Storytelling / Listin að segja sögur

Bókabúðin í skólanum mínum er mjög fín, eiginlega ein af bestu upplýsingatækni-bókabúðunum á svæðinu. Eins og ég er mikill sökker fyrir bókabúðum svona almennt þá er ekki verra að þarna fást pennar í öllum sverleikum (Mmmm), og súkkulaði (MMmmm) við kassann. Mér finnst ekki verra að geta beðið þar inni og flett á meðan ég bíð eftir farinu heim.
Um daginn var haldin plakata samkeppni í skólanum til að auglýsa fyrirlestur og í verðlaun var inneign í bókabúðinni góðu. Ég sendi inn plakat og það var (að sjálfsögðu..) valið. Fyrir inneignina keypti ég bók sem heitir Storytelling, Branding in practice. Hún fjallar um það hvernig fyrirtæki og vörumerki geta sagt sögur sem auka gildi þeirra fyrir viðskiptavinum og starfsmönnum, mjög áhugaverð bók.
Svo skemmtilega vildi til að fyrirlesturinn sem posterið var fyrir, fjallaði líka um Storytelling, en ég missti af honum vegna veikinda. Vonandi bætir bókin það þá eitthvað upp.


Miðvikudagur 07. mars 2007 kl. 22:20
Flokkað sem bækur. Þar eru 19 færslur. / hönnun. Þar eru 162 færslur.

/ Álit

baddy:

nohh til hamingju með þetta. þú ert svo klár og hugmyndarík. allavegana voru allir alltaf mjög hrifnir af plakötunum sem þú gerðir fyrir okkur:)

09.03.07 09:26