"The Great Global Warming Swindle"
Við horfðum á myndina "The Great Global Warming Swindle" á google video í gær og ég er nú svolítið eftir mig, verð ég að segja, þar sem Inconvenient Truth er ennþá í fersku minni.
Ég hvet reyndar alla til að sjá þessa mynd, sem var frumsýnd fyrir stuttu (8. mars 2007) á BBC, til að fá aðra hlið á málum hnattrænnar hlýnunar.
Í þessari mynd eru nokkrir vísindamenn að segja frá því, í stuttu máli, að þeirra niðurstöður bendi til þess að maðurinn eigi ekki sök á hlýnun loftlagsins með gegndarlausum koltvísýringsútblæstri, heldur stjórni sólin og skýjafar í lofthjúpnum þessu alfarið. Mannanna CO2 útblástur sé bara tittlingaskítur miðað við kraft sólarinnar og í raun og veru sé sú tenging milli hlýnunar andrúmslofts og magns CO2 tilkomið vegna þess að CO2 uppgufun í náttúrunni aukist þegar yfirborð jarðar og andrúmsloftið hitnar, en ekki öfugt.
Þeir hrekja grundvallartilgátur Al Gores svo tekið er eftir, og koma með rök fyrir því að gróðurhúsavandinn sé bara enn ein leiðin til að stýra ríkisfjármálum og halda almenningi nógu skelfdum til þess að gúddera bruðlið. Þeir segja þessa stefnu halda heilli heimsálfu, Afríku, í gíslingu þar sem Afríkubúar fái ekki leyfi til að nota sína náttúrulegu orkugjafa, kol og olíu, til að lýsa húsin sín og elda mat, heldur er gert að nota rándýra orkugjafa, sólarrafhlöður, sem við hér á vesturlöndum tímum ekki einusinni að nota.
Jahá.
Þegar ég byrjaði að horfa á myndina var ég ákaflega skeptísk því maður hefur það á tilfinningunni að þeir sem gagnrýni loftlagsbreytingar af mannavöldum séu á bandi stórfyrirtækja sem kaupi þær niðurstöður sem þeim hentar, en þessir vísindamenn sverja fyrir það allir sem einn að hafa nokkuð að gera með slíkt. Hvort maður trúir því er svo annað mál. En hverju og hverjum á maður þá að trúa? Er það þá bara lögmálið "allt er best í hófi" sem gildir?
Og ef þetta er svona, þá er allt tal um mengunarkvóta afskaplega hlægilegt. Einnig það að Íslendingar ætli sér að "bjarga heiminum" með því að nota hreina orku til að knýja álver. Eina spurningin er hvort maður vilji mengunina í bakgarðinum sínum eða einhvers annars.
Að síðustu er líka þessi vantrú á vísindin, sem okkar helsta tæki til að rannsaka heiminn ef við lítum ekki á þau gagnrýnum augum.
Vísindi, peningar og stjórnmál er ekki góður kokteill.
Flokkað sem samfélag. Þar eru 71 færslur.
/ Álit
vá hvað heimurinn er spilltur...maður veit ekkert hverju eða hverjum maður á að trúa!
Ég hef heyrt mikið báðar hliðar. En það sem mér þykir athyglivert að sjá er hvernig sannleikurinn sem kynntur er í "The Inconvenient Truth" er ráðandi í Evrópu en "The Global Warming Schwindle" vestan hafs. Það væri áhugavert að sjá kenningar um af hverju það stafar.

