Sáttmáli um framtíð Íslands

gratt-graent.jpg

1. Við höfum kjark til að byggja upp fjölbreytt og lifandi samfélag á Íslandi þar sem hugvit og sköpunargleði einstaklinga fær að njóta sín þeim sjálfum og öðrum til heilla.

2. Við sýnum komandi kynslóðum virðingu með því að láta lögfesta áætlanir um náttúruvernd áður en nokkuð frekar er aðhafst í orkuvinnslu.

3. Við öxlum ábyrgð á tímum viðsjárverðra loftslagsbreytinga í heiminum með því að fylgja alþjóðlegum skuldbindingum um losun gróðurhúsalofttegunda.


Það sem fólki, þá sérstaklega búsettu á landsbyggðinni, vantar í staðinn eru hugmyndir eða lausnir sem það getur unnið úr. Flestir eru að bíða eftir pakkalausn með slaufu eins og álverin hafa verið sett fram sem en þegar pakkinn er opnaður er hann ekki mjög kræsilegur.
Mér finnst ég samt vera umflotin hugmyndum, og hef verið að melta það með mér hvort ég eigi að búa til hugmyndavef þar sem fólk getur skráð inn hugmyndir sem það hefur fengið en hefur ekki áhuga eða kost á að framkvæma.
Pæling.

En byrjið allavega á því að lesa og undirrita sáttmálann lesendur góðir þar sem ég er ódugleg við að senda út póst til að minna á það.


Sunnudagur 18. mars 2007 kl. 20:16
Flokkað sem samfélag. Þar eru 71 færslur.

/ Álit

Tryggvi R. Jónsson:

Ég held að svona hugmyndavefur væri góð hugmynd... án þess að vilja fá á sig "höfuðborgarhugsunarstimpilinn" þá fæ ég alveg grænar af því að lesa svona hluti:
http://kristinnp.blog.is/blog/kristinnp/entry/150553/

Mér finnst þetta góð pæling og er alvarlega að íhuga að skrifa undir þetta hjá Framtíðarlandinu en ætli maður verði þá ekki stimplaður sem eitthvað ;)

18.03.07 21:59


Dagný:

ég var einmitt að lesa þetta líka í dag og þó að ég skilji þetta sjónarmið og finnist það ótrúlega sorglegt hvernig komið er fyrir mörgum sjávarplássum úti á landi, þá held ég samt að vorkunn sé það síðasta sem menn þurfa - á eftir álverinu.
Menn þurfa að byrja á því að hætta með þessa helv. minnimáttarkennd og fordóma gagnvart öðrum landsmönnum og fara að breyta landinu eins og best verður á kosið. Öll held ég að við viljum sama hlutinn; gott líf fyrir okkur og börnin okkar.
Í Draumalandinu segir ASM til dæmis að túrista sem ætlar að fara hringveginn og njóta einstæðrar íslenskrar náttúru er væntanlega sléttsama hvort hann byrjar í Keflavík eða á Egilsstöðum. Ef það er ódýrara að lenda á EGS airport en í KEF International, þá er það bara score.
En þetta er auðvitað ekki einfalt því ef ég væri með hið eina svar þá værum við ekki að röfla þetta.

En fæ ég semsagt stuðning PÍ til að setja af stað hugmyndavefinn?

kv, Dagný hin stimplaða.

18.03.07 22:32


Tryggvi R. Jónsson:

Auðvitað skilur maður þetta sjónarhorn, en það þýðir samt ekki að maður sé sammála eða þyki það æskilegt. Ég fór svolítið að velta fyrir mér "lausn með slaufu" pælingunni þinni eftir að ég skrifaði commentið og ég held að það sé eiginlega alveg nákvæmlega vandamálið.

Ég auga í það minnsta hugmyndavefinn, ef þetta samræmist ekki markmiðum PÍ skal ég hundur heita. Stefnir nú ekki í að meirihluti Pjúsara verði á ný norðan heiða innan skamms tíma ;)

19.03.07 09:04