krísublogg
Ég viðurkenni, að það er svolítil bloggkrísa í gangi á þessum stað. Ég ákvað fyrir nokkru að láta Danna alveg sjá um ævintýri okkar hérna í Danaveldi því sögurnar verða miklu skemmtilegri frá sjónarhóli hans, auk þess sem það er betra að halda því öllu á einum stað þegar maður fer að rifja upp.
Það verður því lítil samkeppni við hann hérna.
Ég var svolítið að hafa áhyggjur yfir því að ég væri að kæfa lesendur mína og saklausa fjölskyldumeðlimi í áróðri gegn þiðvitiðhverju, og hef reynt að hemja sjálfa mig í því þó ég hafi verið mjög upptekin sjálf við að lesa moggann, vísi, horfa silfrið og lesa moggabloggið. Ég bjó meira að segja til daia.blog.is fyrir skemmstu en er á mörkunum að nenna því að eltast við það... held að það sé bara ágætt að halda sig í "síns eigins garði".
Eftir allan þennan tíma sem ég hef verið að blogga (rúmlega 5 ár) ætti maður að vita að það er ekki lesandinn sem á að ráða ferðinni heldur skrifarinn, (þ.e. ef hann er ekki að eltast við vinsældir).
Samhliða skólanum, sem er ekki sá mest krefjandi í heimi en allt í góðu með það.. ég vissi það nokkurn vegin áður en ég byrjaði og það er bara ágætt því þá gefur maður sér líka tíma í annað, er ég með nokkur verkefni í gangi, bæði fyrir kúnna en líka nokkur gæluverkefni sem er dásamlegt að geta gefið sér tíma í. Eitt þeirra felst í uppfærslu og breytingum á uppskriftavef, annað um hugmyndabanka sem er reyndar kominn með nafn: "Eitthvað annað". Skólaverkefnið sem er í gangi núna er nokkuð frjálst svo ég ákvað að búa til tölvuleik handa Danna. Hvað gerir maður ekki fyrir þessi börn. :)
Páskahelgin er framundan. Planið er að slappa af í góða veðrinu, færa íbúðina í svolítinn sumarbúning og kíkja jafnvel í bústað.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 238 færslur.
/ Álit
Já, maður lendir nú í lægð annað slagið. Annað hvort er ekkert sem maður hefur til að skrifa um eða þá að það sem maður vill skrifa um er ekki enn orðið hæft til opinberrar birtingar.
Mæli samt eindregið með að þú látir Moggabloggið vera ;)
Víkingur:
Áhyggjur þínar af kæfunni eru ástæðulausar enda er góð vísa sjaldan of oft kveðin. Í þessu tilviki veitir heldur ekkert af.
Hvernig virkar þessi leikur sem þú gerðir handa Danna? Er hægt að prófa hann einhversstaðar?
Langar að leyfa Þormari (helgarstráknum mínum) að prófa ;)
-- En annars ekki hafa neinar áhyggjur af því að kæfa fjölskyldumeðlimi! Við kunnum öll á scrollið! :P Neh bara grín!
takk - hér verður framvegis búin til meiri kæfa.. :)
Leikurinn er reyndar ekki tilbúinn en virkar þannig að þegar maður smellir á húsið með músinni eða ýtir á [space] takkann þá birtist húsdýr upp frá húsinu með sínu hljóði (birtist random), svo ef maður smellir á tréð eða ýtir á [enter] þá flýgur fugl upp úr trénu hægra megin.
Leikurinn verður inni á síðunni hans Danna þegar hann er tilbúinn, uppúr miðjum apríl. Hann verður örugglega fínn fyrir Þormar, læt þig vita :)



RSS veita