* nýtt útlit *
Síðustu tvo daga hef ég aðeins verið að breyta útlitinu og uppsetningunni á blogginu. Ég er sífellt að reyna að finna betri leiðir til að setja upp bloggið en einhvernvegin fær maður alltaf leið á því að horfa á það sama. Ég er ágætlega sátt við þetta, enn sem komið er.
Það er líka fínt að vinna með bloggkerfið Movable Type. Eftir að ég uppfærði finnst mér það ganga hraðar og eftir að hafa horft yfir öxlina á Óla með sitt Wordpress þá er ég ennþá ánægðari með mitt MT.
Það eru örugglega einhverjir hnökrar á þessu, þannig að ég ætla að kíkja í Windows tölvurnar í skólanum á morgun.
En ef það er einhver MT notandi þarna úti sem vill fá template skrárnar mínar þá væri ég glöð að deila þeim, með smávegis breytingum auðvitað. Endilega hafa bara samband.
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur. / netið. Þar eru 107 færslur.
/ Álit
hef ekki séð neina hnökra hér í minni windows tölvu!! þýðir þetta nýtt look á línuna eða?? hehehee

