29onthe29th

Þegar ég var lítil var ég alltaf frekar spennt fyrir 29 ára afmælisdeginum mínum, af því ég á afmæli þann 29. Þess vegna vorkenndi ég oft fólki sem átti afmæli snemma í mánuðinum (til dæmis Baddý systir, hún á afmæli þann 4.) því að fjögurra ára myndi hún ekkert njóta þess að vera jafn gömul og dagurinn hennar er. Skiljiði. Þetta er há alvarlegt mál!
...

En það er spurning hvort morgundagurinn verður eins merkilegur og ég hef ímyndað mér í brátt 29 ár, hann stefnir allavega í að verða feykilega skemmtilegur þar sem við ætlum að bruna strax við sólarupprás til Kaupmannahafnar (ekki amarlegt að fá ferð til Köben í afmælisgjöf ha!) og eyða deginum í tivoli með Hönnu systur, sem er þar í vinnu / skemmtiferð.

Laugardagur 28. apríl 2007 kl. 22:03 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / fólk / 16

iconbuffet

iconbuffet.jpg
Ég held að flestir eigi í svona "love / hate" sambandi við netið. Stundum getur maður ekki slitið sig frá því og öðrum stundum finnur maður gjörsamlega ekkert nýtt eða áhugavert. Alveg dautt.
Núna er ég í ~love~ gírnum því ég hreinlega get ekki slitið mig í burtu.. ég sagði frá scrapblogs um daginn en því miður hef ég ekki náð að kíkja aftur í það vegna þess að ég datt inn í Iconbuffet, sem er bíttimarkaður fyrir icon pakka (icon nörda kannski.. ) og þar má ekki bara finna flott merki / táknmyndir heldur líka skemmtilegt fólk (icon nörda..) og virkilega skemmtilegt og vel hannað viðmót.
skráðu þig endilega ;)

Föstudagur 27. apríl 2007 kl. 21:38 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / netið / 0

3. ára mamma





Þennan dag, um þetta leiti, fyrir þremur árum síðan, leit lítill snáði dagsins ljós. Tíminn hefur flogið frá okkur þrátt fyrir að núna finnist manni að hann hafi alltaf verið til.

Sunnudagur 22. apríl 2007 kl. 22:14 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem fólk / 3

Fordómar og nýsköpun á Íslandi

Á síðustu önn lásum við svolítið í menningarfræði (cultural studies) í samhengi við markhópagreiningu (target group analysis). Menning er mjög vítt hugtak, sem og menningarhópar sem skiptast alls ekki eingöngu eftir kynþætti eða trúarbrögðum heldur er ákveðin flokkun á öllum okkar athöfnum, áhugamálum og skoðunum.
Þetta er ákveðið tæki sem er notað til þess að greina hvað fólk, sem kaupir einhverja X vöru, hefur áhuga á og hvernig er þá hægt að nálgast það á mismunandi hátt.

Hluti af umfjölluninni fór í að ræða um fordóma. Fordómar eru stórt vandamál milli fólks almennt og menningarheima. Ef maður reynir að skilgreina þá mætti segja að fordómar séu vanþekking og virðingarleysi, og birtast í hræðslu, sleggjudómum og því miður stundum ofbeldi. Orðið "fordómar" útskýrir í raun að verið er að dæma fyrirfram, án þess að hugsa um rök eða ástæður.

› framhald...

Fimmtudagur 19. apríl 2007 kl. 10:01 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 6

niður Kaldbak á snjóþotu

Viljiði spá í því hvað það er geðveikt að renna sér niður Kaldbak, eitt flottasta fjallið í Eyjafirði, á snjóþotu eins og systur mínar gerðu um páskana..

Það eru svona stundir sem fá mann til að sakna heimahaganna.

Föstudagur 13. apríl 2007 kl. 19:25 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video / 1

Scrapblogs

Scrapblogs er nýtt unaðslegt tól til að búa til scrap á netinu. (Scrap = skreytt myndaalbúm). Eftir að Danni fæddist hef ég verið að reyna að scrappa svolítið en hef aldrei haft almennilegan tíma til að setjast yfir það. Þegar ég sá þetta tól þá sé ég að þetta á eftir að verða mikill tímaþjófur... þá allt í einu hefur maður tíma ;)
Forritið er mjög skemmtilegt að vinna með, bæði flott tæknilega séð en líka gott viðmót og falleg grafík, hægt að tengjast beint við flickr (og YouTube er væntanlegt fyrir video) til að sækja myndir eða bara beint úr tölvunni. Maður á nú samt örugglega eftir að sakna þess að klippa ekki og líma.. og vera klístraður á puttunum.
Þessar síður gerði ég á hálftíma í gærkvöldi þegar ég var að prófa þetta:

Þriðjudagur 10. apríl 2007 kl. 07:32 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / netið / 2

loftlagsbreytingar

Í gær kom mjög góð grein eftir Söndru Ósk Snæbjörnsdóttur in á Vefritið, með yfirskriftinni "Stóra loftlagsbreytingasvindlið". Áhugaverð lesning, sérstaklega þar sem báðar kvikmyndirnar eru búnar að vera ofarlega í huga mér.


