friðarmálum.“

og aðra góða grein má finna á vef Víkurfrétta:

„Kjarni atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar hefur verið: „Stóriðja eða ekkert“. En hvað er þetta sem ríkisstjórnin telur vera „ekkert“. Jú, „ekkert“ er sjávarútvegur, landbúnaður, innlendur iðnaður, ferðaþjónusta, hátækni- og þekkingariðnaður og svo margt fleira þar sem tækifæri til nýsköpunar, atvinnu og stóraukinnar verðmætasköpunar blasa við ef þessum atvinnugreinum væri skapað eðlilegt og rétt rekstrarumhverfi.

Laugardagur 05. maí 2007 kl. 15:34 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 1

meira lesefni

Og meira lesefni þegar maður nennir ekki að vera að lesa kennslubækurnar: Framtíðarlandið - Skýrsla Atvinnulífshóps Framtíðarlandsins um Kárahnjúka, sérstaklega er kaflinn um byggðaþróun og atvinnuuppbyggingu áhugaverður.

Miðvikudagur 02. maí 2007 kl. 21:08 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 0

auðmelt efni

og hérna smá auðmelt efni því að síðast færsla var svona.. dáldið löng..


wulffmorgenthaler í dag

Miðvikudagur 02. maí 2007 kl. 14:27 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 1

kosninga...blaaa..

Ég hefði ekki geta sagt það betur en birtist hér í grein eftir Stefán Jónsson, þjóðleikhússtjóra.
Við þurfum nefnilega að fara að drífa okkur niður í bæ til að kjósa, ég held að við þurfum nefnilega sjálf að sleikja frímerki undir kjörseðilinn og senda í kjördæmið okkar (og já, það verður hið konunglega Frikka frímerki! ;)


Og hvað á þá að kjósa.. ó men, ég veit það ekki. Eftir að ég las Draumalandið (ennþá heilaþvegin) snemma á síðasta ári þá ákvað ég að lemja því fast inn í hausinn á mér að kjósa ekkert annað en VG í næstu kosningum, annað væri bara vitleysa og minnisleysi. Svo kom Íslandshreyfingin sem átti að höfða til áskrifenda Sjálfstæðisflokksins en hún gerir það bara ekki, því miður. Það er svo margt við D listann sem fær fólk til að kjósa hann annað en að hann er "til hægri". Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að skilgreina sig sem "The Ísland" og þess vegna verður hann alltaf stærstur því hann höfðar til þjóðernishyggjunnar á því tungumáli sem Íslendingar skilja en geta ekki skilgreint. Og allir hinir flokkarnir verða þá óhjákvæmilega eitthvað útlenskt og Íslendingar eru eitthvað svo óttablandnir við það sem er útlenskt, ekki út af rasisma alls ekki, heldur af því að Ísland er bara svo langt í burtu, við heyrum aldrei hávaðann í hinum. Fyrir þá sem þekkja til erlendis (öðruvísi en að fara í viðskipta- eða verslunarferð) þeir vita að fólk er allsstaðar eins og við eigum ekki að vera að óttast það. Við eigum öll fjölskyldur, viljum börnunum okkar allt það besta, viljum eiga okkar rými og tíma til að gera það sem við viljum gera. Quality of life. ***


Ég sé það einmitt ekki fyrir mér að Sjálfstæðisflokkurinn myndi bjóða formönnum íhalds- eða frjálshyggjuflokka frá öðrum löndum á landsfundinn sinn eins og Samfylkingin gerði með Monu Sahlin og Helle Thorning-Schmidt. Mér finnst frábært að þær hafi komið, mikilvægt að eiga þessi samskipti við þær merku konur og þeirra innlegg var mjög þarft og gott mál inn í umræðuna, en það er bara eitthvað svo einstaklega óíslenskt að gera svona. Hinn venjulegi íslendingur segir ekki "ó-vá, merkilegar konur", heldur fer fyrst og fremst að hugsa um hvað það var leiðinlegt í dönskutímum og hvað sænskar myndir eru eitthvað svo boring.
Held ég. Svona er maður grunnur. En hvað veit ég. Kannski ekki.


Ef ég hugsa um íslenska fánann eins fallegur og hann er, þá finnst mér líka eitthvað eðlilegra að tengja hann við Sjálfstæðisflokkinn heldur en Samfylkinguna eða VG, þó það ætti alls ekki að vera þannig. Kannski er það bara þannig í hausnum á mér. Líka ef ég hugsa um kjörklefann þá er einhvernveginn eðlilegra að tjaldið sé í bláum lit (til að róa fólk niður væntanlega) af því það er meira íslenskt heldur en í rauðum eða grænum lit. Ég man reyndar ekki hvernig það er, vona að það sé hvítt, en ég man eftir þessari umræðu í skólanum um að kjörklefatjaldið hafi einhverntíman verið dökkblátt og það fór nett fyrir brjóstið á rauðhjörtuðu kennurnum mínum.


