skítverk á skírdag

Það var einhver bóndinn hér í Árósasveit svo áræðinn í morgun að byrja daginn, sjálfan skírdaginn, á því að bera úrgang á túnin sín. Frá hverfinu okkar, sem er um 15 min akstri frá miðbænum sem telst nú ekki vera svo langt, eru nokkrir bóndabæir inni á milli, þar sem maður getur keypt jarðaber á sumrin, kartöflur á haustin og jólatré á aðventunni. Ég held reyndar að þetta hafi ekki verið þeir ágætu bændur sem menguðu loftið með metangasi heldur hafi þetta verið einhverjir norðanmenn (þó ekki Norðmenn), því vindurinn var sterkur og blés því ilminum yfir alla borgina.
Í nösum Dana er þetta sennilega peningalykt enda landbúnaðurinn mikilvægur og kannski finnst einhverjum bara rómó að hafa nálægðina við sveitina í nösunum.
Það var reyndar í blaðinu fyrir nokkrum dögum (fann ekki link) að bændurnir ætluðu að bjóða uppá SMS þjónustu sem virkar þannig að þú getur skráð þig fyrir skeyti, sem þeir senda þegar þeir ætla að bera á túnin. Þannig geturðu snarlega hætt við að setja í þvottavél nema fá sveitalyktina í fötin (eða sett þau út sérstaklega ef menn vilja það..), heldur kveikt bara á ilmkerti eins og ég í dag.
Það kalla ég hátæknifjós :)


Fimmtudagur 05. apríl 2007 kl. 20:52
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur.

/ Álit

baddy systir:

ummm en þetta er alveg lúmst góð lykt sko;) samt ekki alveg rétta ilmvatnið fyrir djammið...hehe

09.04.07 22:23


dagný:

já þú fylltir alltaf lungun þegar maður keyrði inn í óþefinn þegar við vorum yngri, á meðan mér var bara flökurt! ;)

10.04.07 08:09