Scrapblogs
Scrapblogs er nýtt unaðslegt tól til að búa til scrap á netinu. (Scrap = skreytt myndaalbúm). Eftir að Danni fæddist hef ég verið að reyna að scrappa svolítið en hef aldrei haft almennilegan tíma til að setjast yfir það. Þegar ég sá þetta tól þá sé ég að þetta á eftir að verða mikill tímaþjófur... þá allt í einu hefur maður tíma ;)
Forritið er mjög skemmtilegt að vinna með, bæði flott tæknilega séð en líka gott viðmót og falleg grafík, hægt að tengjast beint við flickr (og YouTube er væntanlegt fyrir video) til að sækja myndir eða bara beint úr tölvunni. Maður á nú samt örugglega eftir að sakna þess að klippa ekki og líma.. og vera klístraður á puttunum.
Þessar síður gerði ég á hálftíma í gærkvöldi þegar ég var að prófa þetta:
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur. / netið. Þar eru 107 færslur.
/ Álit
Þetta er algjör snilld....ætla samt ekki að byrja á þessu fyrr en eftir prófin...!! er ekki síðan hægt að prenta hverja bls út fyrir sig og setja þetta í alvöru bók? ;) þá væri þetta komið í scrap-book!!
daia:
ég las að það er víst verið að vinna í prenthlutanum, það er náttúrulega bara snilld að geta fengið þetta sem pdf og prentað sjálfur eða að senda þetta í prentun til Shutterfly eða þesskonar þjónustu.