En einmitt þess vegna batt ég svolítið miklar vonir við Íslandshreyfinguna, að Ómar myndi ná til Íslendinga sem hafa Ísland í hjarta og æðum sér. Ísland er land þitt og allt það, en það virðist ekki vera að gerast. Stefnuskráin höfðar samt til mín, fólkið er örugglega allt hið vænsta, ég allavega þekki Jakob Frímann bara af góðu síðan ég vann í Bankastrætinu á sama stað og hann, en þetta hefur allt gengið frekar klaufalega fyrir sig, enda engin furða þegar tíminn er naumur, allir að bíða og í raun kraftaverk að þetta hafi gengið svona langt á engu fé og stuttum tíma. Mér fannst alltaf það hefði verið réttast af Ómari að gerast verndardýrlingur yfir Fagra Íslandi Samfylkingarinnar og verja það plagg með kjafti og klóm. Þá hefði orkan hans Ómars farið í að skrifa og miðla til okkar um hvað væri hægt að gera í þessu dásamlega fallega landi í stað þess að vera í öllum smámálunum sem fylgja svona framboði.


En aðal markmið Íslandshreyfingarinnar var að ná í grænu atkvæðin hjá Sjálfstæðisflokknum þá sýnist mér á öllu að það muni ekki gerast, þrátt fyrir góðan vilja.
Til dæmis skiptir myndmálið roohosalega miklu máli í því sambandi. Til dæmis munurinn á vefsíðum Sjálfstæðisflokksins og Íslandshreyfingarinnar þá er "Í" með útskýringu á merkinu sínu á forsíðunni, fín mynd og fín hugmynd en hún reynir á mann, maður þarf svolítið að stoppa við og pæla. "D" er hins vegar með fólk á forsíðunni, svona "fólk eins og mig og þig". Alvöru Íslendinga með yfirdrátt og í 66°N úlpu sem nær alltaf að redda hlutunum undir sterkri vernd pabba gamla sem á alltaf smá suðusúkkulaði í nesti. Pælið í því þegar þið kíkið á síðu Samfylkingarinnar (og reloadið til að fá mismunandi myndir), sem er með óskilgreinanlegt landslag, vissulega íslenskt en maður tengir ekkert meira, og jú líka tvenn pör af augum sem horfa ekki á mann heldur framhjá manni eða hörfa undan.
VG eru reyndar komnir með fólk á síðuna sína sem horfir á mann, en þeir eru líka búnir að vera í uppsveiflu skv. könnunum. Ef maður á að vera eitthvað að minnast á framsókn þá sé ég aðallega einhverja rollu vera að fljúga á stein (það mætti halda að markhópurinn þeirra væri aðallega fólk undi 18 -án kosningarétts!), fréttir um hvað allir hinir eru ömurlegir.. og gamla Búnaðarbankamerkið í "exbé útfærslu" nema að græni kallinn er að ganga í vitlausa átt, til fortíðar en ekki áfram til framtíðar. Hahaha..
Frjálslyndi flokkurinn nær hvergi augnsambandi á síðunni sinni, sama hvað maður reloadar oft, enda mundi ég ekki einusinni hvaða bókstaf þeir eru með og þurfti að leita í google að þeim.. segir sennilega meira um mig en þá.


Æji ég veit það ekki, það besta fyrir Ísland væri að fá ferska vinda í andlitið sem opna augun og fara að hugsa um heildarmyndina í öllum málum, ekki bara umhverfismálum og sjá hvað við erum að afreka og hvað við getum afrekað ótrúlega góða hluti. Mér er í raun alveg sama hvaðan góðir hlutir koma.


Og hvað á maður þá að kjósa?


ps. ástæðan fyrir þessari langloku er sú að ég er heima og á að vera að skrifa verkefni en ég sogaðist inn í þetta í staðinn fyrir í ísskápinn. En nú er ég búin að skrifa svo mikið að ég er orðin svöng...

og fyrst þú ert búinn að lesa alla leið hingað þá munar þig ekkert um að renna yfir greinina hans Stefáns sem ég linkaði í efst, hún er miklu styttri og skemmtilegri ;)


og pps. hvernig væri að það væri BANNAÐ AÐ TALA UM STEFNU ANNARRA FLOKKA EN SÍNS SJÁLFS í síðustu vikunni fyrir kosningar?

Miðvikudagur 02. maí 2007 kl. 12:25 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 3