skattmann

Far Vel Skattframtal!
hvernig fara menn að því að gera þetta svona leiðinlegt.. mér finnst allavega að maður ætti að fá stóran gulan broskall þegar maður er búinn!





Þriðjudagur 20. mars 2007 kl. 23:08
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

baddy systir:

ég er haldin frestunaráráttu á þessu eins og svo mörgu öðru og fékk frest til 27.mars!

21.03.07 10:57


baddy systir:

enginn broskarl hana mér!:S

21.03.07 10:58


Guðný frænka:

envy you.....enginn broskall hér.......sama brella og Baddý.....arrrg

22.03.07 23:31


freyja:

Ég lauk skrattaskýrslunni á föstudagskvöldið.... sóun á góðu kvöldi....... Finnst bara fáránlegt að skila inn skýrslu með öllum fjármálaupplýsingum..... allt forskráð hvort eð er eða auðveldlega aðgengilegt hjá ölum fjármálastofnunum....! Bull og vitleysa og tímaeyðsla segi ég.

Annars sendi ég ykkur mína bestu kveðjur til Danska landins.... hafið það gott ;)

25.03.07 21:15


Dagný:

..skrattaskýrsla hehe

Hjá okkur var reyndar ekki allt forskráð, íbúðarsalan t.a.m.

Það er bara svo merkilegt að þegar skattframtalið varð rafrænt þá var ekkert verið að hugsa um að það væri verið að nota nýjan miðil, heldur var bara gerð rafræn útgáfa af pappírsframtalinu í öllum sínum ljótleika. Af hverju er maður ekki bara spurður þegar maður loggar sig inn: varstu á sjó? keyptirðu eða seldirðu íbúð? áttu hlutabréf? varstu að leigja á árinu?.. osfr, gera þetta svolítið QUIZ.. svo þegar maður er búinn að skila þá getur maður fengið að vita hvernig týpa maður er ;) híh

takk fyrir kveðjuna Freyja :)

25.03.07 22:01