summer of "07

Um þessar mundir erum við að skipuleggja sumarið. Þetta verður reyndar óvenjulega lítið frí þar sem skólarnir okkar eru ekki búnir fyrr en undir lok júní. Það setur eitthvað strik í reikninginn fyrir 10 ára stúdentsafmælið hans Óla sem verður 16. júní. Mikil gleði þar á ferð sem ég held að hann vilji ekki missa af.
Skólinn byrjar svo aftur um miðjan ágúst þannig að þetta eru um 6 vikur sem við höfum að spila úr, sem er ekki mikill tími í að rétta fjárhaginn eins og íslenskir námsmenn eru vanir að gera, þannig að við tókum þá diplómatísku ákvörðun að vera ekkert að rembast við það, heldur njóta þessa eina sumars sem við erum hérna, því eftir næsta skólaár stefnum við á flutning í höfuðborg norðursins. Já tíminn flýgur.

En aftur að sumarfríinu. Þetta skipulag snýst aðallega um það hversu marga "seasonpassa" á að versla. Hérna í nágrenninu eru endalaus tivoli, dýragarðar og skemmtigarðar, til dæmis Tivoli Friheden hérna í Árósum, rétt hjá hinum sívinsæla Bambagarði. Legoland er í um klst akstri niður Jótland og Djurs Sommerland er aðeins norðan við okkur, auk Fårup Sommerland sem er alveg nyrst, upp við Skagen. Reyndar er það þannig að með því að kaupa seasonpassa í Djurs þá fær maður miðann inn í Legoland á hálfvirði og ég hugsa að við gerum það þannig, enda er kannski ekki útlit fyrir að maður fari oftar en 3x í Legoland yfir sumarið. Í Djurs er hins vegar stór sundlaugargarður sem ég sé fyrir mér að sonurinn hafi mjööög gaman af, auk þess sem maður getur kannski náð að minnka glæruna yfir kroppnum. Ef guð lofar.

Við erum líka að vinna í því að draga sem flesta hingað út. Baddý systir kemur vonandi í maí á meðan við erum í prófaverkefnum og Lilja systir Óla með sína fjölskyldu í júlí. Svo var Óli að reyna að plata nafna sinn Magnússon til að koma líka í sumar og aldrei að vita nema það takist.

Semsagt, skemmtileg sumar framundan, ennþá nokkrar vikur lausar fyrir þá sem vilja kíkja í heimsókn, en við þurfum víst aðeins að bíða ennþá eftir sumrinu því framundan er næturfrost:

ojj


Sunnudagur 18. mars 2007 kl. 08:41
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur.

/ Álit

baddy systir:

já ég held að þetta sé rétta leiðin. um að gera að vera bara þarna úti í sumar og njóta þess, við verðum bara enn meira saman þegar þið flytjið aftur heim:)

18.03.07 17:58


dagný:

já, eina vitið :) okkur hlakkar líka til að fá þig í heimsókn :)

En eitt með þessa mynd, Veðurstofa Danmerkur uppfærir myndina jafnóðum þannig að það er að rætast úr þessari spá, í gær var spá um næturfrost alla vikuna en núna halda þeir að það verði bara í nótt.

19.03.07 08:20


Dagný:

eða bara ekki neitt.. ég ét allt ofansagt ofan í mig aftur..

19.03.07 23:40