x2007

Maður þarf ekki að vera langt í burtu til að sjá að það eru kosningar í nánd á Íslandi. Það verður áhugavert og líka mjög auðvelt að fylgjast með baráttunni úr fjarlægð því að hún fer að miklu leyti fram á netinu. Í fyrsta skipti núna er bloggið orðið áhrifamikið tól í íslenskum stjórnmálum og eiginlega undarlegt að það hafi ekki gerst fyrr, ég allavega kvartaði yfir því í apríl 2003.

Hinn almenni bloggari, sem ættu að vera allir sem sitja kvartandi í eldhúskróknum heima hjá sér, getur líka haft töluverð áhrif. Það gerðist í Svíþjóð á síðasta ári, þegar nýkjörin sænska ríkisstjórnin lenti í mikilli krísu eftir smá rannsóknarvinnu eins bloggara, þannig að viðskiptaráðherrann sagði af sér átta dögum eftir að hún tók við og menningarmálaráðherrann var undir smásjánni í nokkrar vikur þar á eftir.

Annars hef ég ekki glóru um það hvað ég á að kjósa. Ég var lengi skráð í sjálfstæðisflokkinn, eða eftir að ég var á lista xD og ÓHÁÐRA fyrir norðan í sveitastjórnarkosningunum 1997. Ég veit eiginlega ekki af hverju ég samþykkti að vera þar, og tók í raun engan þátt í því þar sem ég var í prófum í MA á þeim tíma, en einhverra hluta vegna fór ég að fá fréttabréf og boðskort í prófkjör. Eftir að ég las Draumalandið ákvað ég að ég skyldi kjósa VG í næstu kosningum, og hringdi upp í háaleiti og afþakkaði pent að nafn mitt og adressa væri á lista hjá þeim, enda hefði ég aldrei skráð mig sjálf í flokkinn. Hins vegar tek ég eftir því núna að langflestir í fréttaveitunni minni er Samfylkingarfólk en sjálf bíð ég spennt eftir því hvað "Íslandsflokkurinn" kemur til með að færa á næstu dögum. Mætti segja að ég sé gjörsamlega áttavillt, og er örugglega ekki ein um.

Eiginlega er maður orðinn dauðleiður á þessum flokkum og öllu þessu karpi og tvískinnungshætti og vildi óska að fólk færi að koma sér að kjarnanum.


Föstudagur 09. mars 2007 kl. 21:47
Flokkað sem samfélag. Þar eru 71 færslur.

/ Álit

Hjörtur Smárason:

Máttur bloggsins er mikill - ef einhver les það. En það er eitt sem VG fólk virðist alls ekki fatta varðandi bloggið. Það er að bloggið er gagnvirkur miðill, en ekki einstefnu miðill. Öll ritskoðun eins og sumir bloggarar VG stunda á þeim kommentum sem ekki eru þeim að skapi sem og tal um netlöggu stangast algjörlega á við grundvallaratriði bloggsins og web2.0 þar sem það er á valdi fólksins að leggja sitt til málanna sem ræður ríkjum.

20.03.07 21:16