29onthe29th

Þegar ég var lítil var ég alltaf frekar spennt fyrir 29 ára afmælisdeginum mínum, af því ég á afmæli þann 29. Þess vegna vorkenndi ég oft fólki sem átti afmæli snemma í mánuðinum (til dæmis Baddý systir, hún á afmæli þann 4.) því að fjögurra ára myndi hún ekkert njóta þess að vera jafn gömul og dagurinn hennar er. Skiljiði. Þetta er há alvarlegt mál!
...

En það er spurning hvort morgundagurinn verður eins merkilegur og ég hef ímyndað mér í brátt 29 ár, hann stefnir allavega í að verða feykilega skemmtilegur þar sem við ætlum að bruna strax við sólarupprás til Kaupmannahafnar (ekki amarlegt að fá ferð til Köben í afmælisgjöf ha!) og eyða deginum í tivoli með Hönnu systur, sem er þar í vinnu / skemmtiferð.


Laugardagur 28. apríl 2007 kl. 22:03
Flokkað sem danmörk. Þar eru 73 færslur. / fólk. Þar eru 14 færslur.

/ Álit

Rúnar Birgir Gíslason:

Til hamingju með daginn nágranni.

Njóttu dagsins í Köben.

29.04.07 05:59


Tryggvi R. Jónsson:

Til hamingju með daginn! Ég hafði aldrei hugsað út í þetta en jú það var s.s. ágætt að verða 19 þann 19. ;) Vona að þú njótir dagsins.

29.04.07 10:37


gunna:

Til haminhju með afmælið!!
Ég var einmitt að dást að því hvað það er þrælgæjó að verða 29 ára þann 29.... og einmitt líka að ég hafi verið of ung til að njóta þess að verða 9 ára þann 9. jan.

Hafðu það afskaplega gott í dag Dagný mín og skemmtu þér vel.

29.04.07 11:44


mundi:

til lykke !

29.04.07 18:36


baddy:

haha ég hef aldrei pælt í þessu...kannski einmitt af því að ég á afmæli það snemma að ég var ekki farin að pæla í svona hlutum. en það sem hefur einkennt minn afmælisdag, þá sérstaklega þegar ég var yngri, var að ég fékk mjög oft páskaegg í afmælisgjöf (þá sko nóa nr 2) en ótrúlegt en satt þá fannst mér það oft frekar pirrandi, ég er greinilega ekki nógu mikill súkkulaðigrís - sérstaklega þar sem ég endaði á því að henta síðustu leyfunum af eggi þessa árs í ruslið!! já ég á það til að henda nammi þegar ég er búin að eiga það of lengi þá bara hef ég ekki lyst!

en annars vonandi áttiru góðan dag systir góð..ég var búin að frétta afhverju þið þurftuð að yfirgefa tívolíið skyndilega, en ég vona að þið hafið skemmt ykkur vel fram að því. ...annars þá eru bara 14 dagar í að ég komi í heimsókn:D

30.04.07 01:30


Svanhildur:

Til hamingju með daginn í gær!

30.04.07 10:02


Halla:

Til hamingju með daginn í gær Dagný mín! Er viss um að hann hafi verið geggjaður, í sól og blíðu!!!!
Og líka til hamingju Danni sæti, þó rúmlega viku og seint! :)
Kær kveðja frá Belfast!
Halla

30.04.07 10:23


Óli Magg:

Innilegar hamingjuóskir elsku Dæja með afmælisdaginn. Teygðu vel á honum og gerðu þetta að afmælisviku svo þú njótir þess að vera tuttuguogeitthvað. Hið drungalega þrjátí.... ég get ekki einu sinni klárað þetta. Það bíður allavega. Lakkrís út vikuna!

30.04.07 14:47


Dagný:

þakka ykkur öllum alveg dásamlega mikið og vel fyrir :) já það er rosalegt til þess að vita að 3x bíði handan við hornið, þó er alltaf huggun í því að sumt fólk virðist verða 29a, 29b... osfr

dagurinn var dásamlegur, endaði reyndar á því að einkasonurinn kastaði upp öllu namminu sem hann var búinn að háma í sig yfir daginn, inni á pizzastað í tivoli.. ég tengi það ekki því að hann var nýstiginn úr rússíbanaferð með mömmu sinni.. :/

30.04.07 17:39


freyja:

Til lukku með gærdaginn, ég var eitthvað slow að ég fattaði ekki að þetta var dagurinn þinn, hugsaði samt um það á föstudaginn "já, Dagný á afmæli á sunnudaginn" ;) Ég vona að dagurinn hafi verið góður og þið systur hafið getað skemmt ykkur saman. Hafðu það ævinlega gott og bestu kveðjur til strákanna þinna.
Kv.
Freyja sem senn verður tuttugu og tíu ára, hljómar alls ekki illa :)

30.04.07 22:21


Guðný frænka á Dalvík:

Til hamingju með afmælið á sunnudaginn elsku Dagný!
Sendi þér fullt af hugskeytum, vonandi hefur eitthvað þeirra skilað sér!
Skondið þetta með 29 ára 29. apríl, ég hef aldrei hugsað út í þetta. Veit ekki einu sinni hvað ég var að gera þegar ég varð 19 ára 19. nóvember - fyrir noookkrum árum... ;)
Kv. Guðný

01.05.07 00:28


Áslaug:

Hæ beibs og til hamingju með daginn um daginn... hei ég verð þrítug þann þrítugasta- það er nú svolítið kúl.. og nú hef ég lifað 28 ár án þess að hugsa út í þetta, en núna kemur ekki til með að líða dagur án þess að ég gleðjist yfir þessari staðreynd...
knús Áslaug

01.05.07 07:35


dagný:

stórkostlegt ! :D
takk aftur :)

01.05.07 09:24


mundi:

skemmtileg pæling þetta með dagsetninguna. ég man einmitt eftir því að hafa haldið upp á 20 ára afmælið mitt þann 20. des klukkan 20:20

það er happa...

02.05.07 00:12


Gunna:

Baddý skrifaði: " sérstaklega þar sem ég endaði á því að henta síðustu leyfunum af eggi þessa árs í ruslið!! já ég á það til að henda nammi þegar ég er búin að eiga það of lengi þá bara hef ég ekki lyst!"....

VOTT!?!?!?!?!?!?!?!?!?!?!?!?!?!?!?!?!?!
BLASPHEMY!!!!!!!!!!!!!!!!!!! ;)

07.05.07 17:11


Dagný:

já - reginhneyskli - þetta hefði ekki gerst ef við hefðum verið á landinu!! ;)

08.05.07 19:24