Föstudagur 06. apríl 2007 kl. 19:34 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 0

skítverk á skírdag

Það var einhver bóndinn hér í Árósasveit svo áræðinn í morgun að byrja daginn, sjálfan skírdaginn, á því að bera úrgang á túnin sín. Frá hverfinu okkar, sem er um 15 min akstri frá miðbænum sem telst nú ekki vera svo langt, eru nokkrir bóndabæir inni á milli, þar sem maður getur keypt jarðaber á sumrin, kartöflur á haustin og jólatré á aðventunni. Ég held reyndar að þetta hafi ekki verið þeir ágætu bændur sem menguðu loftið með metangasi heldur hafi þetta verið einhverjir norðanmenn (þó ekki Norðmenn), því vindurinn var sterkur og blés því ilminum yfir alla borgina.
Í nösum Dana er þetta sennilega peningalykt enda landbúnaðurinn mikilvægur og kannski finnst einhverjum bara rómó að hafa nálægðina við sveitina í nösunum.
Það var reyndar í blaðinu fyrir nokkrum dögum (fann ekki link) að bændurnir ætluðu að bjóða uppá SMS þjónustu sem virkar þannig að þú getur skráð þig fyrir skeyti, sem þeir senda þegar þeir ætla að bera á túnin. Þannig geturðu snarlega hætt við að setja í þvottavél nema fá sveitalyktina í fötin (eða sett þau út sérstaklega ef menn vilja það..), heldur kveikt bara á ilmkerti eins og ég í dag.
Það kalla ég hátæknifjós :)

Fimmtudagur 05. apríl 2007 kl. 20:52 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 2

krísublogg

Ég viðurkenni, að það er svolítil bloggkrísa í gangi á þessum stað. Ég ákvað fyrir nokkru að láta Danna alveg sjá um ævintýri okkar hérna í Danaveldi því sögurnar verða miklu skemmtilegri frá sjónarhóli hans, auk þess sem það er betra að halda því öllu á einum stað þegar maður fer að rifja upp.
Það verður því lítil samkeppni við hann hérna.


Ég var svolítið að hafa áhyggjur yfir því að ég væri að kæfa lesendur mína og saklausa fjölskyldumeðlimi í áróðri gegn þiðvitiðhverju, og hef reynt að hemja sjálfa mig í því þó ég hafi verið mjög upptekin sjálf við að lesa moggann, vísi, horfa silfrið og lesa moggabloggið. Ég bjó meira að segja til daia.blog.is fyrir skemmstu en er á mörkunum að nenna því að eltast við það... held að það sé bara ágætt að halda sig í "síns eigins garði".
Eftir allan þennan tíma sem ég hef verið að blogga (rúmlega 5 ár) ætti maður að vita að það er ekki lesandinn sem á að ráða ferðinni heldur skrifarinn, (þ.e. ef hann er ekki að eltast við vinsældir).


Samhliða skólanum, sem er ekki sá mest krefjandi í heimi en allt í góðu með það.. ég vissi það nokkurn vegin áður en ég byrjaði og það er bara ágætt því þá gefur maður sér líka tíma í annað, er ég með nokkur verkefni í gangi, bæði fyrir kúnna en líka nokkur gæluverkefni sem er dásamlegt að geta gefið sér tíma í. Eitt þeirra felst í uppfærslu og breytingum á uppskriftavef, annað um hugmyndabanka sem er reyndar kominn með nafn: "Eitthvað annað". Skólaverkefnið sem er í gangi núna er nokkuð frjálst svo ég ákvað að búa til tölvuleik handa Danna. Hvað gerir maður ekki fyrir þessi börn. :)

Páskahelgin er framundan. Planið er að slappa af í góða veðrinu, færa íbúðina í svolítinn sumarbúning og kíkja jafnvel í bústað.

Mánudagur 02. apríl 2007 kl. 20:25 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 4

þetta megum við kljást við..

Þetta megum við kljást við á hverjum degi... óheyrilega fyndið..

Mánudagur 02. apríl 2007 kl. 08:33 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / netið / video / 0